Breiðfirðingur - 01.04.1988, Page 120
118
BREIÐFIRÐINGUR
Pann 24. júní vorum við mætt úti á flugvelli. Par biðum
við nokkuð lengi eftir að farangur okkur yrði tekinn í vél
Loftleiða. Aldimmt var orðið og óþolandi hitasvækja. Þegar
inn í flugvélina kom var engu minni hiti, en eftir að vélin
komst í loftið fór þetta að lagast. Eftir hálfs annars tíma flug
lenti vélin á Nýfundnalandi. Sat hún þarna alla nóttina
sökum þess að ekki var hægt að koma öðrum hreyflinum í
gang. Lent hafði verið á herflugvelli og engum leyft að fara
út úr vélinni. Þegar bjart var orðið var hægt að koma öllu í
lag og vélin hóf sig upp í loftið. Flogið var yfir Grænland í
glaða sólskini og sáust firðir fullir af ís og land þakið snjó.
Vélin lenti á Keflavíkurvelli eftir hádegi 25. júní. Þegar
við komum að flugstöðinni var þar fyrir fjöldi ættingja okkar
að taka á móti okkur. Fimm systkini mín og makar þeirra,
tvær systur Borghildar og fleira af hennar frændfólki voru
þar til að bjóða okkur velkomin. Oddný systir hennar bauð
okkur að búa hjá sér þar til við fengjum okkar eigið hús-
næði. Systkini og frændfólk hélt okkur svo heimkomuveislu
á hótel Sögu þetta sama kvöld.
Það var vissulega yndislegt að koma heim eftir 40 ára úti-
vist og mæta svo miklum hlýhug, sem raun varð á. Við
bjuggum hjá Oddnýju mágkonu í 3 mánuði þar til við
keyptum okkar íbúð og búslóð var komin.
Við festum kaup á íbúð á Laugateig 12 í Reykjavík og
fluttum þar inn 15 október um haustið. Ég hafði ekki leitað
eftir vinnu enn þá og þurfti tíma til að lagfæra ýmislegt í
íbúðinni. En þar sem ég var við góða heilsu var ekki ástæða
til að setjast í helgan stein, enda nauðsynlegt fyrir mig að fá
vinnu og afla tekna, en samt leið svo veturinn að ég fann
ekki vinnu sem hentaði mér. Vorið 1967 bauðst mér starf
sem sölumaður í húsgagnaversluninni Víði á Laugavegi 166.
Var það Páll Magnússon lögfræðingur, sem var mér hjálp-
legur að fá þetta starf. Þetta hentaði mér vel, þar sem ég
hafði verið sölumaður í 24 ár í Ameríku. - Páll Magnússon
er gifíur Sigríði Pétursdóttur, systur Borghildar konu
minnar. - Guðmundur L. Þ. Guðmundsson, er var þá sölu-