Jökull - 01.12.2006, Síða 105
Vorferð Jöklarannsóknafélags Íslands 2006
hafi, en þó er langt í land með að hún hverfi. Enn
koma gjóskuhryggir upp úr vetrarsnjónum á vorin og
lítill sigketill er í miðri dældinni, þar sem megingíg-
urinn var 1996.
8. Ísskrið inn að Gjálp var mælt nú sem undanfarin ár
til að kanna hitaástand Gjálparfjallsins.
9. Mælingar voru gerðar á ísskriði inn að Skaftárkötl-
um til að kanna hegðun þeirra og samspil ísskriðs og
jökulhlaupa.
10. Veðurstöð var sett upp á Bárðarbungu eins og und-
anfarin ár. Er það verk liður í umfangsmiklum mæl-
ingum Jarðvísindastofnunar og Landsvirkjunar á af-
komu og samspili hennar við veðurfar.
11. Gufurafstöðvar á Grímsfjalli fengu sitt viðhald
eins og venja er í vorferðum.
12. Regnmælir var settur upp á Grímsfjalli vestan við
gamla skála.
13. Áformað var að bera fúavörn á húsin á Grímsfjalli
og í Kverkfjöllum. Ekki gekk þetta eftir því aldrei
þornaði nóg til verksins. Í rannsóknarferð sem farin
var um mánaðarmótin júlí-ágúst tókst hins vegar að
bera á húsin á Grímsfjalli
14. Sama dag og leiðangurinn hélt af jökli fór þriggja
manna hópur með gas í skálann í Esjufjöllum, á vél-
sleðum um Hermannaskarð. Gekk sú ferð ágætlega
en ekki hefði miklu mátt muna um færið, því snjó var
óðum að leysa milli Mávabyggða og Esjufjalla.
Þátttakendur í þessari vorferð voru 24 en til við-
bótar var tvennt með fyrri helgina og þrjú urðu sam-
ferða Skaftárkatlaförum úr Reykjavík og bættust í
hópinn á miðvikudeginum. Auk snjóbíls HSSR voru
Ford bíll JÖRFÍ og fleiri bílar með í för auk vélsleða.
Fararstjóri var Magnús Tumi Guðmundsson en Sjöfn
Sigsteinsdóttir sá um matarbirgðir.
Föstudaginn 9. júní hélt hópurinn af jökli eftir þrif
og annan frágang á Grímsfjalli. Þegar kom fram á
daginn gerði þoku og súld en niðurferðin gekk þó
greiðlega. Í Jökulheimum var slegið upp veislu um
kvöldið. Grillmeistarar sýndu sínar bestu hliðar og í
árlegri danskeppni var vetrarrykið lamið úr pallinum
við nýja skála. Laugardaginn 10. júní kom leiðang-
urinn til byggða eftir árangursríka og slysalausa ferð.
Ungt og kraftmikið fólk fjölmennti í ferðina og heldur
sú þróun vonandi áfram á næstu árum. Eins og verið
hefur um langan aldur lagði Landsvirkjun fram mik-
ilvægan skerf til þessarar ferðar með því að leggja til
farartæki til þungaflutninga. Einnig studdi Vegagerðin
ferðina með styrk til eldsneytiskaupa.
Þátttakendur
Allan tímann: Alexander Jarosch, Ágúst Hálfdáns-
son, Björn Oddsson, Erik Sturkell, Finnur Páls-
son, Gro Birkefeldt, Hálfdán Ágústsson, Hlín Finns-
dóttir, Hlynur Skagfjörð, Hrafnhildur Hannesdóttir,
Jón Kjartansson, Jóhanna Katrín Þórhallsdóttir, Jós-
ef Hólmjárn, Karl Gunnarsson, Katrín Auðunardóttir,
Magnús Þór Karlsson, Magnús Tumi Guðmundsson,
Sjöfn Sigsteinsdóttir, Sólveig Kristjánsdóttir, Svan-
björg Haraldsdóttir, Sveinbjörn Steinþórsson, Val-
gerður Jóhannsdóttir og Þóra Karlsdóttir.
Fyrri helgina: Kristinn Magnússon og Sigurlína Þóra
Héðinsdóttir.
Frá miðvikudegi: Anna Eiríksdóttir, Anna Líndal og
Halldór Fannar.
Summary
The annual spring expedition of the Glaciological So-
ciety to Vatnajökull took place on June 2–10 2006.
As usual the group traversed the glacier from the re-
search station at Jökulheimar at the western margin
of the glacier to Grímsvötn. The research station at
Grímsfjall was the main base of the expedition in
which 29 people took part, mostly volunteers. The
main research effort was on geophysical surveying of
the Grímsvötn crater from 2004 and extensive glacio-
logical work in Grímsvötn, Gjálp and Skaftárkatlar.
This included mass-balance measurements, ice sur-
face profiling with GPS, establishment of an exten-
sive network of stakes for ice flow measurements
and servicing of automatic weather stations. Other
work included geodetic GPS surveying for monitor-
ing of magma accumulation at Grímsvötn and iso-
static movements related to shrinkage of Vatnajökull.
Finally, the expedition provided logistical support for
hot water drilling into the subglacial lake at vestari
Skaftárketill. The drilling group arrived on June 7,
stayed at the cauldron for a week and managed to fin-
ish the drilling, obtain samples and leave in place sen-
sors for monitoring of lake pressure and temperature.
JÖKULL No. 56, 2006 103