Þróttur - 20.12.1922, Blaðsíða 18

Þróttur - 20.12.1922, Blaðsíða 18
96 Þ R Ö T T U R líka hitt, að við skekkjuna fer nokkuð af framdrifsaflinu forgörðum — til liliðar viö spjótið; kastlínan „brotnar' ‘, og verður hraði líkamans, eftir aS spjótinu hefir ver- ið „skilað“, því meiri en ella, og kastaran- um hættir við að stíga yfir kastmörkin. — Æfiö því mikið beinskeytni. lengra fram, á sama fæti, en að stíga hin- um niður, því oft vantar að eins 1—2 sentímetra. Sé hinum stigið niður, kostar það vanalega talsvert lengra framstig — og þá oft kastið. Meðan verið er að læra kast-aðferSina, eru hin ýmsu atriði æfð hvert í sínu lagi: Mjög er áríðandi, að spjótinu sé slept sem mjúklegast til flugsins, því allur titr- ingur á því á leiðinni dregur úr kastinu; því ríður á, að kappleikjaspjót séu stinn, — æfingaspjót aftur á móti klökk. — Líkaminn fellur áfram á eftir spjótinu, ef rétt er að farið, en eigi má hægri fótur- inn sleppa jörðu, fyr en það er flogið af liendinni; er það mjög áríðandi. I fram- falls-skrefinu, — framstigi hægra fótar — er kastarinn kominn að kastmörkum og verður því að stöðva sig þar; er það oft mjög erfitt, jafnvel þótt notaðir séu gadda skór, — en þeir eru mikil hjálp í öllum atriðum kastsins, eins og í öðrum úti- íþróttum. Ef framstígið í sjálfu skrefinu er ekki nógu langt til þess að jafnvægi náist, er lieldur hoppað aftur svolítið Staðan, atrennan, afturdrátturinn og kastið og ennfremur jafnvægisheimtan. Lærist kastiS í heild sinni betur og fljót- ar með því móti. Óhætt er flestum að kasta 12—15 köst 4—5 daga vikulega; lengdar- köst eru að eins eins leyfð 1 daginn, og því aS eins, að búið sé aS ná góðu lagi og ekk- ert sé aö handleggnum og ekki fleiri en 6—8 köst hvert sinn. Allri æfingu — í spjótkasti sem öðru — verSur að haga mjög eftir einstaklingunum; er að einum þetta og öðrum hitt, sem alt verSur aS lag- ast með æfingunni: Sá, sem skortir á kastlægnina og gengur illa að ná gallalaus- um köstum, þarf að æfa mikiö liðug og létt köst og köst á mark; sá, sem skortir at- rennuhraða, þarf að æfa spretthlaup, — ágætt að æfa með spjótiS í hendinni og!

x

Þróttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þróttur
https://timarit.is/publication/1299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.