Gerðir kirkjuþings - 01.01.2016, Page 49
49
6. gr.
■Biskupsstofa annast lögbundin verkefni er varða kirkjuna á sviði stjórnsýslu- og fjármála.
□Biskupsstofa gerir árlega starfs- og fjárhagsáætlun fyrir stofnunina sem skal hljóta
staðfestingu kirkjuráðs og kynnt kirkjuþingi.
□Biskupsstofa annast vörslu og reikningshald sjóða samkvæmt nánari fyrirmælum í
lögum svo og annarra sjóða þar sem svo er mælt fyrir um í skipulagsskrám eða öðrum
heimildum.
7. gr.
■Biskupsstofa annast undirbúning kirkjuþings unga fólksins.
Starfsmannahald
8. gr.
■Biskup skipar presta og annast biskupsstofa starfsmannamál þeirra, þar með talið
launagreiðslur, greiðslur embættiskostnaðar og önnur starfsmannamál.
□Biskup ræður starfsmenn á biskupsstofu þar á meðal biskupsritara, skrifstofustjóra,
forstöðumenn sviða, fulltrúa og aðra starfsmenn og setur þeim starfslýsingu.
□Biskupsstofa hefur umsýslu með námsleyfum presta og starfsmanna biskupsstofu.
□Biskupsstofa skipuleggur handleiðslu presta og djákna í samvinnu við Fjölskylduþjónustu
kirkjunnar.
Starfsþjálfun
9. gr.
■Biskupsstofa skipuleggur og hefur umsýslu með starfsþjálfun guðfræðikandídata og
djáknanema og hefur samstarf um það við Háskóla Íslands eða aðra viðurkennda háskóla
eða guðfræðiskóla.
Gildistaka
10. gr.
■Starfsreglur þessar, sem settar eru skv. heimild í 59. gr. laga um stöðu stjórn og starfshætti
þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, öðlast gildi 1. janúar 2017.