Ný Dögun - 01.11.1993, Síða 21

Ný Dögun - 01.11.1993, Síða 21
DögiAW Ástæða er til að kynna enn efni áður- nefndarar bókar, því alltaf eru nýir syrgj- endur að bætast í hópinn. Bókin byggir á rannsóknum á sorgarviðbrögðum hjá ekkjum. Bókin skiptist í 11 kafla. Þeir kallast: 1) Kostnaðurinn við það, að tengjast 2) Brostið hjarta 3) Aðvörun 4) Leit 5) Sefjun 6) Reiði og sektarkennd 7) Að öðlast nýja sjálfsmynd 8) Afbrigðileg sorg 9) Skilgreiningar sorgar 10) Að hjálpa syrgjendum 11) Viðbrögð við öðrum missi SoK*g e.r ekki sjukdómu>* Parkes talar um, að sorg sé ekki sjúk- dómur. Missirinn hittir okkur eins og högg, sem hefur víðtækar afleiðingar. En við jöfnum okkur eftir högg og sum áföll í lífinu leiða í raun til þess, að við styrkjumst, rétt eins og bein, sem brotnar, getur orðið sterk- ara en það, sem brotnar ekki. Parkes nefnir líka, að sterk tengsl séu á milli tilfinninga hjálparleysis/ vonleysis í kjölfar missis og líkamlegra sjúkdóma. Eftir missi er syrgjandinn eirðarlaus og dofinn, missir áhuga á eigin útliti og öðrum mikilvægum þáttum í lífsháttum, fær tilfinningu fyrir nánd hins látna, kallar á hinn látna, trúir ekki því, sem hefur gerst, allt verður óraunverulegt, til að forðast sársaukann þá forðast syrgjandinn hugsanir um hinn látna og aðstæður sem gætu minnt á hinn látna, yfirvirkni kemur fram, minnis- leysi o.s.frv. SorgarvÍKma Ferli sorgarvinnunnar felur í sér: 1) Syrgjandinn er upptekinn af hugs- unum um þann sem syrgjandinn hefur misst, sem spretta af þörfinni fyrir að leita að honum/henni. 2) Að endurupplifa sársauka missis- reynslunnar. Þetta verður að eiga sér stað ef endanleika missisins hefur verið afneitað. 3) Tilraun til að finna tilgang í missinum. Aðlögun missis að eigin lífsinnihaldi, eða breyting á lífsinnihaldi vegna missis. Sorgin er ferli, ekki stöðugt ástand. Með tímanum breytist tjáning sorgarinnar. Reiði, sektarkennd og þunglyndi koma fram víða í sorgarferlinu. Hlutverk okkar í lífinu breytast, þegar við missum og þá getur sjálfsmynd okkar líka tekið breytingum. Stuðningur hefur mikið að segja í sam- bandi við úrvinnslu sorgar, hvort sem um er að ræða innan fjölskyldu, í vinahópi, í kirkju o.s.frv. Sorgartímabil eru skilgreind í sumum löndum og gefa syrgjendum leyfi til að syrgja í einhvern tíma. Svo er ekki í hinum vestræna heimi. En þarna gæti kirkjan komið til aðstoðar með leiðsögn sinni. Mikilvægt er að syrgjendur fái að vita, að sorg þeirra sé eðlileg. Sorgarhópar geta líka hjálpað. I lokakaflanum ber Parkes saman sorgar- viðbrögð við ástvinamissi og sorgarvið- brögð, sem tengjast því, þegar menn missa útlimi, eða missa heimili sitt. Finnst þar margt hliðstætt. AJý Dögun Samtökin okkar, Ný Dögun, samtök um sorg og sorgarviðbrögð í Reykjavík, sem nú hafa starfað í 6 ár, hafa byggt á rannsóknum Dr. Colin Murray Parkes o.fl. sem hafa fjallað um sorgina. Nú í haust höfum við hafið starf í nærhópum, sem eru fámennir, lokaðir hópar, þar sem lögð er áhersla á nálægðina, trúnaðinn. Starfið hefur gengið vel og við stefnum að því að halda áfram með nærhópana. Símaþjónusta er einnig nýmæli í starf- semi okkar. Fyrst um sinn er einungis miðað við viðveru við símann síðdegis á sunnu- dögum. Það hefur sýnt sig, að helgarnar eru sérstaklega erfiðar í sorginni. Þær eru 21

x

Ný Dögun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.