Stjarnan - 01.01.1920, Síða 15

Stjarnan - 01.01.1920, Síða 15
STJARNAN 15 STJARNAN | í kemur út fjórum sinnum á ári. Ctgefendur: The Western CanadianConferenee of S.ll.A. I Stjarnan kostar 75 cents um árið íCanada, Bandaríkjunum og á Islandi. i (Borgist fyrirfram). Ritstjóri og Ráðsmaður: DAVÍÐ GUÐBRANDSSON. I í Skrifstofa: 819-21 Somerset Block, Winnipeg, Manitoba, Canada. Talsími Main 4934. Lesið biblíuna pessi bók inniheldur hugarfar Guðs, ástand mannsins, veg hjálpræðisins, dóm syndaranna og sælu hinna hólpnu. Kenningar hennar eru heilagar, boðorð hennar skuldbindandi, sögur hennar eru sannar og ákvörðun hennar órjúfanleg. Lestu hana til þess að verða vitur, trúðu henni til þess að þú getir verið ugglaus og breyttu eftir henni til þess að verða heilagur. 1 henni er ljós tt-il að lýsa þér, fæða til að næra þig og huggun til að uppörva þig. Hún er landabréf ferða- mannsins, stafur pílagrímsins, áttaviti siglingamannsins, sverð hermannsins og hún er lundernismælikvarði hins kristna í lienni er Paradís endurreist, himininn opnaður og hliðum hegningarstaðarins lokað. Ki-istur er hinn skínandi mið- depill hennar, ráð hennar eru rituð oss til góðs. og tilgangur hennar er að sýna oss dýrð Guðs. Hún ætti að fylla huga vorn, stjórna hjartans hugsunum og stýra gangi vorum. Lestu hana í hægðum þínum, lestu hana oft með inniiegri bæn. Hún er auðug náma, skrautlegur aldingarður, ánægjulegt fljót. Hún er þér gefin í lífinu, hún verður opnuð í dóminum og hennar mun minst verða um alla eilífð. Hún hefir hina mestu ábyrgð í för með sér; en hún launar hinn þyngsta starfa og dæmir alla, sem fara léftúðlega með hið heilaga innihald hennar. “pín hrísla og stafur hugga mig. Um dauðans skuggadal eg styð mig við þig. ” Eftir Mrs. Lockie N. Kincaide. 1 september mánuði 1920 ætla Am- eríkumenn að halda 300 ára afmæli komu hinna ofsóttu pílagríma, sem í 1620 lögðu af stað frá Leyden, HoUandi á skipinu “Mayflower” og lentu í Nýja Englandi. Voru það niðjar þeirra sem grundvölluðu hin frjálsu Bandaríki. Einnig í Leyden ætla Hollendingar að minnast þeirra manna, sem um stundar sakir dvöldu í þeim bæ, efitir að þeir voru reknir í burtu af Englandi, þar sem var mikil trúarbragðakúgun í þá daga.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.