Gerðir kirkjuþings - 01.01.2016, Síða 32
32 33
06-705 Kirkjumálasjóður
Endurskoðaður ársreikningur kirkjumálasjóðs barst fyrir skömmu og var hann tekinn
fyrir á síðasta fundi kirkjuráðs. Samkvæmt rekstrarreikningi voru tekjur 513,6 m.kr.
Gjöld voru 518,1 m.kr. og því tekjuhalli fyrir fjármunatekjur og fjármagnsgjöld 4,5 m.kr.
Fjármagnsgjöld að frádregnum fjármunatekjum voru 20,2 m.kr. og tekjuhalli ársins því
24,6 m.kr.
Samkvæmt efnahagsreikningi voru eignir 3.508,2 m.kr. Varanlegir rekstrarfjármunir
voru 3.236,9 m.kr., áhættufjármunir og langtímakröfur voru 46,9 m.kr. og veltufjármunir
voru 224,3 m.kr. sem skiptist þannig að skammtímakröfur voru 103,4 m.kr. krafa á
ríkissjóð var 22,5 m.kr. og handbært fé var 98,4 m.kr. Skuldir voru alls 328,9 m.kr. sem
skiptust þannig að langtímaskuldir voru 287,5 m.kr. skammtímaskuldir voru 33,3 m.kr.
og næsta árs afborganir langtímalána voru 8 m.kr. Eigið fé í ársbyrjun var 5.741,7 m.kr.
Að teknu tilliti til rekstrarhalla ársins og endurmats eigna er eigið fé í árslok 3.179,3 m.kr.