Þróttur - 15.12.1920, Blaðsíða 10

Þróttur - 15.12.1920, Blaðsíða 10
iö Þróttur íþróttafélag Reyk]avikur. bókina, sem panta má hjá bókaverzlunum. Það er ekki eingöngu að J. Z. hafi verið ágæt- ur hlaupari, heldur hefir hann líka haft vit og vilja á að leiðbeina þeim, sem hafa viljað feta i fótspor hans. Hann segir að menn eigi að æfa sig vel og reglulega, og sitja sér eitthvert takmark að keppa að. Menn eigi að vera þolinmóðir þó þeir nái eigi undireins settu marki. — Hann er einn þeirra manna sem segir, að lífsstarf hvers manns eigi að skipa önd- vegið, en þar næst komi áhugastörfin, — iþrótt- irnar. Líkamsíþróttir auka starfsgleði mannsins, og þó þær hefðu eigi annað til síns ágætis, þá er það svo mikils um vert, að sjálfsagt er, að þvi sé verulegur gaumur gef- in. — Það er stofnað 11. marz 1907 fyrir forgöngu Andr. J. Bertelsen. Fyrsta fimleikasýning félagsins var haldin 5. júní 1910 í Barnaskóla-portinu hér, og þótti að vonum merkis við- burður; en síðan hefir félagið hald- ið fimleikasýningar árlega. — Á allsherjarmótinu, sem hér var háð 1911, hlaut sýningarflokkur félagsins fyrstu verðlaun fyrir fim- leika. Árið 1918 var fimm beztu fimleikamönnum félagsins boðið auslur á iþróttamót, sem haldið var við Þjórsárbrú. — Félagið hefir verið svo heppið að hafa góða kennara og stjórnendur, sem það má þakka gengi sitt og vinsældir. — Nú eru um 300 karl- ar, konur og börn í félaginu. í vetur hefir félagið starfað í 6 deild- um og komast færri að en vilja vegna húsnæðisleysis. Eitt af mestu áhugamálum félagsins er að koma hér upp sæmilegu íþróttahúsi. Að vísu á það mál enn langt í land, en að því mun verða unnið smátt og smátt í framlíðinni, eftir því sem efni og áslæður leyfa. — íþróttafélagar! Munið húsbyggingarsjóðinn! Fimleikaflokkur í. R. 1920.

x

Þróttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þróttur
https://timarit.is/publication/1299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.