Ný Dögun - 01.11.1993, Side 8
/sjý Dögun.
foreldrar, ungu börnin heima eða stálpaða
unglingana sem eru farnir að heiman.
Hvernig verða nú samskipti okkar? Hvaða
tengsl heldur þú að breytist mest? Hver
heldur þú að eigi hvað erfiðast og hvers
vegna? Hver verður aðalstyrkur fjölskyld-
unnar? Hvernig ætli líf okkar verði eftir svo
sem áratug?
Flestar fjölskyldur geta rætt sín á milli
um þessar breytingar án utanaðkomandi
aðstoðar, aðr ar sækj a sér hj álp til þess. Sumar
eru ómeðvitaðar um sterk áhrif sem koma
upp kannski áratugum síðar, aðrar virðast
gera sér vel grein fyrir því að fjölskyldulífið
hefur breyst mi'kið en ráða samt ekki einir
síns liðs við verkefnið.
Pjölskylduþjónws+a Ui^kjunnar
Fj ölsky lduþj ónustu kirkj unnar var komið
á laggirnar til þess að veita faglega aðstoð
fyrir fjölskyldur í margs konar samskipta-
örðugleikum. Þar starfa félagsráðgjafi, sál-
fræðingur, prestur og við erum tilbúin að
vinna með fjölskyldum á hvaða sviði sem er
sem snertir samskipti milli meðlima fjöl-
skyldunnar, milli fárra eða margra aðila.
Tilgangurinn er að hjálpa fjölskyldum,
ekki til að breyta einstaklingnum því það er
ekki unnt, en að breyta svo samskiptum að
þau verði ánægjulegri og bærilegri fyrir alla.
Og tilþess að fjölskyldunni auðnist sembest
að auka á vellíðan fjölskyldunnar þarf að
hitta sem flesta saman því allir hafa sitt að
segja og eru mikilvægir einstaklingar í
samspili og samstarfi fjölskyldunnar.
í öllu okkar starfi reynum við að vinna í
anda þess kærleika sem kristin kirkja nærist
af, þar sem einstaklingurinn er svo dýrmætur
af því að hann ber ímynd hins góða Guðs.
Ný Dögun hefur hafið símaþjónustu. Fyrst um sinn verður svarað í
símann kl. 15-17 á sunnudögum í síma 624844. Sjálfboðaliðar sjá um
þessa þjónustu.
Skrifstofan okkar að Sigrúni 7 er óðum að komast í gagnið og þar
verður stefnt að því að geta haft smærri samver ur og jafnframt að
veita syrgjendum aðgang að fræðsluefni.
Ný fræðslunefnd hefur tekið við. Hana skipa:
Elínborg Jónsdóttir
Erla Hafliðadóttir
Jóna Dóra Karlsdóttir
Fyrst um sinn verður
svarað í símann
kl. 15-17 á
sunnudögum í síma
624844.
8