Fréttablaðið - 20.10.2018, Síða 24
Kannabisefni hafa fylgt manninum í árþúsundir. Elstu heimildina um neyslu kannabis er að finna í verkum gríska sagn-
fræðingsins Heródótusar sem var
uppi á fimmtu öld fyrir Krist. Þá
hefur einnig verið deilt um hvort
kannabisefni hafi leikið stórt hlut-
verk í menningu Gyðinga í fornöld.
Minnst er á plöntuna „kaneh bosm“
í hebresku Biblíunni. Það er að segja í
2. Mósebók, 30:23. Sumir vilja meina
að þar sé verið að tala um kannabis.
Á íslensku hefur „kaneh bosm“ verið
þýtt sem ilmreyr.
Á tuttugustu öldinni varð sú þróun
víða í heiminum að lögbann var sett
á kannabisefni. Bannið skilaði tak-
mörkuðum árangri og um miðja öld
ákváðu ýmis vestræn ríki að hefja svo-
kallað „stríð gegn fíkniefnum“. Þetta
stríð bar þó lítinn árangur og ekki
tókst að útrýma neyslu. Á undanförn-
um árum hafa málin æxlast þannig að
kannabisefni hafa víða verið afglæpa-
vædd, jafnvel lögleidd í lækninga- eða
afþreyingarskyni.
Í afglæpavæðingu felst að gera per-
sónulega vörslu og neyslu refsilausa.
Í lögleiðingu felst aftur á móti afnám
laga um bann við kannabisefnum.
Með því að lögleiða kannabisefni
setur tiltekið ríki því ný lög um með-
ferð kannabisefna og getur til að
mynda skattlagt sölu.
Löglegt kannabis
Úrúgvæ varð fyrsta ríki heims til að
lögleiða kannabis alfarið. Það var
gert árið 2013 og hefur ríkið gert
samninga við nokkra einkaaðila um
ræktun. Stíft eftirlit er með fram-
leiðslu og sölu, en kaupendur þurfa
að hafa náð átján ára aldri. Kanada
fylgdi í fótspor Úrúgvæ á miðviku-
daginn og varð annað ríki heims til
Breytt staða
kannabis
Lagaleg staða kannabisefna tekur breyt-
ingum í heiminum. Nokkur ríki hafa lög-
leitt kannabisefni í afþreyingarskyni, enn
fleiri í lækningaskyni og þá hefur fjöldi ríkja
afglæpavætt kannabis. Kanada lögleiddi
kannabis í afþreyingarskyni á dögunum og
kosið er um málið í nokkrum ríkjum Banda-
ríkjanna. Staðan á Íslandi helst óbreytt.
þess að lögleiða kannabis. Justin Tru-
deau, forsætisráðherra Kanada, lofaði
lögleiðingu í kosningabaráttu, og
hefur ítrekað sagt að með lögleiðingu
fari ágóðinn af sölu kannabisefna úr
höndum glæpamanna og eftirlit geri
það að verkum að erfiðara verði fyrir
börn að kaupa sér kannabis.
Auk Úrúgvæ og Kanada er kann-
abis löglegt að hluta í nokkrum
ríkjum. Líklega er lagaleg staða
kannabisefna hvergi umtalaðari og
flóknari en í Bandaríkjunum. Þar er
kannabis í afþreyingarskyni löglegt í
níu ríkjum af fimmtíu sem og í höfuð-
borginni Washington D.C. þótt það sé
ólöglegt í alríkislögum. Kannabis er
svo löglegt í lækningaskyni í þrjátíu
ríkjum Bandaríkjanna til viðbótar
og kann abis í afþreyingarskyni hefur
verið afglæpavætt í þrettán.
Staða kannabisefna í Georgíu og
Suður-Afríku er sömuleiðis áhuga-
verð. Neysla, varsla og ræktun fyrir
eigin neyslu er lögleg í Suður-Afríku
en ekki sala. Sama gildir að mestu
um stöðuna í Georgíu. Þar er ræktun
reyndar ekki lögleg heldur afglæpa-
vædd.
Kannabis á kjörseðlinum
Þegar Bandaríkjamenn ganga til
kosninga þann 6. nóvember næst-
komandi munu þeir kjósa til fulltrúa-
deildar þingsins, flestir til ríkisstjóra
og sumir til öldungadeildar þingsins.
Einnig er kosið um fjölmargar aðrar,
smærri stöður. En líkt og venjulega
þegar kosningar fara fram þar í landi
er fjöldi atkvæðagreiðslna um ýmis
mál á kjörseðlinum samhliða þeim
fyrrnefndu. Nú í nóvember er kanna-
bis á kjörseðlinum í nokkrum ríkjum.
Íbúar í bæði Michigan og hinu
íhaldssama Norður-Dakóta munu
kjósa um lögleiðingu kannabisefna
í afþreyingarskyni. Í septemberlok
birti Detroit Free Press könnun þar
sem fram kom að 55 prósent íbúa
Michigan væru fylgjandi lögleiðingu,
41 prósent andvígt og verður því að
teljast líklegt að Mich igan-búar styðji
málið í nóvember. Staðan er önnur í
Norður-Dakóta. Í könnun frá því fyrr í
mánuðinum kom fram að 59 prósent
væru andvíg, 30 prósent fylgjandi.
Í bæði Utah og Missouri verður svo
kosið um lögleiðingu kann abisefna í
lækningaskyni, en allnokkur ríki
Bandaríkjanna leyfa slíkt nú þegar.
Í könnun sem birt var í vikunni kom
fram að mjótt væri á munum í Utah.
Þar sagðist 51 prósent styðja lögleið-
ingu í lækningaskyni en 46 prósent
lýstu sig andvíg.
Fáar kannanir hafa verið gerðar um
málið í Missouri. Í könnun frá Misso-
uri Scout sem gerð var í ágúst sögð-
ust 54 prósent hlynnt lögleiðingu í
lækningaskyni á meðan 35 prósent
sögðust andvíg.
Afleiðingar lögleiðingar
Fjöldi rannsókna hefur verið gerður
og margar umfjallanir skrifaðar um
afleiðingar lögleiðingar kannabis-
efna í Colorado í Bandaríkjunum,
enda fyrsta ríki Bandaríkjanna til að
lögleiða kannabis í afþreyingarskyni.
Jafnvel þótt sex ár séu nú liðin frá því
íbúar Colorado samþykktu lögleið-
ingu og fjögur ár séu frá endanlegri
lögleiðingu er enn um hitamál að
ræða í ríkinu.
Andstæðingar lögleiðingar, til að
mynda Jeff Sessions, dómsmálaráð-
herra Bandaríkjanna, hafa bent á
aukna neyslu í kjölfar lögleiðingar.
Í bréfi sem Sessions sendi ríkisstjóra
Colorado í fyrra kom fram að neysla
ungmenna hefði aukist um 20 pró-
sent árið 2014. Að sögn CBS dróst
neysla reyndar aftur saman um 13,5
prósent árið 2016 samkvæmt sömu
rannsókn.
USA Today birti umfjöllun í
apríl þar sem fram kom að hvergi í
Bandaríkjunum mældist neysla tólf
til sautján ára ungmenna meiri og
hvergi hefðu fleiri ungmenni prófað
kannabis. Þá greindi Denver Post frá
því í fyrra að banaslysum þar sem
ökumaður ók undir áhrifum kann-
abisefna hefði fjölgað um 145 pró-
sent frá 2013 til 2016. Vert er þó að
taka fram að THC, helsta virka efnið
n Löglegt n Neysla afglæpavædd n Ólöglegt en sjaldnast framfylgt n Ólöglegt Löglegt í lækningaskyni
Þórgnýr Einar
Albertsson
thorgnyr@frettabladid.is
Í Bandaríkjunum
er lagaleg staða
mismunandi eftir
ríkjum. Kannabis er
löglegt í níu ríkjum
auk höfuðborgar-
innar Washington.
Kannabis í afþreying-
arskyni er ekki löglegt
í Ástralíu en hefur
verið afglæpavætt í
tveimur fylkjum.
2 0 . o k t ó b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r24 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
2
0
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
2
1
-A
1
B
8
2
1
2
1
-A
0
7
C
2
1
2
1
-9
F
4
0
2
1
2
1
-9
E
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
0
4
s
_
1
9
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K