Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.10.2018, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 18.10.2018, Qupperneq 12
Kerfið langt á eftir þekkingunni „Það er mikið af góðu fólki innan lögreglunnar sem er að vinna ómetanlegt starf en það er kerfið sem það vinnur eftir sem gengur aug- ljóslega ekki upp. Ýmsu mætti strax breyta til batnaðar, svo sem aukinni og viðameiri fræðslu í sálfræðinni að baki þessum brotum. Hvernig sem er þá er ljóst að kerfið er langt á eftir þeirri þekk- ingu sem við nú búum yfir í þessum málaflokki,“ segir Sigrún lögmaður. Reynsla hennar er sú að í upphafi hafi brota- þolar verið sáttir. Hún hitti þá að minnsta kosti einu sinni á fundi fyrir skýrslutökuna og segir að lögreglan hafi tekið vel á móti þeim, sýnt þeim virðingu og vinsemd. „Eftir það mætir brotaþolum algjör þögn, líka okkur réttargæslumönnum. Brotaþolar, eðli- lega, hafa reglulega samband og óska eftir upplýsingum um stöðu mála. Þá þarf fyrst að kanna hvar málið er statt á hverjum tíma, en upplýsingagjöf lögreglu til réttargæslumanna er engin. Ég reyni að nálgast upplýsingar hjá lögreglu, sem eftir svo og svo langan tíma segir mér að málið sé komið á ákærusviðið. Þá hef ég samband við lögfræðinga þar og eftir mislangan tíma fæ ég jafnvel þær upp- lýsingar að málið sé nú komið til héraðs- saksóknara. Þá þarf ég að hafa samband þangað og oft er svarið það að málið sem ég held utan um sé komið í bunka mála sem bíða úthlutunar til saksóknara, en það er hann sem ákveður hvort málið verði fellt niður eða fært til dómstóla,“ segir Sigrún. „Oft reynist erfitt að fá upplýsingar eða ég mæti þögninni, þá hef ég lítið að segja brota- þolum sem skiljanlega verða ósáttir og draga jafnvel þá ályktun að ekki einu sinni réttar- gæslumaðurinn þeirra hafi áhuga á þeirra máli. Maður getur rétt ímyndað sér hve sárt slíkt viðmót er fyrir brotaþola og skaðlegt bataferli þeirra.“ Karlmaður á fimm-tugsaldri hefur verið kærður til lögreglu fyrir meint brot gegn nokkrum konum. Maðurinn starfar sem meðhöndlari og meint brot eiga að hafa átt sér stað í meðferð hjá honum. Hann starfar ekki á vegum hins opinbera. Konurnar leituðu allar til mannsins vegna stoðkerfis- vanda. Konurnar greina frá því að maðurinn hafi í einhverjum tilvikum meðhöndlað þær við vanda sínum í gegnum leggöng þeirra. Frásagnir sex kvenna sem Frétta- blaðið ræddi við ríma hver við aðra. Þær hafi verið á erfiðum stað í lífinu þegar þær komu til mannsins og margar hverjar þjáðar. Sigrún Jóhannsdóttir, lögmaður og eigandi Lögvís lögmannsstofu, er réttargæslumaður hóps þessara kvenna. „Rannsókn lögreglu miðar hægt áfram, hluti brotaþola hefur enn ekki verið kallaður til skýrslu- töku. Og mér finnst mjög alvarlegt að maðurinn hafi ekki verið stöðvaður.“ Óeðlilegur seinagangur í kerfinu „Málið hefst í mars á þessu ári þegar ung kona leitar til mín vegna þess að hún vill kæra manninn fyrir nauðg- un. Fljótlega vatt málið þannig upp á sig að nú eru konurnar orðnar fleiri sem lagt hafa fram kæru á hendur manninum og enn fleiri bíða þess að komast í skýrslutöku. Þá hafa nokkr- ar ekki enn tekið ákvörðun um fram- hald máls. Allar koma þessar konur úr mismunandi áttum,“ segir Sigrún. „Konurnar gáfu flestar skýrslu í vor og á þeim tíma lét ég lögregluna vita af tveimur sem vildu leggja fram kæru, en mál þeirra var lítillega frá- brugðið hinum. Ég fékk þau svör að lögreglan ætlaði sér að skoða málin en síðan hef é g e k k e r t heyrt, þrátt fyrir regluleg- ar ítrekanir.” Ein þeirra sem bíða þess að fá að kæra er nú búsett í einu Norður- landanna, en meint brot mannsins í hennar garð átti sér þó stað hér á landi. „Ég lét lögregluna vita í apríl að hún vildi leggja fram kæru en fátt var um svör. Eftir að hafa ítrekað málið í um hálft ár fékk ég loks þau svör að hún yrði að kæra í gegnum lögregluyfirvöld í því landi, sem gæti eftir atvikum kallað eftir aðstoð lög- reglunnar á Íslandi. Þetta er í algjörri andstöðu við önnur mál sem ég hef verið með eða þekki til. Þar hefur lögreglan til að mynda farið utan í þeim tilgangi að taka skýrslu af brotaþola. Ég get ekki séð annað en að hér sé um hreina og klára mis- munun að ræða.“ Maðurinn enn að störfum Þegar rannsóknin hafði staðið yfir í nokkra mánuði segist Sigrún hafi látið lögreglu vita af konu sem nýlega sakaði manninn um brot gegn sér. Meint brot átti sér stað meðan á rannsókn lögreglu á öðrum málum gegn manninum stóð. Að sögn Sigrúnar aðhafðist lögreglan ekkert og skýrsla hefur enn ekki verið tekin af stúlkunni. „Það hefði verið hægt að koma í veg fyrir þetta brot hefði lögreglan stöðvað manninn strax í upphafi, enda lá þá strax fyrir rök- studdur grunur um að hann hefði brotið kynferðislega gegn fjölda kvenna. Síðan er liðið hálft ár og maðurinn er enn að störfum svo við best vitum,“ segir Sigrún. „Málið vekur mann til umhugsunar um hvernig unnið er að kynferðisbrotamálum innan kynferðisbrotadeildar lögreglunnar og maður veltir fyrir sér hvað þurfi til þess að maður, sem virðist stöðugt vera að brjóta á konum og jafnvel á meðan rannsókn stendur yfir, sé hnepptur í gæsluvarðhald.“ Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@frettabladid.is Karlmaður sem vinnur með einstaklinga sem glíma við stoðkerfisvanda hefur verið kærður nokkrum sinnum á þessu ári fyrir kynferðisbrot í starfi. Lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu staðfestir að þrjú mál séu til rannsóknar. „Tilraun til aftöku á Alþingi götunnar“ Frásagnir sex kvenna sem Frétta- blaðið ræddi við ríma hver við aðra. Rannsókn lögreglu miðar hægt áfram, hluti brota- þola hefur enn ekki verið kallaður til skýrslutöku. Og mér finnst mjög alvarlegt að maðurinn hafi ekki verið stöðvaður. Þegar rannsóknin hafði staðið yfir í nokkra mánuði segist Sigrún hafi látið lögreglu vita af konu sem nýlega sakaði manninn um brot gegn sér. fréttablaðið/Stefán Þykir alvarlegt að maðurinn sé enn að störfum Lögfræðingur mannsins, Steinbergur finn- bogason, vísar ásökunum á bug fyrir hönd hans. „Þessar ávirðingar eiga sér vægast sagt sérstakan bakgrunn og koma skjólstæðingi mínum mjög á óvart. Hann er búinn að starfa hér á landi með sérhæfða líkams- meðhöndlun fyrir mjaðmavandamál í rúmlega fjórtán ár og hefur á þessum tíma tekið á móti yfir fimmtíu þúsund heim- sóknum ánægðra skjólstæðinga af báðum kynjum og á öllum aldri,“ segir Steinbergur.  Hann segir kærurnar á hendur manninum vera hópmálsókn. „Þessi fyrirhugaða hópmálsókn, sem svo má kalla hana, á rætur sínar að rekja til auglýsingar á fésbókarsíðu að undirlagi lög- manns þessara aðila þar sem konur voru hvattar til að segja frá óviðurkvæmilegri framkomu skjólstæðings míns. Þetta er að mínu viti dæmigerð tilraun til aftöku á Alþingi götunnar án dóms og laga. Og því miður er and- rúmsloftið þannig þessa dagana að þrátt fyrir mögulega sýknun fyrir dómstólunum nær böðull umræðunnar að vinna verkin sín löngu áður en dómstólarnir úrskurða um sekt eða sýknu. Og maður spyr sig að því hvort þá sé tilganginum ef til vill náð.“ tilkynningar til brotaþola og réttar- gæslumanna sam- kvæmt fyrirmælum ríkissaksóknara n Samkvæmt lögum um með- ferð sakamála nr. 88/2008 ber ákæru- valdinu að sjá um að brotaþolum sé tilkynnt um stöðu og afgreiðslu mála. 1. Að kæru hafi verið vísað frá eða rannsókn máls hætt. 2. Að mál hafi verið fellt niður vegna sönnunarskorts. 3. Að fallið hafi verið frá saksókn í máli. 4. Að ákæra hafi verið gefin út í máli. Tilkynna skal þegar ákæra hefur verið birt nema brotaþoli hafi áður fengið vitneskju um hana. 5. Niðurstaða dóms, eða afdrif máls að öðru leyti, enda hafi hags- muna brotaþola ekki verið gætt fyrir dómi. n Tilkynningar skulu vera skrif- legar. Tilkynning um að ákæra hafi verið gefin út skal geyma stutta lýsingu á efni kæru. Tilkynningu um niðurstöðu dóms fylgi ljósrit af dómsorði. Sigrún Jóhannsdóttir, réttargæslu- maður TilveRan 1 8 . o k t ó b e r 2 0 1 8 F I M M t U D A G U r12 F r é t t I r ∙ F r é t t A b L A ð I ð 1 8 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :4 4 F B 0 6 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 1 B -4 A 8 4 2 1 1 B -4 9 4 8 2 1 1 B -4 8 0 C 2 1 1 B -4 6 D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 6 4 s _ 1 7 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.