Ný Dögun - 01.11.1993, Qupperneq 18
/s)ý "Dögun.
Tildrög þessa máls voru þau, að nokkrir
kirkjunnar menn voru á ráðstefnu í Finn-
landi s.l. haust, sem fjallaði um kirkjuna í
borginni. í tengslun við ráðstefnuna, sem
haldin var í háskólanum í Helsingfors, fóru
þátttakendur í ýmsar stofnanir til að kynna
sér starf kirkjunnar í Helsingfors og
nágrenni. Tveir okkar fengu tækifæri til að
skoða, hvað kirkjan var að gera fyrir
atvinnulaust fólk, en atvinnuleysi fór þá
mjög vaxandi í Finnlandi.
Þetta varð svo til þess að við fórum að
tala saman um atvinnuleysið á íslandi, sem
þá var einmitt í örum vexti.
Eftir heimkomuna héldum við áfram að
ræða saman um þann mikla vanda sem
þjóðfélagið horfðist í augu við í sambandi
við atvinnuleysið, og á héraðsfundum
Reykjavíkurprófastdæmanna í október var
samþykkt ályktun um þetta mál og hvatt til
þess að kirkjan, í samráði við aðila vinnu-
markaðarins, reyndi að finna leiðir til að
aðstoða fólk, sem misst hefði atvinnu sína.
Kirkjuþing 1992 tók þetta mál upp að
tilhlutan biskups íslands og gerði um það
ítarlega ályktun, sem hvatti til aðgerða í þá
veru sem varð svo að veruleika.
Prófastar Reykjavíkurprófastdæmanna
boðuðu til fundar í nóv. s.l. með aðilum
vinnumarkaðarins. Fundinn sátu ýmsir
forystumenn úr röðum ASÍ og VSÍ en frá
kirkjunni sátu fundinn biskup íslands og
fulltrúar úr héraðsnefndum Reykjavíkur-
prófastdæma auk prófastanna Þessi fundur
valdi 5 aðila til að halda viðræðum áfram
með það fyrir augum að opna miðstöð fyrir
fólk í atvinnuleit.
Vikulegir fundir voru haldnir í lok nóv.,
des. og jan. og reyndi undirbúningsnefndin
að vanda þennan undirbúning eftir föngum.
Niðurstaða nefndarinnar var sú að hvetja
til þess, að á vegum þessara aðila yrði opnuð
miðstöð fyrir fólk í atvinnuleit, sem hefði
fjögur aðalviðfangsefni:
Opið hús með kaffi og óformlegu spjalli
Miðlun upplýsinga
Fræðslustarfsemi
Ráðgjöf og sálgæsla.
Til þess að stjóma miðstöðinni var ráðinn
Halldór Júlíusson, sálfræðingur og var hann
framkvæmdastjóri hennar til 1. júlí, er hann
var kallaður til annarra starfa. Þá tók núver-
andi framkvæmdastjóri við starfinu, en
hann er Guðmundur Einarsson.
Miðstöðin nýtur fjárhagslegra styrkja frá
kirkjunni og öðrum aðilum, sem eru í þessu
samstarfi, en einnig hefur starfið fengið
styrk frá Félagsmálaráðuneytinu og einnig
hefur Reykjavíkurborg heitið stuðningi við
starfið.
Reynslan hefur sýnt að mikil þörf er
fyrir starfsemi sem þessa og hafa mjög
margir leitað til Miðstöðvarinnar, sem fyrst
var til húsa í Dómkirkjunni í Reykjavík en
er nú með aðalstöðvar í Breiðholtskirkju í
Mjódd en hefur opið hús í Safnaðarheimili
Dómkirkjunnar einu sinni í viku.
Skráðar komur í Miðstöðina eru 20 - 40
á dag.
Tvisvar í viku hafa verið fyrirlestrar um
fræðandi efni er tengist vanda atvinnu-
leysisins, og hafa oft skapast gagnlegar um-
ræður í tengslum við þá. Þá hefur þáttur
ráðgjafar og námskeiða aukist. Gefnir hafa
verið út bæklingar með efni er snertir þarfir
þeirra sem missa atvinnu og aðstandenda
þeirra.
Mjög margir sjálfboðaliðar hafa komið
að Miðstöðinni og hafa þeir unnið með
framkvæmdastjóranum að gerð bæklinga
o. fl. Einnig sjá sjálfboðaliðar alfarið um
kaffi og ræstingu húsnæðisins.
Framkvæmdastjórar Miðstöðvarinnar
hafa verið í tengslum við aðila úti á landi,
sem sinna þessum málaflokki. Á Akureyri
hefur verið opið hús einu sinni í viku og
hefur sr. Þórhallur Höskuldsson, sóknar-
prestur, haft forgöngu um það, en þar er
einnig boðið upp á fræðsluerindi.
18