Stjarnan - 01.08.1923, Qupperneq 15
STJARNAN
127
'semur út mánaöarlega.
f Útgefendur : The Western Canadian Union Conference of S.D.A .
1 Stjarnan kostar $1.50 um áriö í Canada, Bandaríkjunum og á Islandi
1 ("Borgist fyrirfram).
Ritstjóri og Ráðsmaður : DAVÍÐ GUÐBRANDSSON
Ej
Skrifstofa: 302 Nokomis Building, Winnipeg, Manitoba, Canada.
r Talsími: A-4211
IiiiiMiHuiiiiiiiiiiiiiL'iiiMiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiliiilliluiiiiiiiiililiin^
P
P
I
B
H
llllllll?
kynssagan framleitt nokkuS, sem líkist
þessari mynd?
Vissulega! Vér höfum séS slíkt vald
koma fram á sjónarsviKiö, sem hefir
upphafiö sjálft sig, sett sig í GuSs
musteri, söfnuöinn, og ef vér grann-
kynnum oss þetta, sjáum vér aö þaö
byrjaöi jafnvel á dögum postulanna.
FRÉTTIR.
Fyrir nokkru reyndu tvær ungar kon-
ur að fyrirfara sér. Þær voru báðar
búnar aö stýfa hár sitt eftir nýjustu
tízku, en þegar þær komu heim, urðu
eiginmenm þeirra bálvondir, já, annar
þeirra fór svo langt, aö 'hann gaf kon-
unni sinni góöa hýðingu. Hún fór út
og tók fimtán pillur af þeirri tegund,
sem læknarnir nota til að lina kvölum,
og eina sterka eiturpillu i viöbót til þess
aö vera viss um aö deyja fljótlega; en
læknamir á spítalanum, þar sem hún nú
liggur, eiga góöa von um að geta bjarg-
aö lífi hennar. Hin, sem varð fyrir á-
vitum og skömmum mannsins, fór ofan
að ánni og fleygöi sér í vatnið, en lög-
regluþjónn náði henni áður en hún fór
að sökkva. Ætli það hefði ekki verið
betra að hafa borið hár sitt eins og nátt-
úran sjálf kennir kvenþjóðinni, í stað-
inn fyrir að ganga í kring eins og fífl,
sem fyrirlitin eru af öllum karlmönnum,
sem skynsemi eru gæddir. Það kemur
oft og tíÖum fyrir nú á tímum að konur,
sem eru orðnar gráar fyrir hærum,
koma inn á rakarastofu til að stýfa hár
sitt. Meðan þær í speglinum fyrir
framan sig ‘horfa á hárið, sem þær hafa
borið alla sina æfi, detta í ríkum mæli á
gólfið til þess að verða fótum troðið af
mönnum og sópað í burtu með öðru
rusli, grenja þær hástöfum. En hvað
er annað að gjöra, eins lengi og þær eru
haldnar í þrældómi af tízkudjöflinum
og vilja með engu móti lofa frelsaran-
um að veita sér frelsi frá öllu þess^
’háttar. Þær verða þvingaðar til að
fleygja heiðri sínum, sómatilfinningu og
dómgreind fyrir borð og fylgja tízkunni
hve vitlaus sem hún kann að vera.
Okið sem hvílir á þrælum og ambátt-
um tízkunnar, hlýtur að vera mjög
þungbært.
Eins. og stendur, eru átta hundruð
leikhús í Canada. Þrjú hundruð eru í
Ontario, eitt hundrað og tuttugu í Que-
bec, níutíu og þrjú í Nova Scotia og
New Brunswick, eitt hundrað og þrjá-
tíu og eitt í Manitoba; þrjátíu og fjögur
af þeim í Winnipeg; fjörutíu og sex i
British Columbia og færri en hundrað í
Alberta og Saskatchewan til samans.