Fréttablaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 52
1 8 . o k t ó b e r 2 0 1 8 F I M M t U D A G U r36 M e n n I n G ∙ F r É t t A b L A ð I ð Öugur Milwaukee mótor skilar 14000 til 24000 strokum á mínútu. REDLINK™ yrálagsvörn REDLITHIUM-ION™ rafhlaða. Sveigjanlegt rafhlöðuker sem virkar með öllum Milwaukee ® M18™ rafhlöðum. Verð 29.900 kr. (án rafhlöðu) M18 FCOT Alvöru hjámiðja frá Milwaukee vfs.is ára s. 511 1100 | www.rymi.is Rafmagnstjakkar Kynningarverð: 282.897 kr. m/vsk kVIkMYnDIr 22 July HHHHH Leikstjórn: Paul Greengrass Aðalhlutverk: Anders Danielsen Lie, Jonas Strand Gravli, Seda Witt Á skömmum tíma hafa tvær kvik- myndir byggðar á voðaverkum norsku fasistaskepnunnar Anders Behring Breivik skollið á okkur. Fyrst kom hin norska Utøya:July 22 og í kjölfarið kom sýn breska leikstjórans Pauls Greengrass á hryllinginn. Net- flix gerði þá mynd aðgengilega í síð- ustu viku og hún mun því væntan- lega fara víðar. Greengrass er vitaskuld feikilega öflugur leikstjóri og fáir ef nokkrir komast með tærnar þar sem hann er með hælana þegar kemur að því að kvikmynda sannsögulega atburði og framreiða raunverulegan hrylling og voðaverk í alvöru kvikmyndum. Greengrass vakti mikla og verð- skuldaða athygli með myndinni Bloody Sunday árið 2002 þar sem hann dramatíseraði af mikilli íþrótt hryllilegar afleiðingar mótmæla- göngu í Derry á Norður-Írlandi þann 30. janúar 1972. Þá skutu breskir her- menn á göngufólk með þeim afleið- ingum að þrettán lágu í valnum og fjórtán til viðbótar særðust. Í raun var Bloody Sunday „leikin“ heimildarmynd, ágeng, heiðarleg og erfið og lét engan ósnortinn. Fjórum árum síðar tók Greengrass hryðju- verkin þann 11. september 2001 sínum tökum með hinni firnasterku United 93. Sú mynd fjallaði um örlög og andspyrnu farþeganna í fjórðu flugvélinni sem var rænt í Banda- ríkjunum þennan örlagaríka dag og lýsti tilraun farþeganna til þess að yfirbuga flugræningjanna eftir að tveimur vélum hafði verið flogið á Tvíburaturnana og sú þriðja hrapað við Pentagon. Myndin skilaði Greengrass Óskarsverðlaunatilnefningu fyrir bestu leikstjórn og þótt hann geti auðveldlega einn- ig kvikmyndað ekta Holly- wood-hasar er ljóst að sam- tímasagan togar stöðugt í hann. Árið 2013 sló hann í gegn með Captain Phill- ips þar sem Tom Hanks l é t s k i p - stjóra sem stóð uppi í hárinu á sómölskum sjóræningjum í sann- kölluðu fréttadrama sem fangaði athygli heimsbyggðarinnar á sínum tíma. Og þaðan rak hann á fjörur Úteyj- ar og töfrar fram enn eina hádrama- tíska en um leið jarðbundna skýrsl- una um raunverulegan hrylling sem er óþægilega nálægur okkur í tíma og rúmi. Áður en lengra er haldið er rétt að halda því til haga að Greengrass hefur einnig gert afskaplega vel heppnaðar, þvottekta hasarmyndir með Matt Damon og kenndar eru við ofurnjósnarann Jason Bourne; The Bourne Supremacy, The Bourne Ultimatum og Jason Bourne. Greengrass er því meira en jafn- vígur á byssuhasar og gerviofbeldi og raunverulega skelfingu og þegar hann nær hæstu hæðum í 22 July laðar hann fram stemningu sem nístir í gegnum merg og bein áhorf- enda. Ísköld og yfirveguð aftaka Anders Behring Breivik á börnum „vinstri elítunnar“ er eitthvert erfiðasta atriði sem sést hefur í kvikmynd lengi. Samt svo hófstillt og laust við subbuskapinn sem hægt hefði verið að freistast til þess að troða framan í áhorfendur. Samt langar mann mest til þess að líta undan. Hætta að horfa. Mögulega vegna þess að þessi hryllingur stendur okkur óþægilega nærri í tíma og það sem gerist í Noregi getur í hugum okkar allt eins gerst á Íslandi. Green- grass nær þó ekki sömu hæðum og í fyrri „heim- ildarmyndum“ sínum og eftir að Breivik hefur náð takmarki sínu tekur uppgjörið við og myndin verður á köflum langdregin og hún er of löng. Þótt ekki séu nema átta ár liðin frá voðaverki hans er það samt hulið þoku gleymskunnar. Mögulega vegna þess að við lifum dofin í heimi þar sem börn svelta, eru skotin á færi og sprengd í tætlur á hverjum degi. Bara í öðrum heimshlutum. Öll höfum við því gott af því að horfa á þessa köldu, ágengu og hráu upprifjun en maður hlýtur að spyrja sig hvort maður myndi nenna henni til enda ef hún hverfðist ekki um dráp á unglingum í landi sem við tengjumst órjúfanlegum sögulegum og landfræðilegum böndum. Hefði Greengrass yfirleitt nennt að kvikmynda dráp á börnum í Palest- ínu eða Jemen? Og myndi eitthvert okkar nenna að horfa á 143 mínútna kvikmynd um morðin sem þar eru framin og eftirmálin? Þau eru að vísu engin þannig að slík mynd yrði aldr- ei annað en stuttmynd. Látið það samt ekki þvælast fyrir ykkur og leggið þessa mynd á ykkur. Hún er óháð öllum svona vanga- veltum, harkaleg hugvekja. Vel gerð, ágeng og fantavel leikin en þar standa þó tveir upp úr. Anders Danielsen Lie sýnir yfirvegaðan stór- leik í hlutverki manndjöfulsins Brei- viks og Jonas Strand Gravli er frábær í hlutverki eins fórnarlamba Breiviks sem lifði af en hann stendur fyrir norska þjóðarsál, sorgarferlið allt og hversu frændur vorir tókust á við þennan hrylling á aðdáunarverðan hátt. thorarinn@frettabladid.is nIðUrstAðA: Ágeng og fagmann- leg afgreiðsla meistara sannsögu- legra hryllingsmynda á skelfingunni í Útey. Greengrass nær þó ekki fyrri hæðum en 22 July er engu að síður ruddaleg hugvekja sem við höfum öll gott af því að fara í gegnum. Löng og átakanleg áminning Paul Greengrass er mikill meistari þegar kemur að því að kvikmynda raunverulegar hörmungar. Hann nær þó ekki fyrri hæðum í afgreiðslu sinni á voðaverkunum í Útey árið 2011. Paul Greengrass kann að gera hasarmyndir og fáir filma sann- sögulegar hörm- ungar betur en hann. NordicPhotos/Getty Anders danielsen Lie sýnir stórleik í túlkun sinni á ómenninu Anders Breivik. Paul Greengrass sýnir hvers hann er megnugur í átakanlegu og löngu atriði þar sem fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik, pollrólegur og yfirvegaður, sallar ungmennin í Útey niður. Ógleymanleg sena sem erfitt er að horfa á. Bíó 1 8 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :4 4 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 1 B -3 B B 4 2 1 1 B -3 A 7 8 2 1 1 B -3 9 3 C 2 1 1 B -3 8 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 1 7 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.