Þróttur - 20.12.1922, Page 15

Þróttur - 20.12.1922, Page 15
ÞRÓTTUÍi hálfuin hring, eins og hvítur veggur, og báru viS himin, en glampar stóSu af bláhvítum fann- skjölclimum í sól- 'skininu. Vestast sátet Langjökull, sem sýndist renna sam- an viS Hofsjökul. Svo kom Tungna- fellsjökull og loks Yatnajökull, sem teygöi sig til aust- | urs, svo langt sem augað sá. Innan í þessum jökulhring voru sand- grá öræfi hvar sem litið var til austurs og noröurs. Hvergi var gróður eða líf, en ó- tal vötn blikuðu milli sandfjallanna og stórar ár liðuðust eins og ljósir strengir eftir dökkum sléttunum. Langt í burtu glampaði á afarstórt vatn. paö var Þóris- vatn, líklega stærsta vatn á landinu. Milli Tungnafellsjökuls og Vatnajökuls sást eins og svartur blettur. Þar er YonarskarS, og Vatnajökulsvegur, gömul leiö milli Suö- urlands og Norð-Austurlands. Loftið var svo lireint, móðulaust og stilt. að eg hefi aldrei notið svo dásamlegs út- sýnisveöux-s. paö var eins og öll náttúran héldi niðri í sér andanum. Við höfðum skamma stund horft á þessa einkennilegu náttúiux, þegar við sáum móðu bregða yfir alt láglendið. Það var eins og jóreykur, og sýndist svo sem. ótelj- andi tryltum hestum væri riðið yfir sand- inn hvar sem litið var. Sandurinn var á ferli, vakirx af jökulvindum, sem blésu héð- an og handan. Nxr liófst leikur öræfanna. Stórir sand- boðar risu upp og þutu áfram, geystust, stönsuðu, snérust í hring og teygðu svo úr sér eins og umskiftingur, þegar enginn sér 93 Frd Fiskivötunra. [Mynd: riafnlausafjclcigið.] til, þirluðust upp og tóku svo á rás og hurfu í sandmóðuna. Stundum voru öll öræfin eins og stórt sandhaf, með boðaföll- um og öldugangi, en stundum varð alt kyrt í einum svip, eins og hlýtt væri skyndilegri skipun. Bn hamfarirnar byrjuðu aftur jafnskyndilega og þær höfðu stansað og leikurinn hófst á ný. Þessi veðurbreyting kom svo skyndilega að við urðxxm forviða. Við þektum ekki þessi öræfi og vissxxm ekki hversxx fljót þau ei-xx að skifta skapi. Við héldxxm áfram og komumst greiðlega upp á efsta hnúkinn á Loðmundi. Hnúkxxrinn er eins og strokkur á hvolfi, sléttxxr á alla vegu, eins og hann hafi verið hlaðinn úr torfi og grjóti með hinni mestu vandvirkni. Við skildum þar eftir nöfn okkar með kveðju til þeirra, sem næst kæmxx þarna. Af háhnúknum sáum við bæði norður og suður yfir. í norðri og austri var nú ekkert að sjá annað en sandfok og dimm- viðri, en í suðxxr og vestur var útsýnið hið dásamlegasta. Hekla var skamt frá okkur með alla sína leiguliða og xxt frá komxx fjallahnúkar og jökxxlöldxxr í þéttri fylking. Mýrdals og Eyjafjallajökull sýndust vera á næstu grösum, og á milli stóðu xxpp blásvartar toppöldur á sundur- rifnum, lii'ikalegum eldfjöllum. B. Ó.

x

Þróttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þróttur
https://timarit.is/publication/1299

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.