Þróttur - 20.12.1922, Blaðsíða 34
112
ÞRÓTTUR
þjálfa sig einliliða veröa menn aS hafa
fyrst þroskað allan líkamann jafnt.
Hér koma nokkrar leiðbeiningar sem
nauðsynlegt er að taka til greina viS sér-
iðkanir sérstaklega en geta þó náö til allra
sem vilja þjálfa sig á réttan hátt og lifa
eftir heilbrigöum hætti. Þeir sem ekki hafa
ástæður til að iðka fimleika geta notað
eftirfarandi æfingar, sem skulu gerðar á
morgnana.
Hálsinn. Snúiö höföinu þrisvar til hvorr-
hliðar með óbrotinni hreyfingu, ekki lin-
lega. Beygja skal síöan höfuðiö fram og
aftiu' jafnoft.
Handleggirnir. Hafið í sitt hvorri hendi
járn sem vega um eitt tvípund og rjettiö
handleggina upp meö höfðinu 25 sinnum,
bæta 5 við á hverri viku þar til náö er 50.
ÚIfliðirnir. Haldið handleggjunum beint
út meö járnin í höndunum og snúiö svo
liöndunum, fyrst fram og svo aftur um
15 sek.
Fingurnir. Menn standa á liöndum og
tám með fæturnar beint út, hækka sig svo
upp á fingurgómana og beyja sig tvisvar
niður að gólfi og því oftar sem lengur er
æft. Líkaminn á aö vera beinn og falla svo
langt niður sem liægt er án þess aö koma
við gólfið.
Axlirnar. Sveifla skal handleggjunum
í hring öðrum eöa báðum í senn, eða sveifla
þeim báðum fram og aftur í liæð viö axl-
irnar, minst 15 sek.
Hryggurinn. Leggist á magann á gólfið,
styðjið höndunum á mjaðmir og rísið svo
upp eins langt og þér getið afturábak. Þetta
endurtakist 5 sinnum. Standið upp, lyftið
upp handleggjunum og beygið yður, með
bein kné, fram og aftur, 5 sinnum.
Siðurnar. Beygja og snúningur til hægri
og vinstri með uppréttum handleggjum.
Þrisvar til hvorrar hliöar.
Maginn. a) Leggist á bakið, lyftið upp
fótunum og sveiflið þeim í hring sitt til
hvorrar hliðar nokkrum sinnum.
b) Leggist á gólfið, festiö fæturna og'
rísið svo upp með uppréttum handleggj-
um og beinu baki þar til þér komist í sitj-
andi stillingu, 5 sinnum.
Lœrin. Standið á öðrum fæti, réttiö hinn
fram og beygið 5 sinnum fótinn sem þér
standið í.
Leggir og fœtur. Til þess er bezt band-
hopp (sippa) og dans.
Mörgum mun sýnast að æfingar þessar
taki langan tíma, en svo er ekki. Þegar
menn eru orðnir þeim vanir er liægt að
gera þær á skömmum tíma og röðina má
muna þannig, aö byrjað er á hálsinuin
haldið niður eftir og endað á fótunum.
Farið hœgt af stað.
Þó að menn hafi þjálfað sig að ein-
hverju leyti að vetrinum og lialdið sér upp
í vindinn, er nauðsynlegt aö byrja úti-
íþróttirnar varlega að vorinu. Ilér á landi
hagar nú svo til að sumarið kemur venju-
lega seint og hrekkur skamt. Menn ættu
því að venja sig af að bíða til sumars með
liti-íþróttir, svo sem hlaup og köst, heldur
iðka þaö aö vetrinum. Það er ekki miklum
erfiðleikiun bundið, sérstaklega með hlaup,
en það verður alveg nauðsynlegt að vetur-
inn sé notaður hér líka ekki síður en sum-
arið, ef nokkur árangur á að fást.
Þjálfið yður varlega í fyrstu. Hlaupið
ekki í fyrsta skifti svo að þér verðið ör-
magna. Byrjið hægt og rólega en aukið erf-
iðið eftir því sem þér æfið lengur og þér
finnið yður hæfan til þess. Byrjið fljót-
lega að hlaupa eftir sérstökum reglum.
Þjálfið yður með alúð, hafið ákveðnar
stundir til æfinga og látið enga falla úr.
Það festir bæði líkamsþrekið og skapið.