Þróttur - 20.12.1922, Síða 8

Þróttur - 20.12.1922, Síða 8
86 Þ Ií (') T T U R Sundháskóli. Nokkrar hugleiðingar um sundkenslu og sundkunnáítu. Eftir Steingrím Matthíasson. Þegar eg var í skóla þótti eg allgóöur í söng, teikningu og leikfimi, en lélegur í stæröfræSi, svo að stiuidum lá viS að hún drægi mig langt niður í bekk. Þegar sund- kensla byrjaði í 2. beklt fekk eg einnig orð á mig, sem býsna góður sundmaSur, en þaö var með fram þvi að þakka, aö eg liafði fengið tilsögn áSur. Það voru engar einkunnir gefnar í skól- anum livorki fyrir söng, leikfimi, teikn- ingu, né sund, en fyrir öll liin fögin ekki síst stærðfræSi, því hún var fjórföld viö 4. bekkjar próí'. Þetta þótti mér rang- látt og þykir enn. Maðurinn er bæði líkami og sál og allan manninn á aS virða eftir því —- bæöi hve góSum líkama og hve góSri sál hann er gæddur — hve vel hann er af guði gjörður og hve vel hann hefir ávaxtað sitt pund andlegt sem líkamlegt. En gætum vel að því, að andlegt og líkamlegt atgjörvi er í rauninni sameinað óaSskiljardega í öllum okkar athöfnum eða liugrenningum, orSum og gjörðum, svo eg taki mér í munn oi'S úr Kverinu. Og þaS er sama hvort við tökum stærfræðishneigð, sundleikni, dráttlistfengi eða annaS; alstaSar kemur til greina sam- vinna líkama og sálar, þess vegna sann- gjarnt að öllum fögunum sé gjört jafnt undir liöfSi. Hvert fyrir sig sýnir einn af eigiuleikunum sem í sameiningu útlieimtast til að rnaSur geti heitið „vel að sér gjörr“. Með vaxandi aldri og lífsreynslu hefir mér orSið ljóst hve langt hefSi mátt kom- ast í mörgu faginu, ef rétt hefSi verið stefnt, tilsögn og æfing nóg. Vil eg sérstak- lega nefna sundið. Því miSur held eg, aS enn hjakki þar í sama farinu og þegar' eg lærði. Mönnum er kent aS fleyta sér í lygnu vatni og oftast volgu. Kallast síðan sjjndir. En þetta gagnar lítið þegar út í hættuna kemur. pað þarf að œfa menn í að lenda jafnt í S cylla sem C h ar yb- dis. Eftir þjóðsögninni voru í Messínasundi tveir hringiðusvelgir, afarhættulegir sjó- farendum. ÞaS var erfitt aS sneiða hjá þeim, því vildu menn forðast Scjdla, þá goin viS hin engu síður geigvænlega Char- ybdis. Hómer og Virgilíus skáld liafa báð- ir lýst þessum háskastöðum, og eru þær síSan aS orðtaki hafðar. Aðeins fáir kom- ust lífs af, þeir sem gátu haldið sér uppi á sundi („rari nantes in gurgite vasto“). Eg er orSinn löngu leiöur á að lesa um Nýárssundið í Reykjavík. þetta sama fyr- irbrigði ár frá ári: — hundakuldi (svo að áhorfendur að minsta kosti skjálfa), ræðu- maSur of kælist — sundskáli ómynd — landsmet •— heimsmet — sundbikar úr silfri o. s. frv. Eg hef, eins og *Jón Leifs, andstygS á hinu emstrengingslega ofurkappi í íþrótt- unum ; það er hingaö komið eins og annaS tíslcufaraldur frá útlöndum (alt þarf að apa, þó vitlaust sé). þessi rembingur, að vinna fem flesta metra eða segjum stikur á sem fæstum sekúndum (sem vantar ís- lenzkt orð yfir, og salma eg þess þó ekki). Er ilt aS vita heilsu góðra drengja stofnaS í háska hjarta- og taugabilunar meS þeim hamagangi, sem kallaS er kapp- sund, kapphlaup, knattspark o. fl. En eg skal nú aSallega halda mér viS sundið. Eg vil að vísu keppni í íþróttum, en þannig, að sú keppni liafi eitthvert gagnlegt mark og mið. Eg vil t. d. að . keppnin í sundleikni *) Sbr. grein hans í Þrótti nýlega.

x

Þróttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þróttur
https://timarit.is/publication/1299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.