Fréttablaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 12
Kerfið langt á eftir þekkingunni
„Það er mikið af góðu fólki innan lögreglunnar
sem er að vinna ómetanlegt starf en það er
kerfið sem það vinnur eftir sem gengur aug-
ljóslega ekki upp. Ýmsu mætti strax breyta til
batnaðar, svo sem aukinni og viðameiri fræðslu í
sálfræðinni að baki þessum brotum. Hvernig sem
er þá er ljóst að kerfið er langt á eftir þeirri þekk-
ingu sem við nú búum yfir í þessum málaflokki,“
segir Sigrún lögmaður.
Reynsla hennar er sú að í upphafi hafi brota-
þolar verið sáttir. Hún hitti þá að minnsta
kosti einu sinni á fundi fyrir skýrslutökuna og
segir að lögreglan hafi tekið vel á móti þeim, sýnt
þeim virðingu og vinsemd.
„Eftir það mætir brotaþolum algjör þögn, líka
okkur réttargæslumönnum. Brotaþolar, eðli-
lega, hafa reglulega samband og óska eftir
upplýsingum um stöðu mála. Þá þarf fyrst að
kanna hvar málið er statt á hverjum tíma, en
upplýsingagjöf lögreglu til réttargæslumanna
er engin. Ég reyni að nálgast upplýsingar hjá
lögreglu, sem eftir svo og svo langan tíma
segir mér að málið sé komið á ákærusviðið.
Þá hef ég samband við lögfræðinga þar og
eftir mislangan tíma fæ ég jafnvel þær upp-
lýsingar að málið sé nú komið til héraðs-
saksóknara. Þá þarf ég að hafa samband
þangað og oft er svarið það að málið sem
ég held utan um sé komið í bunka mála sem
bíða úthlutunar til saksóknara, en það er hann
sem ákveður hvort málið verði fellt niður eða
fært til dómstóla,“ segir Sigrún.
„Oft reynist erfitt að fá upplýsingar eða ég
mæti þögninni, þá hef ég lítið að segja brota-
þolum sem skiljanlega verða ósáttir og draga
jafnvel þá ályktun að ekki einu sinni réttar-
gæslumaðurinn þeirra hafi áhuga á þeirra
máli. Maður getur rétt ímyndað sér
hve sárt slíkt viðmót er fyrir
brotaþola og skaðlegt
bataferli þeirra.“
Karlmaður á fimm-tugsaldri hefur verið kærður til lögreglu fyrir meint brot gegn nokkrum konum. Maðurinn starfar
sem meðhöndlari og meint brot
eiga að hafa átt sér stað í meðferð hjá
honum. Hann starfar ekki á vegum
hins opinbera. Konurnar leituðu
allar til mannsins vegna stoðkerfis-
vanda. Konurnar greina frá því að
maðurinn hafi í einhverjum tilvikum
meðhöndlað þær við vanda sínum í
gegnum leggöng þeirra.
Frásagnir sex kvenna sem Frétta-
blaðið ræddi við ríma hver við aðra.
Þær hafi verið á erfiðum stað í lífinu
þegar þær komu til mannsins og
margar hverjar þjáðar.
Sigrún Jóhannsdóttir, lögmaður
og eigandi Lögvís lögmannsstofu,
er réttargæslumaður hóps þessara
kvenna. „Rannsókn lögreglu miðar
hægt áfram, hluti brotaþola hefur
enn ekki verið kallaður til skýrslu-
töku. Og mér finnst mjög alvarlegt að
maðurinn hafi ekki verið stöðvaður.“
Óeðlilegur seinagangur í kerfinu
„Málið hefst í mars á þessu ári þegar
ung kona leitar til mín vegna þess að
hún vill kæra manninn fyrir nauðg-
un. Fljótlega vatt málið þannig upp
á sig að nú eru konurnar orðnar fleiri
sem lagt hafa fram kæru á hendur
manninum og enn fleiri bíða þess að
komast í skýrslutöku. Þá hafa nokkr-
ar ekki enn tekið ákvörðun um fram-
hald máls. Allar koma þessar konur
úr mismunandi áttum,“ segir Sigrún.
„Konurnar gáfu flestar
skýrslu í vor og á þeim
tíma lét ég lögregluna
vita af tveimur sem
vildu leggja fram
kæru, en mál þeirra
var lítillega frá-
brugðið hinum.
Ég fékk þau svör
að lögreglan
ætlaði sér að
skoða málin
en síðan hef
é g e k k e r t
heyrt, þrátt
fyrir regluleg-
ar ítrekanir.”
Ein þeirra
sem bíða þess
að fá að kæra
er nú búsett í
einu Norður-
landanna, en
meint brot
mannsins í
hennar garð
átti sér þó stað hér á landi.
„Ég lét lögregluna vita í apríl að
hún vildi leggja fram kæru en fátt
var um svör. Eftir að hafa ítrekað
málið í um hálft ár fékk ég loks þau
svör að hún yrði að kæra í gegnum
lögregluyfirvöld í því landi, sem gæti
eftir atvikum kallað eftir aðstoð lög-
reglunnar á Íslandi. Þetta er í algjörri
andstöðu við önnur mál sem ég hef
verið með eða þekki til. Þar hefur
lögreglan til að mynda farið utan
í þeim tilgangi að taka skýrslu af
brotaþola. Ég get ekki séð annað en
að hér sé um hreina og klára mis-
munun að ræða.“
Maðurinn enn að störfum
Þegar rannsóknin hafði staðið
yfir í nokkra mánuði segist
Sigrún hafi látið lögreglu vita
af konu sem nýlega sakaði
manninn um brot gegn sér.
Meint brot átti sér stað meðan
á rannsókn lögreglu á öðrum
málum gegn manninum stóð.
Að sögn Sigrúnar aðhafðist
lögreglan ekkert og skýrsla
hefur enn ekki verið tekin af
stúlkunni.
„Það hefði verið hægt að
koma í veg fyrir þetta brot hefði
lögreglan stöðvað manninn strax
í upphafi, enda lá þá strax fyrir rök-
studdur grunur um að hann hefði
brotið kynferðislega gegn fjölda
kvenna. Síðan er liðið hálft ár og
maðurinn er enn að störfum svo
við best vitum,“ segir Sigrún.
„Málið vekur mann
til umhugsunar um
hvernig unnið
er að kynferðisbrotamálum innan
kynferðisbrotadeildar lögreglunnar
og maður veltir fyrir sér hvað þurfi
til þess að maður, sem virðist stöðugt
vera að brjóta á konum og jafnvel á
meðan rannsókn stendur yfir, sé
hnepptur í gæsluvarðhald.“
Gunnþórunn
Jónsdóttir
gunnthorunn@frettabladid.is
Karlmaður sem vinnur með einstaklinga sem glíma við
stoðkerfisvanda hefur verið kærður nokkrum sinnum á
þessu ári fyrir kynferðisbrot í starfi. Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu staðfestir að þrjú mál séu til rannsóknar.
„Tilraun til aftöku
á Alþingi götunnar“
Frásagnir
sex kvenna
sem Frétta-
blaðið
ræddi við
ríma hver
við aðra.
Rannsókn
lögreglu miðar
hægt áfram, hluti brota-
þola hefur enn ekki verið
kallaður til skýrslutöku.
Og mér finnst mjög
alvarlegt að maðurinn
hafi ekki verið
stöðvaður.
Þegar rannsóknin hafði staðið yfir í nokkra mánuði segist Sigrún hafi látið lögreglu vita af konu sem nýlega sakaði manninn um brot gegn sér. fréttablaðið/Stefán
Þykir alvarlegt
að maðurinn sé
enn að störfum
Lögfræðingur mannsins, Steinbergur finn-
bogason, vísar ásökunum á bug fyrir hönd
hans. „Þessar ávirðingar eiga sér vægast sagt
sérstakan bakgrunn og koma skjólstæðingi
mínum mjög á óvart. Hann er búinn að
starfa hér á landi með sérhæfða líkams-
meðhöndlun fyrir mjaðmavandamál
í rúmlega fjórtán ár og hefur á þessum
tíma tekið á móti yfir fimmtíu þúsund heim-
sóknum ánægðra skjólstæðinga af báðum
kynjum og á öllum aldri,“ segir Steinbergur.
Hann segir kærurnar á hendur manninum
vera hópmálsókn.
„Þessi fyrirhugaða hópmálsókn,
sem svo má kalla hana, á rætur
sínar að rekja til auglýsingar á
fésbókarsíðu að undirlagi lög-
manns þessara aðila þar sem
konur voru hvattar til að segja
frá óviðurkvæmilegri framkomu
skjólstæðings míns. Þetta er að mínu
viti dæmigerð tilraun til aftöku á Alþingi
götunnar án dóms og laga. Og því miður er and-
rúmsloftið þannig þessa dagana að þrátt fyrir mögulega
sýknun fyrir dómstólunum nær böðull umræðunnar að vinna verkin
sín löngu áður en dómstólarnir úrskurða um sekt eða sýknu. Og maður spyr sig
að því hvort þá sé tilganginum ef til vill náð.“
tilkynningar til
brotaþola og réttar-
gæslumanna sam-
kvæmt fyrirmælum
ríkissaksóknara
n Samkvæmt
lögum um með-
ferð sakamála nr.
88/2008 ber ákæru-
valdinu að sjá um
að brotaþolum sé
tilkynnt um stöðu
og afgreiðslu mála.
1. Að kæru hafi
verið vísað frá eða
rannsókn máls
hætt.
2. Að mál hafi verið
fellt niður vegna
sönnunarskorts.
3. Að fallið hafi
verið frá saksókn í
máli.
4. Að ákæra hafi
verið gefin út í máli.
Tilkynna skal þegar
ákæra hefur verið
birt nema brotaþoli
hafi áður fengið
vitneskju um hana.
5. Niðurstaða
dóms, eða afdrif
máls að öðru leyti,
enda hafi hags-
muna brotaþola
ekki verið gætt fyrir
dómi.
n Tilkynningar
skulu vera skrif-
legar. Tilkynning um
að ákæra hafi verið
gefin út skal geyma
stutta lýsingu á efni
kæru. Tilkynningu
um niðurstöðu
dóms fylgi ljósrit af
dómsorði.
Sigrún
Jóhannsdóttir,
réttargæslu-
maður
TilveRan
1 8 . o k t ó b e r 2 0 1 8 F I M M t U D A G U r12 F r é t t I r ∙ F r é t t A b L A ð I ð
1
8
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:4
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
1
B
-4
A
8
4
2
1
1
B
-4
9
4
8
2
1
1
B
-4
8
0
C
2
1
1
B
-4
6
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
6
4
s
_
1
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K