Jökull - 01.12.2006, Blaðsíða 89
Jöklabreytingar 2004–2005
Annars valda geitungastungur, þó sárar séu, litlum
eftirköstum eða bólgu. Miklu verri í því tilliti eru aðrir
nýbúar hér sem er millistærð af mýflugum, en stunga
þeirra hefur í för með sér stóran, vessandi bólguhnúð
sem heldur oft velli í allt að viku með miklum óþæg-
indum og kláða. Fyrst fór að bera á þessum ófögnuði
fyrir svo sem 4 árum og er nú svo komið að höfuð-
fat með flugnaneti er að verða nauðsyn á heitustu og
lognkyrrustu sumardögum ásamt því að sýna þessum
vargi helst hvergi bert hold.
Tófa og minkur færast hér jafnt og þétt í aukana og
er næstum að segja sama hvað drepið er, tvö og þrjú
kvikindi virðast spretta í stað hvers sem fellur. Enda
ekki á góðu von þar sem ríkisrekin varguppeldisstöð,
Hornstrandafriðland, er hér á næstu grösum.
Fuglalíf er hér þó enn með miklum blóma að
sumrinu og rjúpan aftur að þokast í þá átt að verða
heyranleg í vorhljómkviðunni. En þegar haustar og
Hornstrandarefurinn streymir að norðan á hún bágt,
enda elt allar nætur.“
Reykjarfjarðarjökull var mældur í júlí í þetta sinn. Í
fyrra var mælingamerki nr. 200 fært 200 m í átt að
merki nr. 199 þar sem hætta var á að jökullinn gengi
yfir merkið. Enn heldur jökullinn áfram framgöngu
sinni.
Norðurlandsjöklar
Nýfallinn snjór var við sporð Gljúfurárjökuls. Mæl-
ing misfórst. Sveinn Brynjólfsson endurtók mælingu
við Búrfellsjökul sem hefur verið að hlaupa fram síð-
an 2001. Þessar mælingar sýna að blásporðurinn hop-
ar nú á ný en jökullinn þenst lítið eitt út til hliðanna.
Grímslandsjökull var ómælanlegur vegna snjóa.
Langjökull
Geitlandsjökull í Þjófakróki – Jökullinn er allhreinn
og sléttur á þessum slóðum þegar komið er 100 m inn
fyrir jaðarinn.
Kerlingarfjöll
Loðmundarjökull eystri – Jökulsporðurinn liggur
mjög rytjulegur undir snjó í þröngu gili og er að ét-
ast upp. Mælingin gefur að hann hafi gengið fram en
mælingamenn telja að þar sé um að ræða skilgreining-
arvanda á sporðinum milli ára og að jökullinn hafi alls
ekki gengið fram. Mæling felld niður vegna óvissu.
Hofsjökull
Blágnípujökull – Lónið hefur enn stækkað mikið.
Mælt að íshólum, sem standa á sporðinum, þöktum
urð (1. mynd). Mælingalínu þess vegna hliðrað. Tölu-
verð brennisteinsfýla er af aðal vatnsrásinni undan
jöklinum en hún er um 150 m austan mælilínu. Fannst
stór blágrýtissteinn með vörðu ofan á. Gæti verið
merki Jóns Eyþórssonar (M2) frá 1933.
Nauthagajökull – Leifi Jónssyni þykir jökullinn bera
öll merki þess að um heildarhrörnun sé að ræða.
Múlajökull – Síendurtekin flóð á vestasta mælinga-
staðnum geta bent til þess, segir Leifur, að lón ofan
Hjartafells tæmist ítrekað niður með Múlajökli. Fyr-
ir miðjum jöklinum komu upp malarhaugar svo sem
leifar af umturnuðum jökulgörðum. Mælingu á aust-
asta mælistað var sleppt vegna ófærðar og veðurs.
Mælingastaðir við Sátujökul fóru undir snjó áður en
náðist að mæla.
EYJAFJALLAJÖKULL
Gífurlegar breytingar hafa orðið á Gígjökli á undan-
förnum árum. Nú hafði jökulsporðurinn hopað um
hátt á fjórða hundrað metra, að vísu á tveimur ár-
um, en svo langt hafa einungis stærstu jöklar lands-
ins hrokkið til baka á svo skömmum tíma. Þetta er
merki þess að jökullinn neðantil er nánast hættur að
hníga fram vegna þess að afkoma hans hið efra hrekk-
ur ekki til. Um 10 m lag af ís bráðnar ofan af jökul-
sporðinum á hverju ári og þannig hopar hann í stórum
stökkum þegar ekki berst efni ofan að. Svipað gerð-
ist eftir gosið í Eyjafjallajökli 1821–1823 en þá voru
aðrar ástæður fyrir því að tók fyrir rennsli íss ofan úr
gígnum. Svo heppilega vill til að Theodór hefur yfir
góðum mælitækjum að ráða til mæla yfir lónið.
Steinsholtsjökull – Harðsnúið lið fjalla- og ferða-
manna undir forustu Ragnars Th. Sigurðssonar ljós-
myndara hefur tekið að sér mælingar hér og er það
mjög forvitnileg viðbót til samanburðar við Gígjökul.
MÝRDALSJÖKULL
Sólheimajökull er einn af best mældu jöklunum. Að-
eins hafa fallið úr 3 ár síðan 1930. Hann er því kjörinn
til að bera saman loftslag og viðbrögð jökulsins eins
og þau koma fyrir í mælingunum. Hér á landi hefur
sumarhitinn mest áhrif á breytilega afkomu jökla. Það
verður því fyrst fyrir að setja saman á línurit árlegar
JÖKULL No. 56, 2006 87