Fréttablaðið - 20.10.2018, Blaðsíða 28
Hlynur Pálmason kvikmyndagerðar-maður býr á Höfn og nýjasta mynd hans er aðallega tekin í hornfirsku
umhverfi. Hún nefnist Hvítur, hvítur
dagur en síðustu þrjá sólarhringana
sem tökur fóru fram voru götuljós á
Höfn slökkt, svo myrkrið yrði sem
mest. Skýtur það ekki skökku við?
„Jú, en því var vel tekið. Ég frétti að
stemningin í bænum hefði verið svo
kósí að barneignum mundi örugg-
lega fjölga á Höfn – það kemur í ljós
eftir níu mánuði!“ svarar Hlynur
hlæjandi. „Án gríns þá var þetta var
ekkert mál. Hornfirðingar eru svo
samvinnuþýðir og hjálpsamir. Þeim
bregður mörgum fyrir í myndinni, öll
aukahlutverkin eru mönnuð heima-
fólki í sínu daglega lífi. Ég sóttist eftir
því. Jón bakari er að baka og Jóka,
sem ég ólst upp með sem afgreiðslu-
konu í íþróttahúsinu, er á sínum
stað í myndinni. Svo fengum við
„old boys“ fótboltamennina líka til
að leika senur með okkur bæði á velli
og í búningsklefanum. Ekkert vesen.“
Aðalhlutverk myndarinnar er leik-
ið af Ingvari Sigurðssyni. Fannst ekki
Hornfirðingum mikið til þess koma að
hafa slíka stórstjörnu í bænum?
„Ingvar er nú svo látlaus og eðli-
legur og fellur alls staðar inn, en
fólki hefur örugglega þótt gaman
að spjalla við hann í sundi. Ég held
almennt að fólki hafi þótt gaman að
hafa svona stórt verkefni í gangi hér,
því fylgir mikið líf. Þegar verið er að
mynda er líka verið að búa til eitt-
hvað sem myndar spennu.“
Þetta hefur ekki verið eins og þegar
Angelina Jolie var að leika Lauru
Croft í Tomb Raider þarna fyrir
austan og óskapleg leynd hvíldi yfir
því hvar hún héldi til meðan á tökum
stóð?
„Nei, þetta verkefni er eins lítið
tengt Hollywood og stjörnustælum
og hugsanlegt er. Það er allt svo eðli-
legt hjá okkur og niðri á jörðinni.“
Hlynur kveðst hafa fengið leyfi frá
sveitarfélaginu til að breyta gömlu
jarðstöðinni í aðaltökustað mynd-
arinnar og hugmyndin er að koma
þar upp vinnustofu. „Ég hef verið að
skjóta opnunarsenuna þar í tvö ár
og reyndi að fanga mismunandi árs-
tíðir, skap í veðrinu og breytingar á
húsinu. Húsið er griðastaður sögu-
hetjunnar og staðurinn er að mínu
mati einstakur, birtan er síbreytileg,
skriðjöklarnir blasa við og maður
heyrir í briminu.“
Ingvar og Ída í aðalhlutverkum
Handritið er skrifað af Hlyni, hann
kveðst hafa unnið að því frá því
hann lauk við kvikmyndaskólann
í Danmörku. „Ég vann með Ingvari
Sigurðssyni í lokaverkefninu mínu
þar, Málaranum. Eftir það fór ég að
þróa þetta verk, Hvítur hvítur dagur,
og skrifa það fyrir Ingvar.“
Er sérstök saga bak við handritið?
„Þegar ég byrja að vinna í einhverju
verkefni er það vegna þess að margir
hlutir vísa í sömu átt, en eru að vissu
leyti faldir. Ég las einhvers staðar
að þegar allt væri hvítt og enginn
munur milli himins og jarðar gæti
maður talað við þá dauðu. Það
tengdist því sem ég var að vinna
með því söguhetjan mín var skilin
eftir lifandi – en missti manneskju
sem honum þótt mjög vænt um. Þá
verður til þessi djúpa sorg en líka
reiði og hræðsla og allar þær sterku
tilfinningar sem myndast hjá þeim
sem missa. Þarna var eitthvað falið
sem ég reyndi að kafa dýpra ofan í.
Ljóð eftir spænska skáldið Angelo
Gonzales, sem heitir Reiðilestur til
hinna dauðu, og Jón Kalman þýddi,
hafði líka áhrif á það sem ég var
að gera. Ljóðið er einhvers konar
hatursljóð en á sama tíma finnur
maður fyrir djúpum söknuði og sorg.
Mér finnst þessar andstæður spenn-
andi; að elska og hata á sama tíma
og upplifa það fallega og grimma á
sama tíma.“
Bjartasta myndin til þessa
Af lýsingu þinni að dæma er myndin
dálítið dimm.
„Hún er, held ég, bjartasta, fal-
legasta og fyndnasta mynd sem ég
hef gert til þessa – mjög mennsk og
það er mikill húmor í henni. Rauði
þráðurinn í myndinni er fallegt
samband milli aðalsöguhetjunnar
og barnabarns, en það er líka dekkri
hlið sem er svolítið hættuleg.“
Hvað er barnabarnið gamalt? „Tíu
ára dóttir mín, Ída Mekkín, leikur
það og ég skrifaði handritið með Ing-
var og hana í huga. Þau eru hjartað í
myndinni.“
Hlynur bjó í Danmörku í mörg ár
og flutti þaðan til Hafnar með fjöl-
skylduna í desember síðastliðnum.
Hann kveðst reyna að færa eftir-
vinnslu myndarinnar eins mikið og
hann geti til Hornafjarðar og undir-
búa og vinna næstu verkefni þar. Er
hann farinn að sjá fyrir sér frum-
sýningardag? „Ætli við verðum ekki
tilbúin með myndina í september
á næsta ári, með einni forsýningu
hérna heima á Hornafirði?“ er svarið.
Til Óslóar með Hildi
Undir lok þessa mánaðar ætlar Hlyn-
ur að fylgjast með veitingu Norrænu
kvikmyndaverðlaunanna, þar sem
mynd hans, Vetrarbræður, er fram-
lag Danmerkur og keppir við mynd-
ina Kona fer í stríð og þrjár aðrar
myndir. Ég fer til Óslóar með Hildi
minni og það verður gaman að fá að
taka þátt þar, því að þetta er Norður-
landakeppni og sá andi á mjög vel
við Vetrarbræður. Allar þjóðirnar
eiga eitthvað í þeirri mynd – aðallega
Danmörk og Ísland, ef maður hugsar
um peninga, en samstarfið var ríkt
milli allra landanna. Síðan hlökkum
við til að sjá hinar myndirnar.“
Hvítur hvítur dagur er líka sam-
norrænt verkefni, að sögn Hlyns.
„Myndin er framleidd af Antoni
Mána Svanssyni fyrir Join Motion
Pictures og við erum með margt
íslenskt fagfólk en tökukonan er
sænsk, hljóðhönnuðurinn norskur
og íslenskur, klipparinn, sem verður
hér á Höfn í hálft ár, er danskur,
þannig að þetta er mjög blandað.“
Eru þetta skólafélagar þínir frá
Danmörku?
„Já, ég hef unnið náið með klippar-
anum, hljóðmanninum og töku-
konunni síðan við kynntumst í
kvikmyndaskólanum í Danmörku,
við erum einhvers konar fjölskylda
og erum alltaf í góðu sambandi og að
grúska í einhverju“
Talandi um fjölskyldu. Hvað er þín
stór?
„Við erum fimm, stelpan okkar er
tíu ára og strákarnir okkar verða sex
ára í janúar, svo það er mikið stuð í
sveitinni.“
Í kvöld verður Hlynur viðstaddur
sýningu á Vetrarbræðrum í Bíói
Paradís og situr á eftir fyrir svörum
um hana, ásamt klipparanum, Juli-
us Krebs Damsbo. Eflaust ber nýju
myndina, Hvítan, hvítan dag, einnig
á góma.
Andstæðurnar spennandi
– að elska og hata á sama tíma
Hlynur tók upphafsatriðið í myndinni á tveimur árum og reyndi að fanga
hin síbreytilegu tilbrigði veðurs, birtu og brims. Mynd/Anders nydAM
Hér er unnið. Hlynur stendur milli leikarans góðkunna Ingvars sigurðssonar sem er í aðalhlutverki í myndinni Hvítur hvítur dagur og leikmyndahönnuðarins Huldu Helgadóttur. Mynd/ Hlynur
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Vetrarbræður, mynd
Hlyns Pálmasonar,
keppir um Kvik-
myndaverðlaun
Norðurlandaráðs
30. október sem
framlag Danmerkur.
Hlynur segir hér frá
nýjustu mynd sinni,
Hvítur hvítur dagur,
en tökum er nýlokið.
2 0 . o k t ó b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r28 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
2
0
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
2
1
-8
9
0
8
2
1
2
1
-8
7
C
C
2
1
2
1
-8
6
9
0
2
1
2
1
-8
5
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
0
4
s
_
1
9
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K