Fréttablaðið - 20.10.2018, Blaðsíða 32
Sálumessa er ný ljóðabók eftir Gerði Kristnýju. Þetta er ljóðabálkur þar sem sungin er messa yfir konu sem féll fyrir eigin hendi, svo þjáning hennar og líf
fái ekki að gleymast. „Sálumessa
hefur vonandi þýðingu fyrir þann
sem les hvort sem hann þekkir for
söguna eða ekki. Ljóðmælandi er
haugbúi sem dvelur við hlið hinnar
látnu og lítur yfir sögusviðið. Hann
rifjar upp líf hennar, fer yfir örlög
hennar og veltir fyrir sér hvernig
refsingu kvalari hennar ætti skilið,“
segir Gerður.
Snemma árs 2003 birti Gerður,
sem þá var ritstjóri Mannlífs, grein
eftir konu um skelfilegt kynferðis
ofbeldi sem elsti bróðir hennar
hafði beitt hana frá því hún var 7
ára þar til hún var 14 ára. Sálumessa
fjallar um þessa konu og þjáningar
hennar.
Gerður hafði á þessum tíma skrif
að nokkuð um kynferðis ofbeldi.
„Þegar ég var í blaðamennsku fannst
mér áhugaverðast að skrifa um
heiminn sem við góðborgararnir
verðum tæpast vör við og tók til
dæmis viðtöl við dæmda morðingja
inni á LitlaHrauni en líka þolendur
kynferðisofbeldis af báðum kynjum.
Ég hafði þá þegar áttað mig á því
hvað umfjöllun um kynferðisofbeldi
var viðkvæm og hvað mikil þöggun
ríkti um það,“ segir Gerður. „Ég tók
alvarlega á þessum málefnum strax
árið 1994 þegar ég hóf störf í blaða
mennsku og tók viðtal við konu sem
hafði verið hópnauðgað á Þjóðhátíð
í Eyjum. Saga hennar sat í mér. Árið
2001 skrifaði ég síðan grein um Krist
ínu Gerði Guðmundsdóttur, sem
seinna varð fyrirmynd að persónu í
kvikmyndinni Lof mér að falla. Hún
hafði orðið fyrir kynferðisofbeldi
sem barn, ánetjaðist eiturlyfjum,
stundaði vændi til að fjármagna
neysluna, varð síðan veik á geði og
svipti sig lífi. Við greinarskrifin tal
aði ég við ættingja hennar og vini en
nýtti mér líka heimildir. Ég tók mér
góðan tíma til að vinna þessa grein,
enda átti Kristín Gerður það skilið.
Ég vissi að það var þögull hópur
þarna úti sem fylgdist með skrif
unum mínum þótt ég yrði lítið vör
við hann en ég vissi líka ástæðuna
fyrir þessari þögn. Þess þá heldur
fannst mér ástæða til að halda áfram
að fjalla um kynferðisglæpi. Fyrr eða
síðar hlyti viðhorf samfélagsins til
þeirra breytast.“
Sláandi saga
Það var rétt fyrir jólin árið 2002 sem
konan, sem Gerður hefur nú samið
um Sálumessu, hringdi og spurði
hvort hún vildi lesa grein sem hún
hefði skrifað. Hún átti fjóra eldri
bræður og hafði sá elsti misnotað
hana kynferðislega. Þessar pynt
ingar höfðu mótað líf hennar. „Nú
var hún rúmlega þrítug. Hún var
veik á geði, hafði því dvalið inni á
geðdeild og nokkrum sinnum reynt
að svipta sig lífi.“
Konan sendi Gerði Kristnýju
greinina til yfirlestrar. „Hana lang
aði til að koma sögu sinni á framfæri
í Mannlífi en vildi hitta mig áður en
greinin birtist. Ég flaug norður til
Akureyrar þar sem við áttum saman
ljúfa stund um miðjan dag skömmu
fyrir jól í blokkaríbúð þar sem hún
bjó. Konan var róleg í tíðinni og
döpur en þó var hugur í henni. Ég
lagði fyrir hana örfáar spurningar
til að fylla inn í eyður í frásögninni
en annars var greinin ákaflega vel
skrifuð. Þetta var kona góðum
gáfum gædd. Hún hlakkaði til að fá
greitt fyrir greinina og sagðist ætla
að kaupa sér föt fyrir launin. Ég
man að hún gerði eina athugasemd
við leiðréttingu sem ég hafði gert
á greininni. Þar stóð að hún væri á
fertugsaldri. Frekar vildi hún að ég
skrifaði að hún væri rúmlega þrítug.
Ég breytti þessu vitanlega.
Konan fór fram á að nafn sitt birt
ist ekki í greininni. Hún vildi heldur
ekki að við mynduðum hana þannig
að sæist framan í hana. Myndin sem
birtist með greininni var því tekin af
baksvip hennar en jafnframt lánaði
hún myndir af sér í æsku. Trúnaður
minn var við hana og ég fór í einu
og öllu eftir því sem hún fór fram á.“
Í greininni, sem er sláandi lestur,
segir konan á einum stað: „Með
mér bærist sú von að fara kannski
í háskólann eftir tæpt ár en ég þori
ekki að hugsa mikið um það því mér
finnst enn líklegt að stutt sé þar til
ég dey.“
„Já, þetta er verulega sláandi og
sýnir okkur rétt eina ferðina hræði
legar afleiðingar kynferðisofbeldis.
Sumir lifa það ekki af,“ segir Gerður.
Ægileg tíðindi
Mannlíf var komið í prentsmiðju
þegar Gerður Kristný fékk símtal
frá yngsta bróður konunnar. „Hann
sagði mér að systir hans hefði fallið
fyrir eigin hendi. Ég hlustaði þögul
á hann og reyndi að ná taki á hugs
unum mínum á meðan. Þetta voru
ægileg tíðindi. Ég man að hann
sagði að sig hefði grunað þegar hún
var lítil að eitthvað ætti sér stað
milli hennar og elsta bróðurins því
hann var alltaf að draga hana afsíðis.
Hann sagði líka að henni hefði þótt
gott að vinna með mér. Þetta var því
ósköp hlýlegt samtal. Síðan hringdi
mágkona konunnar og spurði hvort
hún mætti fá launin hennar upp í
útfararkostnað sem væri mikill. Ég
taldi það allt í lagi og lagði féð inn
á reikningsnúmer sem hún gaf mér
upp.
Þegar fór að líða að því að blaðið
kæmi út fór ég að heyra bæði frá
fjölskyldunni og prestinum þeirra
að þeim þætti ekki við hæfi
Maður verður að
vera sæmilegur
til samviskunnar
Árið 2002 tók Gerður Kristný, þá ritstjóri Mannlífs, viðtal við konu
sem hafði á unga aldri orðið fyrir kynferðisofbeldi. Gerður Kristný
var kærð til siðanefndar Blaðamannafélagsins fyrir viðtalið. Nú hef-
ur Gerður Kristný ort ljóðabálkinn Sálumessa um þessa konu.
„Það er hvetjandi að vita að maður hafi valið söguefni sem hreyfa við fólki,“ segir Gerður Kristný. Fréttablaðið/EyÞór
ÉG vissi að það var
þöGull hópur þarna úti
sem fylGdist með sKrif-
unum mínum þótt ÉG
yrði lítið vör við hann
en ÉG vissi líKa ástæð-
una fyrir þessari þöGn.
þess þá heldur fannst
mÉr ástæða til að
halda áfram að fjalla
um KynferðisGlæpi.
hún átti fjóra eldri
bræður oG hafði sá
elsti misnotað hana
KynferðisleGa. þessar
pyntinGar höfðu mót-
að líf hennar.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrun@frettabladid.is
↣
2 0 . o k t ó b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r32 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
2
0
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
2
1
-6
1
8
8
2
1
2
1
-6
0
4
C
2
1
2
1
-5
F
1
0
2
1
2
1
-5
D
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
0
4
s
_
1
9
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K