Fréttablaðið - 20.10.2018, Page 28

Fréttablaðið - 20.10.2018, Page 28
Hlynur Pálmason kvikmyndagerðar-maður býr á Höfn og nýjasta mynd hans er aðallega tekin í hornfirsku umhverfi. Hún nefnist Hvítur, hvítur dagur en síðustu þrjá sólarhringana sem tökur fóru fram voru götuljós á Höfn slökkt, svo myrkrið yrði sem mest. Skýtur það ekki skökku við? „Jú, en því var vel tekið. Ég frétti að stemningin í bænum hefði verið svo kósí að barneignum mundi örugg- lega fjölga á Höfn – það kemur í ljós eftir níu mánuði!“ svarar Hlynur hlæjandi. „Án gríns þá var þetta var ekkert mál. Hornfirðingar eru svo samvinnuþýðir og hjálpsamir. Þeim bregður mörgum fyrir í myndinni, öll aukahlutverkin eru mönnuð heima- fólki í sínu daglega lífi. Ég sóttist eftir því. Jón bakari er að baka og Jóka, sem ég ólst upp með sem afgreiðslu- konu í íþróttahúsinu, er á sínum stað í myndinni. Svo fengum við „old boys“ fótboltamennina líka til að leika senur með okkur bæði á velli og í búningsklefanum. Ekkert vesen.“ Aðalhlutverk myndarinnar er leik- ið af Ingvari Sigurðssyni. Fannst ekki Hornfirðingum mikið til þess koma að hafa slíka stórstjörnu í bænum? „Ingvar er nú svo látlaus og eðli- legur og fellur alls staðar inn, en fólki hefur örugglega þótt gaman að spjalla við hann í sundi. Ég held almennt að fólki hafi þótt gaman að hafa svona stórt verkefni í gangi hér, því fylgir mikið líf. Þegar verið er að mynda er líka verið að búa til eitt- hvað sem myndar spennu.“ Þetta hefur ekki verið eins og þegar Angelina Jolie var að leika Lauru Croft í Tomb Raider þarna fyrir austan og óskapleg leynd hvíldi yfir því hvar hún héldi til meðan á tökum stóð? „Nei, þetta verkefni er eins lítið tengt Hollywood og stjörnustælum og hugsanlegt er. Það er allt svo eðli- legt hjá okkur og niðri á jörðinni.“ Hlynur kveðst hafa fengið leyfi frá sveitarfélaginu til að breyta gömlu jarðstöðinni í aðaltökustað mynd- arinnar og hugmyndin er að koma þar upp vinnustofu. „Ég hef verið að skjóta opnunarsenuna þar í tvö ár og reyndi að fanga mismunandi árs- tíðir, skap í veðrinu og breytingar á húsinu. Húsið er griðastaður sögu- hetjunnar og staðurinn er að mínu mati einstakur, birtan er síbreytileg, skriðjöklarnir blasa við og maður heyrir í briminu.“ Ingvar og Ída í aðalhlutverkum Handritið er skrifað af Hlyni, hann kveðst hafa unnið að því frá því hann lauk við kvikmyndaskólann í Danmörku. „Ég vann með Ingvari Sigurðssyni í lokaverkefninu mínu þar, Málaranum. Eftir það fór ég að þróa þetta verk, Hvítur hvítur dagur, og skrifa það fyrir Ingvar.“ Er sérstök saga bak við handritið? „Þegar ég byrja að vinna í einhverju verkefni er það vegna þess að margir hlutir vísa í sömu átt, en eru að vissu leyti faldir. Ég las einhvers staðar að þegar allt væri hvítt og enginn munur milli himins og jarðar gæti maður talað við þá dauðu. Það tengdist því sem ég var að vinna með því söguhetjan mín var skilin eftir lifandi – en missti manneskju sem honum þótt mjög vænt um. Þá verður til þessi djúpa sorg en líka reiði og hræðsla og allar þær sterku tilfinningar sem myndast hjá þeim sem missa. Þarna var eitthvað falið sem ég reyndi að kafa dýpra ofan í. Ljóð eftir spænska skáldið Angelo Gonzales, sem heitir Reiðilestur til hinna dauðu, og Jón Kalman þýddi, hafði líka áhrif á það sem ég var að gera. Ljóðið er einhvers konar hatursljóð en á sama tíma finnur maður fyrir djúpum söknuði og sorg. Mér finnst þessar andstæður spenn- andi; að elska og hata á sama tíma og upplifa það fallega og grimma á sama tíma.“ Bjartasta myndin til þessa Af lýsingu þinni að dæma er myndin dálítið dimm. „Hún er, held ég, bjartasta, fal- legasta og fyndnasta mynd sem ég hef gert til þessa – mjög mennsk og það er mikill húmor í henni. Rauði þráðurinn í myndinni er fallegt samband milli aðalsöguhetjunnar og barnabarns, en það er líka dekkri hlið sem er svolítið hættuleg.“ Hvað er barnabarnið gamalt? „Tíu ára dóttir mín, Ída Mekkín, leikur það og ég skrifaði handritið með Ing- var og hana í huga. Þau eru hjartað í myndinni.“ Hlynur bjó í Danmörku í mörg ár og flutti þaðan til Hafnar með fjöl- skylduna í desember síðastliðnum. Hann kveðst reyna að færa eftir- vinnslu myndarinnar eins mikið og hann geti til Hornafjarðar og undir- búa og vinna næstu verkefni þar. Er hann farinn að sjá fyrir sér frum- sýningardag? „Ætli við verðum ekki tilbúin með myndina í september á næsta ári, með einni forsýningu hérna heima á Hornafirði?“ er svarið. Til Óslóar með Hildi Undir lok þessa mánaðar ætlar Hlyn- ur að fylgjast með veitingu Norrænu kvikmyndaverðlaunanna, þar sem mynd hans, Vetrarbræður, er fram- lag Danmerkur og keppir við mynd- ina Kona fer í stríð og þrjár aðrar myndir. Ég fer til Óslóar með Hildi minni og það verður gaman að fá að taka þátt þar, því að þetta er Norður- landakeppni og sá andi á mjög vel við Vetrarbræður. Allar þjóðirnar eiga eitthvað í þeirri mynd – aðallega Danmörk og Ísland, ef maður hugsar um peninga, en samstarfið var ríkt milli allra landanna. Síðan hlökkum við til að sjá hinar myndirnar.“ Hvítur hvítur dagur er líka sam- norrænt verkefni, að sögn Hlyns. „Myndin er framleidd af Antoni Mána Svanssyni fyrir Join Motion Pictures og við erum með margt íslenskt fagfólk en tökukonan er sænsk, hljóðhönnuðurinn norskur og íslenskur, klipparinn, sem verður hér á Höfn í hálft ár, er danskur, þannig að þetta er mjög blandað.“ Eru þetta skólafélagar þínir frá Danmörku? „Já, ég hef unnið náið með klippar- anum, hljóðmanninum og töku- konunni síðan við kynntumst í kvikmyndaskólanum í Danmörku, við erum einhvers konar fjölskylda og erum alltaf í góðu sambandi og að grúska í einhverju“ Talandi um fjölskyldu. Hvað er þín stór? „Við erum fimm, stelpan okkar er tíu ára og strákarnir okkar verða sex ára í janúar, svo það er mikið stuð í sveitinni.“ Í kvöld verður Hlynur viðstaddur sýningu á Vetrarbræðrum í Bíói Paradís og situr á eftir fyrir svörum um hana, ásamt klipparanum, Juli- us Krebs Damsbo. Eflaust ber nýju myndina, Hvítan, hvítan dag, einnig á góma. Andstæðurnar spennandi – að elska og hata á sama tíma Hlynur tók upphafsatriðið í myndinni á tveimur árum og reyndi að fanga hin síbreytilegu tilbrigði veðurs, birtu og brims. Mynd/Anders nydAM Hér er unnið. Hlynur stendur milli leikarans góðkunna Ingvars sigurðssonar sem er í aðalhlutverki í myndinni Hvítur hvítur dagur og leikmyndahönnuðarins Huldu Helgadóttur. Mynd/ Hlynur Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Vetrarbræður, mynd Hlyns Pálmasonar, keppir um Kvik- myndaverðlaun Norðurlandaráðs 30. október sem framlag Danmerkur. Hlynur segir hér frá nýjustu mynd sinni, Hvítur hvítur dagur, en tökum er nýlokið. 2 0 . o k t ó b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r28 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð 2 0 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :2 8 F B 1 0 4 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 2 1 -8 9 0 8 2 1 2 1 -8 7 C C 2 1 2 1 -8 6 9 0 2 1 2 1 -8 5 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 0 4 s _ 1 9 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.