Ægir - 01.09.2018, Page 18
18
„Ég hef alltaf jafn gaman af
strandveiðunum og auðvitað er
mjög ánægjulegt að vera afla-
hæstur þetta sumarið, þó ég
hafi nú reyndar ekki verið að
velta því fyrir mér sérstaklega.
Ég væri ekki í þessu ár eftir ár
nema hafa mjög gaman af
veiðunum. Maður verður að
hafa gaman af því sem maður
gerir,“ segir Stefán Jónsson á
strandveiðibátnum Grími AK 1
frá Akranesi sem vantaði að-
eins tæplega 400 kíló uppá að
ná 50 tonna afla í strandveið-
inni í sumar. Stefán hefur
stundað strandveiðar síðan
2011 og segir þetta sumar hafa
verið það erfiðasta hvað veður
áhrærir, bæði vindasamt og oft
kalt í veðri.
„Þetta er langmesti afli sem
ég hef náð í strandveiðunum
og helgast að hluta af þeim
breytingum sem voru gerðar á
kerfinu. Á sínum tíma var ég hér
á svæði D en hef síðan verið á
Arnarstapa á svæði A og róið
fyrir sunnan Snæfellsnes. Sú
breyting að ufsinn er talinn
meðafli og dagarnir eru fleiri
breytir mjög miklu. Svo finnst
mér líka vera meiri fiskur í sjón
um og meira líf. Í fyrra fór ég
síður vestur undir Jökul út af
ufsanum og núna í sumar sótti
ég frekar austur eftir vegna
þess að þar var meira af þorski.
Þorskurinn var að sækja í síldar
hrogn en síldin virðist vera að
hrygna á stærra svæði en áður.
Mér finnst bæði vera meira líf í
sjónum og tek líka eftir að ég
fæ fiskinn ofar í sjónum. Þetta
er talsvert öðruvísi en í fyrra.
Fiskurinn er stærri ef eitthvað er
en þó talsvert blandaður,“ segir
Stefán en hann réri frá Arnar
stapa og fiskaði í heild 49.622
kg í 48 róðrum. Af þeim afla var
þorskur um 35 tonn.
Strandveiðar hófust þann 2.
Strandveiðikóngur
sumarsins með tæp
50 tonn í 48 róðrum
„Væri ekki í strandveiðunum ef mér þætti þetta ekki gaman,“
segir Stefán Jónsson á Grími AK 1
Grímur AK 1 stímar í land á síðasta degi strandveiða þetta sumarið. Þetta er langbesta aflaár Stefáns Jónssonar skipstjóra og það þrátt fyrir einstak-
lega erfitt sumar veðurfarslega séð. Mynd: Guðmundur Ívarsson
S
tra
n
d
v
eiða
r