Þróttur - 20.12.1922, Blaðsíða 19
Þ R Ó T T U R
97
*
>
draga það aftur og kasta laust, á sprettin-
um. Sá, sem skortir afl, í framkastið, þarf
að æfa atrennulaus köst og köst með hægri
atrennu, — þar sem áskortir þarf að
bæta úr, og til þess er að eins einn veg-
ur, sá, að samræma æfinguna kostum ein-
staklingsins og göllum. Þar með er ekki
sagt, að að eins eigi að æfa til aö vinna
upp gallana, heldur á þvert á móti að æfa
vandlega öll atriði kastsins, en mest þau,
sem ótömust eru, þar til samræmi er náð:
gallalausu kasti í öllum atriðum — næst-
um vélrænu kasti Æfingin veröur ætíð að
vera í samræmi við ástand mannsins, til
þess að koma að sem bestum notum; hatn.
verður því aö fylgjast ve.i með sjálfum sór
við æfingarnar — ekki æfa hugsunarlaust.
Best er að æfa sitt atriðið hvern daginn,
eins og að framan er sagt.
Ekki má byrjandi kasta eins oft og sá,
sem æfður er; er mjög varasamt að hætta
á of mikla æfingu í spjótkasti — flestum
íþróttum fremur — því það hefnir sín
með því, að maðurinn kemst í ástand, sem
kallað er yfirœfing eða ofþjálfi, og lýsir
það sér á margan hátt; en aðaleinkennið
er, að afturför kemur í stað framfara og
menn eins og tapa bæði lagi og þrótti og
kenna oft ýmsra annara óþæginda, aðal-
lega frá taugakerfinu; en þó fylgja síðari
einkennin ekki altaf. pað er oft erfitt að
átta sig á því, hvort um yfiræfing er að
ræða eða ekki; en séu þessi einltenni lang-
varandi, er mjög líklegt, að þau stafi af
þessari ástæðu, ef maðurinn er að öðru
leyt.i heilbrigður og vel á sig kominn. —
Hendi sú óheppni mann, að hann yfiræf-
ist, er ekki til neins að halda áfram æfing-
um, heldur verður hann að taka sér al-
gerða hvíld frá íþrótt sinni og taka helst
upp nýja háttu, svo sem hálfs mánaðar
tíma; best er: reglulegar göngur, ekki
þreytandi; nudd og volg böð. Getur hann,
eftir þennan hálfan mánuð, verið búinn
að ná sér svo, með réttilegri aðferð, að
hann nái strax við byrjun æfinga sjálfum
sér, — en það getur líka dregist miklu
lengur. Allur er varinn því góður í þessu
efni, og betra að æfa of lítið en of mikið.
Spjótköst — eins og önnur köst — á
jafnan að æfa með báðum höndum.
Myyre, heimsmeistari í spjótkasti.
Til þess að geta vænst góðs árangurs af
spjótkasts-æfingu eru viss skilyrði nauð-
synleg. pau skilyrði, sem nauðsynlegust
eru, eru: liðleiki og snerpa, mikið afl og
iimalengd eru og góðir kostir, en ekki óhjá-
kvæmilegir. Margir eiga þessi skilyrði á
háu stigi án þess nokkuð hafi verið gert
til að þroska þau, en enginn á svo háu, að
ekki standi til bóta. Bezta aðferðin til að
.þroska þessa eiginlegleika alla og í fullu
samræmi, er leikfimin. Yerða því allir
íþróttamenn, sem ná vilja fullum þroska,
að æfa leikfimi bæði sem undirbúning og
jafnframt íþróttaæfingunum, ef mögulegt
er að koma því við.
Ól. Sveinsson.