Gerðir kirkjuþings - 01.01.2016, Qupperneq 19

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2016, Qupperneq 19
19 Kynning á siðareglum þjóðkirkjunnar og heilræðum fyrir þau sem starfa með börnum og unglingum 1. mál varðaði siðareglur þjóðkirkjunnar og mikilvægi þess að fara yfir siðareglur kirkjunnar og heilræði með launuðu og ólaunuðu starfsfólki sóknanna. Söfnuðir ættu að halda slíka fundi í upphafi hvers starfsárs. Lagt var til að sóknarprestur eða fagaðili sæi um kynningu og fræðslu tengda siðareglunum. Siðareglur og heilræði fyrir fólk sem starfar má börnum og unglingum má nálgast á heimasíðu ÆSKR, ÆSKÞ og á kirkjan.is. Staða æskulýðsfulltrúa á biskupsstofu endurvakin Kirkjuþing unga fólksins 2016 ályktaði um að endurvekja stöðu æskulýðsfulltrúa þjóðkirkjunnar. Sú staðreynd að nú væri enginn starfandi æskulýðsfulltrúi á biskupsstofu gæfi til kynna að æskulýðsstarf væri ekki mikilvægt innan kirkjunnar og það væri stór galli á starfi hennar. Æskulýðsfulltrúi á biskupsstofu væri formlegur málsvari barna- og æskulýðsstarfs þjóðkirkjunnar og hlutverk hans væri m.a. að fara yfir siðareglurnar og ítreka skimun leiðtoga í söfnuðum. Meðferð þingmála á kirkjuþingi unga fólksins Lagðar voru til breytingar á starfsreglum kirkjuþings unga fólksins til að auðvelda kirkjuþingsfulltrúum að fylgjast með meðferð þingmála að þingdegi loknum og til að tryggja að málin fengju eðlilega málsmeðferð en enduðu ekki í skúffu og gleymdust. Þingmál og þingskjöl skyldu vera aðgengileg öllum fulltrúum á netsvæði og þar væri einnig hægt að sjá hvar í kerfinu málið væri statt. Fjórum vikum fyrir settan þingdag ættu kirkju þings fulltrúar að fá upplýsingar um af greiðslu mála frá fyrra ári. Þá kæmi forseti kirkjuráðs á þingdegi til að gera grein fyrir afgreiðslu mála fyrra árs og svara fyrirspurnum. Þá væri hægt að leggja mál fyrir þingið aftur teldist það ekki hafa fengið fullnægjandi afgreiðslu. Þings ályktunar tillagan innihaldi greinar góða lýsingu á því sem betur hefði mátt fara í meðferð málsins og tillögur til breytinga. Fræðslustefna þjóðkirkjunnar. Kirkjuþing unga fólksins kallaði eftir því að kirkjan fylgdi eftir sínum eigin samþykktum og stæði vörð um æskulýðsstarf í söfnuðum. Þau hvöttu biskup Íslands og kirkjuráð til að tryggja að samþykktri fræðslustefnu kirkjuþings 2005 væri fylgt eftir og vísuðu í 1. kafla fræðslustefnu þjóðkirkjunnar, 4. lið sem fjallar um starf með börnum og unglingum, en þar er tilgreint meðal verkefna sé að: „Stuðla að samfélagi fyrir unglinga í kirkjunni s.s. með æskulýðsfélagi.“ og: „Búa ungt fólk undir virka þátttöku í safnaðarstarfi.“ Tvær sóknir í Hafnarfirði og ein í Reykjavík hafa lagt niður unglingastarf sitt til viðbótar við þær kirkjur sem enn lengur hafa vanrækt starf sitt á þessu sviði án þess að brugðist hafi verið við eða gerðar við það alvarlegar athugasemdir. Það er óviðunandi að stórar sóknir komist upp með það að sleppa þessum mikilvæga hlekk í þroskaferli trúarinnar til að spara nokkra tíkalla.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.