Ægir - 01.09.2018, Side 23
23
Séu listar 10 kvótamestu hafnanna skoðaðir fyrir nýhafið fisk
veiðiár og það gamla sést að Garður hefur komið inn á listann í
staðinn fyrir Ísafjörð en veigamiklar tilfærslur eru ekki, líkt og áður
segir. Þrátt fyrir að hlutfall af heild sé lægra nú hjá tveimur af þrem
ur kvótahæstu höfnunum er hlutfall þessara 10 hafna í heild sinni
hærra nú en á síðasta fiskveiðári. Verður nú 62,9% en var 61,1% á
síðasta fiskveiðiári. Listinn er þannig þetta fiskveiðiárið:
Samtals ÞÍG kg. Hlutfall %
Reykjavík 52.506.400 45.147.755 11,58%
Grindavík 46.749.394 42.709.072 10,95%
Vestmannaeyjar 54.313.673 41.386.094 10,61%
Akranes 24.886.337 19.020.935 4,88%
Akureyri 20.220.541 17.140.187 4,39%
Rif 16.404.479 17.134.742 4,39%
Dalvík 18.368.613 17.079.763 4,38%
Hornafjörður 23.790.413 17.075.869 4,38%
Sauðárkrókur 15.077.074 15.428.990 3,96%
Garður 14.588.324 13.091.155 3,36%
Þorskveiðiheimildir hjá nýju togurunum
Líkt og áður segir er frystitogarinn Sólberg ÓF 1 það fiskiskip flotans
sem mestar heimildir til þorskveiða, eða 6.150 tonn. Það er samt
sem áður minni þorskaflaheimildir en Kaldbakur EA hafði í fyrra og
munar þar 1.200 tonnum. Athyglisvert er að sex af skipunum á
þessum lista komu ný til landsins á síðasta ári og segir þetta nokkuð
til um það hlutverk sem útgerðirnar ætla þeim. Þessi listi er talsvert
frábrugðinn því sem var í fyrra. Ný á honum eru Drangey SK, Björg
EA, Málmey SK, Páll Pálsson ÍS og Hjalteyrin EA en af listanum hafa á
móti horfið Stefnir ÍS, Júlíus Geirmundsson ÍS, Gullver NS, Sirrý ÍS og
Anna EA.
Listinn er þannig skipaður:
ÞÍG kg
Sólberg ÓF 1 Ólafsfjörður 6.151.109
Drangey SK 2 Sauðárkrókur 5.421.900
Björgúlfur EA 312 Dalvík 4.321.945
Björg EA 7 Akureyri 4.268.865
Kaldbakur EA 1 Akureyri 4.246.630
Björgvin EA 311 Dalvík 4.241.368
Málmey SK 1 Sauðárkrókur 4.230.385
Páll Pálsson ÍS 102 Ísafjörður 3.371.038
Ljósafell SU 70 Fáskrúðsfjörður 3.349.779
Hjalteyrin EA 306 Dalvík 3.327.833
Aukning í ýsunni
Sem fyrr segir jukust heimildir í ýsu um 15 þúsund tonn á þessu
fiskveiðiári frá því fyrra. Líkt og síðast hefur frystitogarinn Guð
mundur í Nesi mestar heimildir í ýsu, eða 1,484 þorskígildistonn. Í
öðru sæti á þessum lista er nú nýjasta fiskiskip Vestmannaeyja,
Breki VE með tæplega 1.170 tonna heimildir. Á þennan lista er nú
kominn ferskfisktogarinn Drangey SK en af listanum hvarf í staðinn
frystitogarinn Arnar HU.
Listi 10 kvótahæstu skipa í ýsu er þannig:
ÞÍG kg
Guðmundur í Nesi RE 13 Reykjavík 1.484.692
Breki VE 61 Vestmannaeyjar 1.169.283
Drangey SK 2 Sauðárkrókur 1.107.754
Vilhelm Þorsteinsson EA 11 Akureyri 992.279
Þórunn Sveinsdóttir VE 401 Vestmannaeyjar 975.206
Bergey VE 544 Vestmannaeyjar 950.493
Vestmannaey VE 444 Vestmannaeyjar 950.493
Börkur NK 122 Neskaupstaður 876.946
Höfrungur III AK 250 Akranes 850.290
Baldvin Njálsson GK 400 Garður 769.633
Kvótahæstir smábáta
Af krókaaflamarksbátum er Hafnarfjarðarbáturinn Kristján HF 100
með mestar hemildir, eða 2.544 tonn. Næstir honum koma Jónína
Brynja ÍS í Bolungarvík og Gísli Súrsson GK í Grindavík.
Kvótahæstu smábátar með aflamark eru Bárður SH á Arnarstapa
og Arnar SH í Stykkishólmi. Sömu bátar voru á toppi þessa lista á
síðasta fiskveiðiári.
Listi 10 aflamarkshæstu krókaaflabáta:
ÞÍG kg
Kristján HF 100 Hafnarfjörður 2.544.580
Jónína Brynja ÍS 55 Bolungarvík 2.167.289
Gísli Súrsson GK 8 Grindavík 2.113.219
Óli á Stað GK 99 Grindavík 2.097.380
Sandfell SU 75 Fáskrúðsfjörður 1.936.768
Vigur SF 80 Hornafjörður 1.925.246
Bíldsey SH 65 Stykkishólmur 1.836.076
Einar Guðnason ÍS 303 Suðureyri 1.461.088
Einar Hálfdáns ÍS 11 Bolungarvík 1.436.393
Auður Vésteins SU 88 Stöðvarfjörður 1.409.747
Listi 10 aflamarkshæstu smábáta:
ÞÍG kg
Bárður SH 81 Arnarstapi 679.145
Arnar SH 157 Stykkishólmur 338.568
Björn Hólmsteinsson ÞH 164 Raufarhöfn 214.102
Ebbi AK 37 Akranes 174.007
Nanna Ósk II ÞH 133 Raufarhöfn 163.803
Halldór NS 302 Bakkafjörður 153.535
Kristinn ÞH 163 Raufarhöfn 135.834
Máni II ÁR 7 Eyrarbakki 135.584
Tjálfi SU 63 Djúpivogur 106.157
Sæbjörn ÍS 121 Bolungarvík 94.253