Þróttur - 15.12.1920, Blaðsíða 18

Þróttur - 15.12.1920, Blaðsíða 18
24 í5 R Ó T T tí íl inn var jafnt hjá foreldrunum sem börnunum, hjá eldri og yngri systkinum og aðslandendum; allir keptust um að hjálpa, hvetja og leiðbeina. Og umsjón alla höfðu helztu stórkarlar héraðs- ins og ríkisins á hendi, og gerðu það af al- huga. Hve langt skyldi þess að bíða, að helztu efnamenn, kaupmenn, verkfræðingar, sýslumenn og bæjarfógetar heima framkvæma alment með slíkum áhuga eftirlit og stjórn barnakappleika þar? Um kvöldið var verðlaunum útbýtt. Gerði það einn af íþróttaleiðtogunum frá Stockhólmi. Hélt hann ræðu um leið og beindi orðum sín- um sérstaklega til barnanna og aðstandenda þeirra. — Morguninn eftir voru þau byrjuð að æfa sig undir næsta mót að vetri, með eins miklum áhuga og þau hlupu daginn áður. Og þau voru ekki lött. Mig langar að geta þess hér, að dagana, sem eg var í Stockhólmi, sá eg að þar voru skauta- hlaup æfð meðal barnanna af sama kappi. Hvert barn var með skauta. Og tvo barnaskóla- flokka sá eg ganga niður á ísinn í fylkingum undir eftirliti kennara, með skauta í höndum. Hvorki þar eða hér hefi eg heyrt þess getið eða orðið þess var, að þau mættu ekki vera þarna og ekki þar, heldur hvött, hjálpað og Ieiðbeint. »Öðru vísi mér áður brá«! Aumingja íslenzku börnin! »Ekki er kyn þótt keraldið leki«, og þau séu dálítið framkvæmdasljó til annars en óknytta og lögbrota, þar sem það er bezt kent með óheilla-bönnum og hömlum á alla vegu á eðlilegustu þörf barnsins, þeirri að leika sér og reyna kraftana og þorið. Á föstudaginn var þreytt 120 rasta boðhlaup í 4 þriggja manna flokkum. Hófst það í Eds-- byn, en endaði hér. Var því ekki hægt að fylgj- ast með í hlaupinu nema af símfregnum. En þær voru birtar hér í gluggum jafnóðum, var áhuginn mikill. Komu flokkarnir inn weð þessum tíma: Bollnás 10,4710, Mora 10,52 25, Ostersund 10,5645 og Lundvika 1 1,0727. Sagt er að Bollnás-ingar hafi unnið á fyrsta og þó einkum siðasta kafla hlaupsins, þv> * miðkaflanum hafi þeir orðið einna síðastir. En þar hafði Sundin nokkur frá Mora hlaupið svo vel, að félagi hans í síðasta kaflanum bafði staðið lang-bezt að vígi. A. Person hljóp síð- asta kaflann i Bollnás-flokknum, og er sagt að þar muni hann hafa meir notið þess, að har>n var kunnugri en keppinautur hans, Stiáls Er- iksson. Var fjölmenni mikið við markið þó að klukkan væri orðin 10, þegar sá fyrsti koin Á laugardaginn var 20 rasta hlaup fyiir ungl' ingspilta 18 — 20 ára, 10 rasta hlanp fyrir stúlk- ur og síðast 15 og 18 rasta viðavangshlaup. í 20 rasta hlaupinu varð fyrstur K. Lund* qvist á 1,1266. Pátt-takendur 45. Töluvert voru áhorfendur spentir fyrir því í stúlkna hlaupinu, hvor yrði fljótari nr. 12 sem talin var skæð eða nr. 17, sem var »meistari« fra fyrra ári. En hún vann nú hlaupið aftur á 4243. Hún heitir Elín Pikkuniemi og er finsk að'seU* Sú næsta varð 4327, en sú firnta var langminst og sýnilega yngst — Melly Johansson —, þó var hún að eins 4551, og var það talið ágæt- lega gert. í þessu hlaupi tóku 40 stúlkur þátt. í 15 rasta víðavangshlaupinu varð fyrstur Einar Olsen á 1 ,1306, en í 18 rasta A. Lind- ström á 1,2241. Pátt-takendur í báðum 27. Bezt var veðrið þennan dag. Hæg norðanátt með4—6stiga frosti. Annars hefiralla dagana verið krapasnjór á daginn, þó stirðnað hafi um nætur. Fyrir öll hlaupin var troðin braut á skíðum, nema boðhlaupið og víðavangshlaupin. Og þannig var frá gengið, að runnið var af stað og komið aftur inn á sama stað. Leit það hér um bil svona út (sjá myndina): Allir leikarnir voru byrjaðir kl. 7V2 á morgn- ana til þess að nota frostið sem mest og drýgja daginn. Og var samt alt af fult af fólki við- statt. Áhuginn þetta mikill þótt hrifningin væri misalmenn. Barna-hlaupin voru þó ekki byrjuð fyr en (Framh. á bls. 27). - * 1. * 3 Ors 3 <-<«« v A"

x

Þróttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þróttur
https://timarit.is/publication/1299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.