Fréttablaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 48
Bílar
Hressari, viðkunnan-legri og alþýðlegri viðmælanda en Stef-ano Domenicali, for-stjóra Lamborghini, er vart hægt að hitta,
en Fréttablaðið fékk tækifæri til að
ræða við forstjóra þessa ítalska sport-
bílaframleiðanda yfir ljúfum kvöld-
verði á Apótekinu í vikunni. Stefano
er fullur eldmóðs eins og framleiðslu-
vara fyrirtækis hans og hann kemur
til dyranna eins og hann er klæddur.
Hann var þó líklega í aðeins meiri
klæðnaði hér en í heitu heimaland-
inu, nýkominn úr frábærum reynslu-
akstri á íslenskum vegum og ljómaði
hreinlega af ánægju.
Ítalir eru þekktir fyrir opið viðmót,
að spara ekki orðin og nota allan lík-
amann í orðræðu sinni. Þar er Stefano
engin undantekning og sá sem hlustar
hrífst með. Hvernig getur maður svo
sem verið forstjóri fyrirtækis sem
framleiðir eins spennandi vöru og
Lamborghini-sportbíla og sparað svo
orðin og haft frá litlu að segja?
Ekki á hverjum degi
Það er ekki á hverjum degi sem for-
stjórar dáðra bílaframleiðenda koma
til Íslands og hvað þá með nokkra
bíla af nýjustu framleiðslu sinni. Það
gerðist þó í vikunni þegar sjö Lam-
borghini Urus jeppar sáust hér á
götunum ásamt fríðu föruneyti Lam-
borghini starfsmanna. Ástæða þess
að bílarnir og forstjórinn voru hér á
landi var kynning á þessum nýja jeppa
Lamborghini fyrir bílablaðamönnum
víðsvegar að úr heiminum, sem og
vegna myndatöku á þessum kostagrip
í ægifagurri náttúru landsins.
Stefano hafði rétt náð að strjúka í
gegnum hárið eftir reynsluaksturinn
þegar hann var mættur í mat og við-
tal. Hann mærði, eins og flestir aðrir,
íslenska náttúru sem blasti við á leið
hans að Jökulsárlóni, en það sem
meira kom á óvart var hve hann
hrósaði íslenskum vegum og sérstak-
lega hve lítil umferð var á þeim. „Það
er bara eins og þið séuð einir í heim-
inum, svona er þetta sko ekki heima
í Bologna.“
Markaðurinn öskrar á lúxusjeppa
Aðspurður hvort Lamborghini væri
ekki að skaða sportbílaímynd sína
með framleiðslu á jeppa sagði Stef-
ano svo alls ekki vera. Markaðurinn
hreinlega öskraði á lúxusjeppa og við-
brögðin við Urus væru á þann veg að
það myndi taka meira en ár að fram-
leiða bara upp í þær pantanir sem
komnar eru í bílinn. Svo mikill mark-
aður væri fyrir svona bíla í heiminum
að það hefði meira að segja komið
honum á óvart. Þó svo þessi bíll væri
langt í frá ódýr og myndi kosta hér yfir
40 milljónir króna, væri nóg af kaup-
endum slíkra bíla og mörkuðunum
færi sífellt fjölgandi. Hann nefndi sem
dæmi Kína, Austurlönd fjær, Rúss-
land, Bandaríkin og Ástralíu.
Stefano bætti því þó við í mikilli
kurteisi að fáir markaðir væru heppi-
legri fyrir slíkan bíl en Ísland, hér væri
sko landslag fyrir slíkan bíl sem léti
fátt stöðva sig. Þess vegna valdi hann
Ísland fyrir þessa kynningu nú, það
var í hans verkahring og einskis ann-
ars. Stefano hefur komið til Íslands
áður og féll strax fyrir landinu og
minntist þess svo vel þegar kom að
því að velja heppilegasta staðinn.
Það kom skýrt í ljós hve mikið hann
dáir landið, náttúruna og vegina.
„Við fórum í smá torfærur í dag á leið
okkar og vá, hvað það var gaman, það
var eins og þær væru sérsniðnar fyrir
bílinn.“
Urus tvöfaldar framleiðsluna
Lamborghini er ekki stór bílafram-
leiðandi í samanburði við þá stærstu
og framleiddi aðeins ríflega 3.800
bíla í fyrra og það aðeins af tveimur
gerðum, Huracán og Aventador. Því
er Urus þriðja bílgerðin í takmarkaðri
flóru bíla þeirra en gæti samt skipt svo
miklu máli. Stefnan er nefnilega sú
að tvöfalda framleiðslu Lamborgh-
ini með þessum jeppa. Sala á honum
hefst í ár og heildarsalan nær með því
líklega um 5.700 bílum, en á næsta
ári stefnir í 8.000 bíla sölu. Það er
ekki skot út í loftið því nú þegar eru
komnar pantanir í slíkan fjölda.
Stefano bætti við að það væri alls
ekki sýn þeirra Lamborghini-manna
að fara í átt að massasölu bíla sinna.
Það muni aðeins skaða Lamborgh-
ini og of mikið magn myndi einungis
þynna út áhugann á gæðasmíði
þeirra. Rétt er að hafa það í huga að
fyrir aðeins fimm árum framleiddi
Lamborghini aðeins um 2.000 bíla á
ári. Í 55 ára sögu Lamborghini hefur
fyrirtækið ekki mikið látið á sér bera
á markaði og í fjölmiðlum en nú hafi
verið tekin ný stefna. Fylgjendum á
samfélagsmiðlum hefur til dæmis
fjölgað sjöfalt á milli ára og flestir
virðast nú þekkja til bíla Lamborgh-
ini, ekki síst nýja bílsins Urus.
Munu taka þátt
í rafmagnsvæðingunni
Þegar Stefano var spurður um það
hvort Lamborghini, sem hingað til
hefur ekki rafmagnsvætt bíla sína,
yrði ekki ýtt í þá átt með reglu-
gerðum kvað hann svo einmitt vera.
Lamborghini muni bæði bjóða Urus,
sem og Aventador og Huracán sem
tengiltvinnbíla á næstunni og að því
sé unnið nú. Hvernig má reyndar
annað vera þar sem Lamborghini er
undir hatti Volkswagen Group sem
hefur einart tekið stefnuna í þá átt.
Reyndar heyrir Lamborghini undir
Audi sem heyrir líka til Volkswagen
Group bílasamstæðunnar stóru. Stef-
ano bætti því við að það hefði verið
mikið gæfuspor þegar Lamborghini
rann undir verndarvæng Audi árið
1998 og annars hefði fyrirtækið lík-
lega orðið gjaldþrota, sem og Bugatti.
Forstjórinn vildi meina að það
væri mikill styrkur í því að vera
partur af þessum stærsta bílafram-
leiðanda heims og samnýting og
sameiginleg þróun á bílum allrar
samstæðunnar væri grundvöllur
fyrir góðum rekstri allra þeirra. Stef-
ano bætti því við að þrýstingnum
sem bílaiðnaðurinn er beittur af
yfirvöldum, sérstaklega í Evrópu-
löndum, á að minnka svo gríðar-
hratt mengun bíla sinna væri hægt
að líkja við nornaveiðar. Á meðan
væri öðrum mengandi iðnaði og
samgöngum ekki gert að gera neitt
til að sporna við mengun. Nær hefði
verið að allir bílaframleiðendur
heims hefðu bundist samkomulagi
um að mótmæla þessum gríðarlega
þrýstingi og beita mótaðgerðum.
Hressir bílar og enn hressari forstjóri
Í síðustu viku voru staddir hér á landi 7 Lamborghini Urus jeppar og forstjóri fyrirtækisins var með í för. Tilefnið
var blaðamannakynning á nýjasta bíl Lamborghini. Fréttablaðið fékk að spjalla við forstjórann um nýja bílinn.
Öll hestöflin fengu smá hvíld í reynsluakstrinum.
Lamborghini Urus bílarnir tilbúnir fyrir utan Heklu.
Stefano Domenicali, forstjóri Lamborghini, fyrir framan tvo nýsmíðaða Urus-jeppa í verksmiðjunni í St. Agata á Ítalíu.
Lamborghini Urus bíll settur saman í verksmiðju Lamborghini á Ítalíu.
Hreint magnað aksturstæki, Lamborghini Urus, og þau finnast vart betri.
Finnur
Thorlacius
finnurth@frettabladid.is
1 8 . o k t ó b e r 2 0 1 8 F I M M t U D A G U r32 b í l A r ∙ F r É t t A b l A ð I ð
1
8
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:4
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
1
B
-2
C
E
4
2
1
1
B
-2
B
A
8
2
1
1
B
-2
A
6
C
2
1
1
B
-2
9
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
1
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K