Ný Dögun - 01.11.1993, Qupperneq 14

Ný Dögun - 01.11.1993, Qupperneq 14
/s)ý Ðögim Engum hafði hún sýnt örið ekki einu sinni eiginmanni sýnum, fyrr en við hjúkrunarfræðingarnir komum til skjal- anna. Það er mikilvægt að koma til móts við missi sem þennan með því að leggja áherslu á fegurð líkamans að öðru leiti og útlit almennt. Annars er það umhugsunar- efni hvað við konur virðumst leggja mikið upp út því að hafa brjóstin í lagi. Skyldi þetta vera máttur auglýsinga og dýrkun æskufegurðar? „Ekki höfum við persónuleikann í brjóstunum" sagði ein reynd kona í þessum málum á fundi hjá Samhjálp kvenna þar sem Kjartan Magnús- son krabbameinslæknir ræddi við fundar- gesti um kynlíf og krabbamein. Það er mikil- vægt fyrir sjálfsímyndina þegar fólk grennist mikið að það fái á sig mátulegan fatnað. Hvernig fólk upplifir missi vegna útlitsbreytinga fer oft eftir því hversu áberandi hann er, hversu mikil áhrif hann hefur á athafnir, hversu mikil áhrif hann hefur á tilfinningaleg tengsl og þýðingu þess hluta líkamans sem varð fyrir missinum. Við vitum einnig og höfum séð að sumir sjúklingar verða fyrir miklum breytingum á líkama sínum en ekki lítur út fyrir að það hafi nokkur áhrif á tilfinningalífið. Breyt- ingar á líkama og sál hafa oftar en ekki mikil áhrif á kynlíf fólks. Sérstaklega veldur þetta þeim aðilanum sem ekki getur stundað hefðbundið kynlíf lengur vegna kraftleysis eða annarra líkamlegra eða andlegra orsaka tengdum krabbameininu oft miklum áhyggjum ofan á allt annað. Þetta á einkum við um sambönd þar sem kynlífið var mjög gott og stór þáttur í sambandinu fyrir veikindin. í þessum tilfellum er oft hægt að gefa fólki ráðgjöf og hjálpa því að nálgast og njótast á annan hátt. Þörfin fyrir hlýju og snertingu af einhverju tagi eykst hjá fólki þegar það fær þennan oft erfiða sjúkdóm, um leið og þörfin og getan til kynlífs minnkar eða hverfur. Tilfinningalegur missir tengist oft brostnum vonum, breyttum áætlunum og draumum um framtíðina. Þetta er sorg sem 14 ekki er almennt viðurkennd í dag og því er ekki brugðist við henni sem slíkri. Ekki má gleyma því að þótt sumar vonir bresti þá koma aðrar í staðinn. Einnig er það mikil- vægt hér eins og mér finnst raunar í lífinu öllu, að lifa fyrir stundina eða daginn og reyna ávallt að gera eins vel og maður getur fyrir sjálfan sig og aðra. Það, að reyna ávallt að skilja allt eftir í betra ástandi þegar þú ferð en það var, þegar þú komst, er góður vegvísir til vellíðunar. Ég tel reyndar að allir menn reyni að gera sitt besta á hverri stundu, ef þeir gera það ekki þá er það vegna þess að eitthvað er að sem þarf að laga, en það gerir hins vegar enginn nema einstaklingurinn sjálfur. Með öðrum orðum, við höfum mikið með okkar eigin líðan að gera. Stundum þurfum við bara að gera litlar breytingar til að líða betur. Stundum þurfum við að snúa öllu við til þess. Krabbameinssjúklingar finna stundum fyrir því að þeim fer aftur andlega og hugsunin verður ekki eins skýr. Þessi missir er mismikill og kannski mestur hjá þeim, sem mikið hafa notað heilann og hugsunina í lífinu. Ástæðan fyrir þessum missi er oft sjúkdómurinn sjálfur, verkjalyfin eða and- legt álag, nema allt sé. Missir sjálfstæðis er erfiður, sérstaklega fyrir fólk, sem áður mat sjálfstæði sitt og frjálsan vilja mikils. Missir á hlutverki er algengur. Eiginmaðurinn verður að venjast því að eiginkonan sjái heimilinu fyrir því, sem til þarf og taki allar stærri ákvarðanir. Oft er hann þá aleinn heima allan daginn, hefur lítið við að vera og finnst hann ekkert gagn gera. Ég myndi vilja sjá hann fara í skotið mitt. Þar gæti hann e.t.v. fengið tækifæri til að gefa af sér til annarra um leið og hann fengi sjálfur stuðning og lífsfyllingu fyrir sig, sem aftur myndi hafa góð áhrif alla leið inn í fjöl- skyldulífið á þessum erfiðu tímum. Krabba- meinssjúklingar hafa sannarlega oft mikið að gefa öðrum, fái þeir tækifæri til þess. Annað dæmi um missi á hlutverki er móðirin unga, sem þarf að finna aðra til að sinna heimili sínu og börnum þar sem hún getur ekki annast þetta nema að litlu leyti sjálf.

x

Ný Dögun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.