Ný Dögun - 01.11.1993, Síða 23
/Sjý DöguKv
Porboðin sorg -fo»*eldi*a
Hugsum okkur foreldra, sem eignast
barn. Allt virðist í lagi með barnið í fyrstu,
en síðan kemur í ljós, að barnið á við mikinn
sjúkdóm eða fötlun að stríða.
Hugsum okkur foreldra, sem um langt
skeið hafa reynt að eignast barn og ekki
tekist. Þau ákveða að reyna tæknifrjóvgun.
Allt gengur vel og þau eignast loks barn.
En þá kemur í ljós, að barnið reynist ekki sú
lausn, sem það átti að vera.
Missir "draumabarnsins7' er erfiður.
Einhverjir kunna að segja, að foreldrarnir
megi vera þakklátir fyrir, að barnið sé lif-
andi. Engu að síður er það staðreynd, að
foreldrarnir mega nú aðlagast lífi, sem er
allt öðru vísi en það líf, sem þau áður áttu.
Vissulega þykir þessum foreldrum vænt um
börnin sín, en með þeim bærist vissan um
það, sem hefði getað orðið.
Önnur er sú sorg foreldra, sem lítið hefur
verið fjallað um, en það er sorgin vegna
barnsins, sem foreldri hefur gefið eftir for-
ræði yfir við skilnað. Þessi sorg hefur raunar
fleiri hliðar en hlið foreldris, því þarna getur
verið um það að ræða, að systkinahópi sé
sundrað, auk þeirra viðbragða, sem koma
frá barninu vegna missis sambands við
foreldri sitt, eða alla vega mikilla breytinga
á því.
■Hin vonlawsa ást
Öll upplifum við það einhvern tíma að
verða ástfangin. Stundum er ástin ekki
endurgoldin. Stundum hefur hinn aðilinn
engan áhuga. Okkur lærist með tímanum,
að það séu "fleiri fiskar í sjónum", en sumir
syrgja lengi það, sem ekki varð. Þessi sorg
kemur ekki einvörðungu fram við fyrstu
ástarsamböndin, heldur getur hún t.d.
tengst "slæmu" hjónabandi, þar sem ósam-
komulag var ríkjandi og fjölskylda og vinir
segja þig sæla/n að hafa losnað úr þessu
hjónabandi. En jafnvel eftir "slæmt" hjóna-
band kemur fram söknuður eftir makamissi.
Hér má líka nefna aðra forboðna sorg, sem
sé þá, að syrgja eftir lát fyrrverandi elsk-
huga/maka. Við slíkar aðstæður er fremur
lítinn stuðning/skilning að fá.
Pað sem e»* ójy»*i»*gej-aKvlegf
Missir tengist mjög oft því, sem er
óafturkræft. Þetta getur átt við bæði orð og
verk. Gerendur á slysavettvangi, þeir, sem
valdir eru að slysum, fá oft hörð viðbrögð,
jafnvel árásir á vettvangi. Stundum eru
valdendur slysa undir áhrifum áfengis eða
annarra vímuefna. Sumir halda því fram,
að þeir, sem séu undir áhrifum þegar þeir
valda slysum, séu með afsökun. En þeir
þessara einstaklinga, sem slysum valda og
finna fyrir mikilli iðrun, fá ekkert minna
samviskubit, þótt þeir hafi verið undir
áhrifum vímuefna.
Þessi sorg er forboðin að því leyti, að
henni er oftast ekki leyft að fá útrás í sam-
hengi sorgar annarra. Þetta vill oft verða
langvinn sorg í einrúmi.
Nefna má fleiri dæmi:Ungur maður, sem
er smitaður af alnæmi og veit af því er
hræddur um að missa maka sinn frá sér ef
hann segir makanum frá smitinu. Hann
smitar makann af alnæmi. Hvaða rétt hefur
þessi ungi maður til að syrgja?
Ofbeldismenn eru líka í þessum hópi.
Þeir valda ólýsanlegum þjáningum. Hvern
varðar um sorg þeirra og eftirsjá?
Nýja fjölskyldan
Þessi yfirskrift krefst útskýringa. Það
sem við er átt, er að eftir missi, sem hendir
fjölskyldu, koma oft fram ný munstur, eða
væntingar, sem er oft afar erfitt að eiga við
og uppfylla. Dæmi um þetta eru eftirfar-
andi:
Hjón skilja eftir langt hjónaband. Tengda-
sonur átti náið samband við tengdaforeldra,
sem vilja gjarna halda sambandinu áfram,
en dóttir þeirra bannar það. Tengda-
foreldramir verða við óskum hennar og slíta
sambandinu við tengdasoninn fyrrverandi.
23