Þróttur - 15.12.1920, Side 9
þróttur
John Zander hlaupari.
Þrótlur hefir áður minst þessa
ágæta íþróttamanns Svía, og vill
nú bæta hér nokkru við, um leið
og vér birtum þessa mynd af hon-
um, þar sem hann er að koma að
markinu, eftir að hafa sett heims-
met, sem kostað hefir mikla á-
reynslu og æfingu. (Sjá Þrótt 1.
árg. 4. og 5. tbl.) Fyrir tæpum
tveimur árum hætti hann hlaupa-
æfingum, og lét svo ummælt, að
hann mundi eigi keppa oftar í
hlaupum. — Var þá almenn sorg
í Svíaveldi meðal íþróttamanna og
iþróttavina.
Regar hafinn var undirbnningur
fyrir VII. Ólvmpíuleikana, skoruðu
menn á hann að fara að æfa á ný.
Tók hann því í fvrstu fálega, en
lét þó tilleiðast fvrir fortölur vina
sinna. Hann tók þátt í 1500 stikna
hlaupinu. Komst í úrslitahlanpið,
en gafst upp eftir að hafa hlaupið
rúma tvo hringi. — Það var að
heyra á Svíum, sem þeim kæmi
þetta ekki alveg á óvart; þvi eigi
hafði hann æft jafn rækilega og
áður; eða þá er hann setti beims-
metin árið 1917 og 1918. —
J. Zander er fæddur 31. janúar
1890, og byrjaði að iðka hlaup
árið 1907.
Helztu met hans eruþessi: 1500
stikur á 3 min. 54,7 sek., 2000 st.
á 5 mín, 31 sek. og 3000 st. á 8 mín.
33,1 sek. Eru þetta heimsmet. og
þykir mest koma til 1500 stikna
hlaupsins. Þá hefir hann hlaupið
1609 st. á 4 mín. 16,8 sek., 2 ensk-
ar mílur á 9 mín. 17,1 sek., 3
enskar milur á 14 mín. 38,7 sek.,
og 5 rastir á 14 mín. 57,6 sek. og
eru þetta sænsk met.
Nokkuð hefir hann ritað um
iþróttir í sænsk íþróttablöð, og
gefið hefir hann út bók, sem heit-
ir »Löpningar och Gáng«. Skal
iþróttamönnum ráðlagt að lesa