Gerðir kirkjuþings - 01.01.2016, Page 25

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2016, Page 25
25 sam einingu sókna með því m.a. að kanna möguleika þess að jöfnunarsjóður komi með auknum hætti að sameiningu sóknanna með fjárhagslegum stuðningi. Að lokum var lagt fram erindi frá formanni stjórnar Guð brands stofnunar, Solveigu Láru Guðmunds dóttur vígslubiskupi, varðandi styrkveitingu og samþykkt að vísa erindinu til gerðar fjár hags- áætlunar kirkjumálasjóðs fyrir árið 2017. Á (2)56. fundi var lögð fram fundargerð fjármálahóps. Tekinn var fyrir 3. liður, Jöfnunarsjóður, umsóknir. Gerð var ein breyting á tillögu fjármálahóps, framlag verði hækkað um 1.m.kr. Erindi kjara mála full trúa PÍ varðandi stofnun starfshóps til að fara yfir embættis kostnaði presta og rekstrarform prestsembætta. Kirkjuráð ályktaði að láta athuga með stofnun lögaðila í formi samlags til að geta nýtt hagkvæmni stærðarinnar við innkaup sem prestum og sóknum yrði boðið að taka þátt í. Þá var tekið fyrir bréf til ríkis valdsins varðandi efndir á kirkjujarðasamkomulaginu og samkomulag um leiðréttingu á sóknargjöldum. Samþykkt var að leggja til við kirkjuþing að kröfugerð um efndir yrði ítrekuð við ráðherrana og jafnframt verði hafinn undirbúningur að viðbrögðum þjóðkirkjunnar ef árangur verði ekki af henni. Að lokum voru lagðir fram fram ársreikningar þjóðkirkjunnar og kirkjumálasjóðs 2015, reikningur þjóðkirkjunnar var kynntur og reikningur kirkjumálasjóðs samþykktur og áritaður. Önnur verkefni en þau er varða fjármál og fasteignir Um önnur mál en þau er varða fjármál eða fasteignir verður aðeins fjallað hér þegar um er að ræða ákvarðanir ráðsins eða skuldbindandi samþykktir. Á þessu er þó gerð sú undantekning að óhjákvæmilegt er að taka til umfjöllunar þær deilur sem staðið hafa innan kirkjuráðs um valdmörk milli þess og biskupsembættisins og hvernig þær voru leystar með skipan þriggja manna nefndar lögfræðinga til að semja álitsgerð um álitaefnið. Með bréfi kirkjuráðs 20. nóvember 2015 voru Gestur Jónsson hæstaréttarlögmaður, Pétur Kr. Hafstein fyrrum hæstaréttardómari og Trausti Fannar Valsson dósent við lagadeild Háskóla Íslands fengnir til að greina, skýra og gefa álit á ábyrgð biskups Íslands annars vegar og kirkjuráðs hins vegar þannig að glögglega mætti greina á milli ábyrgðar, vald- og verksviðs hvors aðila um sig. Nefndin skilaði álitsgerð sinni 12. febrúar sl. Á (2)45. fundi er bókað í kjölfar upplýsingafundar um álitsgerðina að kirkjuráð muni fjalla um hana á næsta kirkjuráðsfundi sem hafi verið ákveðinn 2. mars nk. Kirkjuráð þakkar lögfræðingunum þremur, Gesti Jónssyni hæstaréttarlögmanni, Pétri Kr. Hafstein fyrrum hæstaréttardómara og Trausta Fannari Valssyni dósent við lagadeild Háskóla Íslands góð störf. Á (2)46. fundi er bókað að kirkjuráð samþykki að fela framkvæmdastjóra að senda kirkjuþingsfulltrúum álitsgerðina og birta hana á vef kirkjunnar. Á (2)48. fundi er álitsgerðin enn til umfjöllunar og þar er bókað um breytingar á starfsmannamálum í kjölfar álitsgerðarinnar. Að lokum er álitsgerðin síðan til umfjöllunar á (2)54. fundi og þar samþykkt að framkvæmdastjóri kirkjuráðs vinni að samantekt úr álitsgerðinni sem lögð verði fyrir næsta fund kirkjuráðs.

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.