Stjarnan - 01.08.1923, Page 2

Stjarnan - 01.08.1923, Page 2
STJARNAN 114 HIN SŒLA VON. Marteinn Lúter sagöi: “ÞaS er mín innileg von, að Jesús Kristur, í öllum þessum sundrungum, vilji fljýta fyrir endurkomudegi sínum.” Jóhann Calvin sagSi: “Ritningarnar bjóSa oss öllum, sem einum manni væri, aS horfa í lifandi von fram til endur- komu Krists og tala um kórónu lífsins. sem einmitt þá bíSur vor.” Richard Baxter sagSi: “Klýttu fyrir, ó frelsari minn, tima endurkomu þinn- ar! Sendu engla þína út og láttu fagn- aSarbásúnuna 'hljóma! Þín biSandi brúður segir: ‘Kom!’ Já, kom, Drott- inn Jeús.” John Milton sagði: “Gakk þú út úr herbergjum þínum, ó höföingi konunga jarSarinnar! Ifær þig hin tignarlegu konungsklæði, tak veldissprotann, sem þinn almáttki faSir hefir gefiS þér aö erfSum, því brúSur þín kallar á þig, og alt sköipunarverkið stynur eftir endur- lausninni.” D. L. Moody sagði: “Mér finst eins og eg geti unnið þrisvar sinnum meira síðan eg fór aö skilja, aö Drottinn kem-. ur aftur. Eg skoöa þenna heim sem farkost, sem. hefir liðið skipbrot. Guö hefir útvegað mér björgunarbát og sagt viö mig:, ‘Moody, bjargaðu eins mörg- um og þú getur’ .... Þessi heimur er sí og æ aö formyrkvast. Hörmungar- tími hans og eyðilegging færast nær og nær, svo ef þú skyldir hafa nokkra ó- hólpna vini á skipsflakinu, þá reyndu þitt bezta, án þess aS missa augnablik, áöur en þú reynir aS koma þeim í burtu þaðan.” Wilbur Chapman sagði: “Eg kynti mér kenningu Jóhanns Calvins betur og þaS var anda mínum styrkur, þegar eg sá, að hann var aö vonast eftir Drotni sínum. Charles H. Spurgeon, hinn ' mesti prédikari á sínum tíma, lifði í hinni sömu von. D. L. Moody lét ald- rei nokkurt tækifæri frá sér fara til þess aö kunngjöra trú sína á endur- komu Krists, og dr. A. J. Gordon í Bos- ton uppörvaöi mig meira en nokkur ann- ar maSur meS boSskap sínum um end- urkomu Krists. Eg sá, aö Drottinn haföi nota þessa menn, eöa notaði þá á sér- stakan hátt, og skömmu seinna tók eg á móti þessum sama sannleika, sem aS öllu leyti breytti hugsunarhætti mínum og hjálpaði mér til að verða sannari máður bæSi gagnvart mönnum og Kristi.” G. Campbell Morgan sagöi: “Eg legg aldrei höfuö mitt á koddann án þess að hugsa um, aö þaö væri mögulegt aö Kristur kæmi, áður en birti af aegi. Eg játa þaö rólega og hátíölega, að ef þú skyldir vilja reyna aö svifta mig þess- ari von og segja mér, aö eg með prédik- un fagnaðarerindisins þyrfti að snúa öllum heiminum fyrst, þá mundi eg hætta aö prédika. En segðu mér aö kunngjöra heiminum evangelíum, pré- dika það fagnaðarerindi, að Drottinn innan skamms mun koma og binda enda á verkið — þá mun eg syngja viö verk mitt og bíða eftir því, sem boðar dags- brún og þrá ljósið, sem mun brjótast fram.”

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.