Þróttur - 15.12.1920, Side 25
Þróttur
31
íþróttafréttir.
Heimboð.
Stjórn í. S. í. hefir nýlega fengið bréf frá
íþróttasatnbandinu danska (D. I. F.), þar sem
þess er óskað að í. S. í. sendi íþróttamenn á
hið fyrirhugaða íþróttamót, sem halda á í
Kaupm höfn nærsta ár, í tilefni þess að D. I. F.
er 25 ára. vótið er nefnt »Nordiske Idrætslege
1921«, og á að byrja 5 febr. n. k. Kept verður
1 grísk-rómv. glímu (6 þyngdarflokkum), hnefa-
leik (8 þyngdarfl.) skylmingum, fimleikum og
skautahlaupum. Og á þessum hlula mólsins að
vera lokið 13 febr. Sumarmótið hefst 1 júlí og
stendur yfir allan þann mánuð. Verður þar kept
hæði í einmennings- og ílokkaíþróttum. í. S. í.
hefir eigi enn getað ákveðið að taka þessu vin-
samlega boði D. I. F. en sér að hér er oss
niikill sæmd sýnd, þar sem þelta er i fyrsta
sinni sem oss er boðið á erl. íþróttamót.
D. I. F. er stofnað 14 febr. 1896 og er J. L,
Nathansen yfirdómslögm. formaður þess.
Elztl sundkcnnari landsins
niun vera Páll Erlingsson. Hann hefir kent
sund hér í Sundlaugunum við Reykjavík bráð-
uni heilan mannsaldur, eða frá því um vorið
1883. Fyrstu árin kendi hann þar aðeins á
sumrum, en frá því um árið 1902, hefir hann
kent alt árið. í fyrstu voru nemendur hans
Wjög fáir, en þeim fjölgaði óðum, eftir að hann
lór að gefa síg allan við sundkenslunni, og
^nenn fóru að skylja nytsemi sundíþróttarinnar.
Nú eru nemendur hans árlega yfir 500 og
eru það menn af öllum stéttum.
t*ví miður hafa Sundlaugarna oft verðið bil-
aðar (vatnslausar), og liefir það hamlað mjög
sundkenslunni. Ef vel ælti að að vera þyrfti
sem fyrst að endurbæta Laugarnar, svo þær
kæmu að sem beztum notum. Albuga þyrfti vatns-
leyðslurnar, sitja hitaleyðslur i hvern búningar-
hlefa og byggja yfir Laugina að norðanverðu.
Kæmist þetta í framkvæmd mundi verða vist-
legra þar en nú er, og hægra að kenna sundið
u vetrum. — Fátt mundi gleðja Pál Erl. meir
eu að þessar endurbætur á Lauginni kæmust i
framkvæmd. —
Páll er fæddur 19. maí 1856 í Stórumörk i
Eyjafj.hr. og verður því 65 ára á nærsta ári.
M
allan afslátt
og útsölur eru vörurnar ávalt
beztar og ódýrastar hjá
H. P. Duus, Á-deild.
Alklæði — Dömuklæði — Kjólatau —
Borð- Gólf- og Divanteppi — Prjóna-
vörur — Silki, svart og mislit —
Skúfasilki — Pífur — Svartir títu-
prjónar — Slæður hvítar — Svuntur
— Silkibönd o. m. íl.
Rakspeglar á
kr. 13,25.
Verzlunm „G OB AFOSS".
Laugaveg 5. Sími 436.
Rakvélar (»GiIlelte«-ModeI) kr.6,50.
Rakhnífar 6,50, 7.50, 8,50, 10,00
Raksápur, Rakkústar, Tannpasta,
Tannbustar, Hárbustar, Fatabustar.
Gilletteblöð á kr. 6,00 dúsin.
KONFEKTBÚÐIN
í Bankastræti 12
eelui* beztan konfekt.
Nýjai? bis’gðir daglega.
Guðrún Helgadóttir
Bankastræti 13. — Reykjavíb,
Verzlið við þá seuj. auglýsa í l’rótti.