Gerðir kirkjuþings - 01.01.2016, Blaðsíða 30

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2016, Blaðsíða 30
30 31 2. mál kirkjuþings 2016 Flutt af kirkjuráði Skýrsla um fjármál þjóðkirkjunnar Fjárlög næsta árs og samanburður Í skýrslu þessari er hefðbundið að fjalla fyrst um tekjur þjóðkirkjunnar í frumvarpi til komandi fjárlaga og bera saman við gildandi fjárlög. Nú er hins vegar svo sem kunnugt er uppi sú óvenjulega staða að frumvarp til fjárlaga næsta árs hefur ekki verið lagt fram. Þetta veldur auðvitað ákveðinni óvissu en eftir sem áður er ljóst hverjar grunnforsendur þær eru sem hefðbundið er að ganga út frá varðandi framreikning á gildandi fjárlagaramma. Þar er miðað við þjóðhagsspá Hagstofu Íslands. Hún gerir ráð fyrir að vísitala neysluverðs muni hækka milli áranna 2016 og 2017 um 3,9%. Það er því sú grunnforsenda sem miðað er við varðandi verðlagsbreytingar fjárlaganna milli ára á öllum rekstrartölum nema launum. Launavísitalan mælir þær breytingar en nú háttar svo til að kjarasamningar og úrskurðir Kjararáðs eru að baki með umtalsverðum launabreytingum og ekki gert ráð fyrir neinum launabreytingum á næsta ári. Taflan á næstu bls. sýnir væntanlegt fjárlagafrumvarp 2017 í samanburði við gildandi fjárlagaramma og ramma síðasta árs. Hér er sú breyting á hefðbundinni töflu í þessari skýrslu að á síðasta ári var bætt við fjárlagarammann framlagi með fjáraukalögum, alls 370 m.kr. og rétt þykir að sýna endanlegan fjárlagaramma þess árs að teknu tilliti til þessa ásamt því að sýna þá fjárhæð sem enn þarf að koma til leiðréttingar svo staðið sé að fullu við kirkjujarðasamkomulagið. Þá er í töflunni sýndur rammi gildandi fjárlaga að teknu tilliti til sams konar breytinga sem gerð hefur verið krafa um að gerðar verði á þessu ári til leiðréttingar enda um samningsbundnar greiðslur að ræða vegna eignasölu kirkjunnar til ríkisins. Áætlunin um sóknargjöldin byggir á að staðið verði við samkomulagið um 165 m.kr. árlega hækkun á þeim á árunum 2015 - 2018. og þau síðan verðbætt. Lykilstærðir í töflunni eru eftirfarandi: Fjárveitingar fjárlaga 2015 til þjóðkirkjunnar voru 1.507,6 m.kr. Við þær bættust með fjáraukalögum 370 m.kr. og með millifærðum launabótum 64,7 m.kr. Heildarfjárveitingarnar voru því 1.942,3 m.kr. Til að uppfylla kirkjujarðasamkomulagið að fullu vantar enn 60,4 m.kr. Þá vantar 45,7 m.kr. í kristnisjóð og skýrist sú fjárhæð einkum af því að 370 m.kr. aukafjárveitingin var öll sett á biskupsembættið en hefði að hluta til átt að renna til kristnisjóðs. Samtals á því eftir að leiðrétta fjárveitingar síðasta árs um 106,1 m.kr. Sömu leiðréttingartölur fyrir yfirstandandi ár eru 444,1 m.kr. 394,6 m.kr. vantar til biskupsembættisins og 49,5 m.kr. vantar í kristnisjóð. Samkvæmt reiknilíkani því sem notað er til að ákvarða fjárveitingar samkvæmt kirkjujarðasamkomulaginu eiga fjárveitingar næsta árs til biskupsembættisins að vera 2.250,5 m.kr. og fjárveitingar kristnisjóðs eiga að vera 129,5 m.kr. Sóknargjöld til þjóðkirkjunnar og til annarra trúfélaga eru á gildandi fjárlögum 2.453,8 m.kr. Sé sú fjárhæð leiðrétt samkvæmt samkomulaginu og síðan framreiknuð með þjóðhagspá Hagstofunnar skal hún á næsta ári (árið 2017) vera 2.689 m.kr. Ef gjaldendur sóknargjalda eru 225.507
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Gerðir kirkjuþings

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.