Ný Dögun - 01.11.1993, Blaðsíða 22

Ný Dögun - 01.11.1993, Blaðsíða 22
/\)ý Dögiun. hinn hefðbundni tími fjölskyldunnar og þá verður tómleikinn oft mikill. Er fólk fast í sorginni, þegar það tekur þátt í starfi í sorgarsamtökum? Ekki viljum við, sem störfum á þeim vettvangi meina að svo sé. Þvert á móti teljum við, að sorgar- vinnan, sem við vinnum hvert með öðru, geri okkur færari í því að takast á við lífið á ný eftir sáran missi. so»*g í umræðunni um sorg og sorgarviðbrögð hafa komið fram þau viðhorf margra syrgj- enda, að í vissum tilfellum leyfist manneskj- unni ekki að sýna sorgar- eða missisvið- brögð vegna t.d. fordóma samfélagsins, vegna vanþekkingar á tilfinningavið- brögðum, vegna misskilnings o.s.frv. Þeir einstaklingar, sem lenda í þeim aðstæðum, að fá ekki svigrúm til að vinna sig í gegnum þann missi, sem forboðinn er, lenda oft í miklum vanda. Þeim er hvorki ætlaður tími til að syrgja, né veittur sá stuðningur, sem nauðsynlegur er við þessar aðstæður. En þessi vandi kemur oft á tíðum ekki upp á yfirborðið fyrr en löngu síðar. Vil ég nefna nokkur dæmi um forboðna sorg, aðra en þá, sem birtist í tengslum við viðurkenndan missi ástvina í dauða. Það skal tekið fram, að í nokkrum nefndra tilvika er um að ræða dóm samfélagsins yfir siðferðisviðmiðunum þess, sem syrgir vegna missis. Po»*(3oð in soi*g meðgÖKvguK\K\ai* Lög um ákvörðun dauða, sem voru samþykkt á Alþingi 20. febrúar 1991 kveða á um útgáfu dánarvottorðs eftir dauða einstaklings, sem úrskurðaður var lifandi í/eftir fæðingu. Missir á meðgöngu felur þess vegna í sér, að harla lítil viðurkenning fæst á því, að þarna hafi verið um líf að ræða, sem ástæða sé til að syrgja. Þær mæður, sem missa fóstur, fá enda allt of oft að heyra viðhorf eins og:"Þetta var nú ekki barn", "Þú getur alltaf orðið ófrísk aftur", "Þetta hefur engin áhrif á samband ykkar 22 hjónanna". En svo einfalt er það ekki. Missir fósturs er fyrir mörgum foreldrum það sama tilfinningalega og missir barns. Utanlegsfóstur getur falið í sér jafnvel enn flóknari missi, því þar má reikna með áhrifum á framtíðarmeðgöngur. En tilhneig- ingin er sú, að samfélagið umhverfis mæð- urnar vill að þær "hristi þetta af sér" og staldri ekki við þennan missi. Fóstureyðing framkallar hins vegar önnur viðbrögð. Þar má raunar finna a.m.k. tvenns konar áherslur, sem ekki eru hjálplegar þegar missisviðbrögð koma fram (þau koma vel að merkja alls ekki fram hjá öllum konum sem fara í fóstureyðingu). Fyrri áherslunni, sem leggur áherslu á frjálst val móður gagnvart meðgöngunni, fylgir allt of oft það viðhorf, að fyrir móðurinni sé fóstur eins og hvimleiður kvilli, sem þurfi að fjarlægja og þá sé allt gott, engar afleið- ingar, engir erfiðleikar. Síðari áherslan legg- ur mest upp úr spurningunni um helgi lífs fóstursins, sem hefur alla möguleika á að verða manneskja eins og við. Þessi síðari áhersla leiðir í æðimörgum tilfellum til fordæmingar á ekki bara þeirri athöfn, að fara í fóstureyðingu, heldur líka á siðferði þeirrar manneskju, sem slíkt gerir. Þar er m.ö.o. ýtt undir skömmustutilfinningu, sem gerir manneskjunni erfitt fyrir, ef hún þarf á hjálp að halda. Tiltölulega nýleg tækni hefur bætt í þessa mynd enn einu atriði, sem oftast er í vitund almennings tengt fóstureyðingu. En það er þegar alvarlegur fósturgalli greinist fyrir miðbik meðgöngu. Um það er þá að ræða, að engir möguleikar séu taldir á, að um líf verði að ræða við lok meðgöngu, þ.e.a.s. líklegast er, að um andvana fæðingu verði að ræða, eða þá hitt, að lifandi barnið verði svo stórlega skert, að "lífið" fæli í sér fáa ef nokkra þá þætti er greina manneskjuna frá öðrum skepnum lífríkisins. Engu að síður er þetta ákaflega erfið ákvörðun fyrir foreldrana, sem fæst í mörgum tilfellum lítill stuðningur við utan frá.

x

Ný Dögun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.