Ægir - 01.09.2018, Side 16
Nýendurbyggður línubátur Vísis
hf., Sighvatur GK, kom til
heimahafnar í Grindavík í sum-
ar eftir endurbyggingu í Pól-
landi. Skipið hélt því næst til
Ísafjarðar þar sem fyrirtækið
Skaginn 3X setti millidekksbún-
að í það, m.a. Rotex kælikerfi
en einnig var sett í skipið
krapavél, forkælir og ýmis bún-
aður frá Marel. Um síðustu
mánaðamót lauk þessari vinnu
og hélt skipið þá á ný til Grinda-
víkur þar sem það var búið til
fyrstu veiðiferða.
Tveimur númerum stærra en sá
gamli
Sighvatur leysir eldra skip með
sama nafni af hólmi. Upphaf
lega hét skipið Skarðsvík og var
smíðað í Mandal árið 1975. Það
er tæplega 45 metra langt, og
8,20 á breidd. Þó byggt sé á
grunni eldra skips má segja að
breytingarnar hafi verið svo
viðamiklar að nær væri að tala
um nýtt skip.
Breytingarnar voru unnar í
Póllandi og tóku ríflega ár.
„Skipið er allt svona tveimur
númerum stærra en gamli Sig
hvatur. Þetta er í raun eins og
nýtt skip. Þó ég væri með nýtt
skip í höndunum væri ekki ann
ar búnaður í því þar sem allur
búnaður er nýr. Við eru bara
nokkuð lukkulegir með hvernig
til tókst. Skipið reyndist vel á
leiðinni heim og strákarnir um
borð voru mjög ánægðir með
það. Hann var góður í sjó og
gengur vel,“ segir Kjartan Við
arsson, útgerðarstjóri Vísis hf.
Ekki hefur verið tekin endan
leg ákvörðun um hvað verður
um um gamla Sighvat. „Nokkrir
hafa falast eftir honum en ef
hann verður notaður áfram þarf
að taka svolítinn skurk í hon
um,“ segir Kjartan.
Eins og nýtt skip
Það er allt nýtt í skipinu; allar
klæðningar, allar íbúðir, allt raf
magn, allur vélbúnaður og allar
lagnir. Brúin er ný, sem og yfir
bygging, hliðarskrúfa og stýri.
Aðalvélin er Caterpillar 3512,
ljósavélar eru C9,3. Í skipinu er
Meganov gír og skrúfa frá
Kletti, Palfinger kranar frá Atlas
og Wet hliðarskúfur sem eru
líka frá Atlas. Becker stýri og
stýrivél eru frá Go On og anker
isvindur og keðjur sömuleiðis,
ásamt öllum loftræstiblásurum
og öðru slíku.
Öll siglingartæki og brúar
tæki er frá Skiparadíói í Grinda
vík. Línukerfið er að stórum
hluta nýtt frá Mustad. Málning
á skipinu er frá Sérefni. Verk
fræðistofan Navis sá um alla
hönnun og tæknivinnu. Öll eld
hústæki eru af gerðinni Bea frá
Sjóvélum. Allar dælur eru frá
Asgua í gegnum Atlas. Allt raf
magn, rafmagnstöflur og
stjórnskápar eru smíðaðir hjá
Raftíðni á Grandagarði. Létta
bátur skipsins er keyptur frá At
las
Önnur línuskip Vísis eru Jó
hanna Gísladóttir, Páll Jónsson,
Kristín og Fjölnir.
Endurbyggður Sighvatur til veiða
Skipið hét upphaflega Skarðsvík en breytingar nú voru svo viðamiklar
að nánast er hægt að tala um nýtt skip.
Fljótt eftir heimkomuna fór Sighvatur GK til
Ísafjarðar þar sem settur var kæli- og
vinnslubúnaður í skipið. Nú er komið að
fyrstu veiðiferð.
F
isk
isk
ip
16