Gerðir kirkjuþings - 01.01.2016, Side 23
23
prestsembætta og rekstrarkostnaðar. Að lokum er samþykkt beiðni sálmabókarnefndar
um að færa ónýtta fjárheimild yfir á næsta ár.
Á (2)42. fundi er samþykkt að fresta afgreiðslu fjárhagsáætlana biskupsstofu,
kirkjumálasjóðs og kristnisjóðs fyrir árið 2016 til næsta fundar og jafnframt er samþykkt
að fjármálahópur kirkjuráðs rýni og undirbúi afgreiðslu fjárhagsáætlana. Þá er samþykkt
endurnýjun samnings milli kirkjuráðs og kirkjugarðaráðs varðandi mælingar, ráðgjöf og
kortagerð.
Á (2)43. fundi er samþykkt sú breyting að gerð verði sérstök rekstraráætlun fyrir
kirkjumálasjóð, kristnisjóð og biskupsstofu fyrir árið 2016 þar eð rekstur biskupsstofu
og styrkveitingar sjóðanna verði nú bókfærð á hvert viðfang. Kirkjuráð samþykkti síðan
framlagðar rekstraráætlanir þessara aðila. Þá samþykkti kirkjuráð ársreikning kristnisjóðs
2015. Ráðið samþykkti síðan að veita Skógarmönnum KFUM vegna byggingar í Vatnaskógi
styrk að fjárhæð 5 m.kr. og að veita kirkjumiðstöðinni á Eiðum styrk að fjárhæð 2,4 m.kr.
úr Jöfnunarsjóði sókna. Að lokum var samþykkt að fela framkvæmdastjóra að skoða lög
um Hinn almenna kirkjusjóð með það fyrir augum að finna sjóðnum ný verkefni.
Á (2)46. fundi voru tekin fyrir þrjú mál á sviði fjármála en engin endanleg afgreiðsla fór
fram, tveimur málum var vísað til næsta fundar.
Á (2)48. fundi voru teknar fyrir og samþykktar endurskoðaðar rekstraráætlanir
biskupsstofu og kirkjumálasjóðs. Bókað er að kirkjuráð samþykki að kr. 52.218.829,
- verði bakfærðar frá biskupsstofu yfir á kirkjumálsjóð. Um þann hluta styrks vegna
hagræðingarkröfu sé að ræða sem ógreiddur var 31.12.2015. Heildarstyrkurinn hafi
verið áætlaður kr. 124.500.000, - skv. fjárhagsáætlun fyrir árið 2015. Þá segir að kirkjuráð
samþykki að kr. 72.281.171.-, verði endurgreiddar kirkjumálasjóði af reikningi biskupsstofu,
en það sé sá hluti styrksins sem búið hafi verið að greiða á árinu 2015. Að lokum segir
undir þessum lið að kirkjuráð samþykki að veita heimild til að nýta ónýtta fjárheimild
frá síðasta ári á yfirstandandi ári að fjárhæð kr. 222.216.- til að fjármagna þjónustu við
tálknmálstúlkun. Að lokum eru tekin fyrir tvö mál og afgreidd með endanlegri samþykkt.
Lögð er fram beiðni þjóðmálanefndar um aukna fjárveitingu vegna yfirstandandi árs og
samþykkt að veita þjóðmálanefnd viðbótarfjárveitingu úr kirkjumálasjóði að fjárhæð kr.
500.000.- og verði því í heild að fjárhæð kr. 800.000.- vegna yfirstandandi árs. Að síðustu
er lögð fram beiðni nefndar um fimm alda minningu siðbótarinnar um að fá að nýta
ónýtta fjárheimild vegna ársins 2015 á yfirstandandi ári. Kirkjuráð samþykkti beiðnina.
Á (2)49. fundi eru lagðir fram og samþykktir ársreikningar kirkjumálasjóðs og
þjóðkirkjunnar fyrir árið 2014.
Á (2)50. fundi er fundargerð fjármálahóps kirkjuráðs frá 6. maí sl. lögð fram og kynnt.
Þá er sam þykkt að fela fjár mála hópi kirkju ráðs að undirbúa tillögur að skipan ráð gjafaráðs
um fjármál til að styðja við söfnuði, kirkjuráð og biskupsstofu í samskiptum sínum við
fjár mála stofnanir. Þá samþykkir kirkjuráð að veita fjárheimild að fjárhæð 1 m.kr. úr
kirkju mála sjóði til Prestastefnu 2016 til viðbótar við þær 3 m.kr. sem áður höfðu verið
sam þykktar í kirkjuráði. Síðan er sam þykkt að kostnaðar hlut deild kirkju málasjóðs og
Jöfnunarsjóðs til biskups stofu samkvæmt fjárhagsáætlun 2016 verði greidd biskupsstofu
mánaðarlega. Kirkjuráð telur mikilvægt að slíkt byggi á sjóðs streymis áætlun. Að lokum