Fréttablaðið - 06.12.2018, Side 24
Frá degi til dags
Halldór
Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
ritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is fréttablaðið.iS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttablaðið kalkofnsvegur 2, 101 reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is helgarblað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
menning: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Almenningur
hefur áttað
sig, en það
nægir ekki ef
ráðamenn
heims að-
hafast ekkert.
Ný mennta-
stefna
Reykjavíkur
er stefna
beint úr
grasrótinni
sem lýsir
miklum
metnaði.
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
KEBE
Hvíldarstólar
Tegundir: Rest og Fox
Opið virka dag
a
11-18
laugardaga
11-15
Borgarstjórn hefur samþykkt nýja menntastefnu Reykjavíkur til 2030. Hún varð til í samstarfi þúsunda einstaklinga meðal annars barna, foreldra,
kennara, skólastjórnenda, fulltrúa fagfélaga og háskóla-
samfélagsins. Menntastefnan snýst um valdeflingu barna
og ungmenna í skóla- og frístundastarfinu og aukna
fagmennsku og samstarf starfsfólks. Yfirskrift stefnunnar:
Látum draumana rætast er háfleyg og kannski dálítið
væmin fyrir miðaldra karla eins og mig en hún setur
markið hátt: að ýta undir frumkvæði, frumleika og skap-
andi hugsun barna, jafna aðgengi barna að fjölbreyttu
námsframboði og skapa kennurum og starfsfólki aukið
svigrúm til að gera þær breytingar á starfseminni sem
nýta enn betur styrkleika barna, hæfni þeirra og áhuga.
Það var sameiginleg niðurstaða að efla einkum fimm
hæfniþætti meðal barna og ungmenna. Þeir eru: félags-
færni með sterka vísan til lýðræðis, mannréttinda og
virðingar; sjálfsefling með áherslu á sterka sjálfsmynd,
sjálfsaga og sjálfstæða hugsun; læsi sem grundvallast
á þekkingu og skilningi; sköpun þar sem frumleiki,
frumkvæði og gagnrýnin hugsun er í forgrunni og loks
heilbrigði þar sem markmið er að börn tileinki sér heil-
brigðan lífsstíl.
Of oft hefur skort úthald til að fylgja eftir samþykktri
stefnu og innleiðingin hefur orðið í skötulíki. Því leggjum
við mikla áherslu á að stefnunni fylgir fjármagn til að
hefja kröftuga innleiðingu strax og tíu almennar aðgerðir
sem treysta grundvöll stefnunnar. Þær felast meðal ann-
ars í auknu vægi list- og verknáms, náttúruvísinda, úti-
náms og sköpunar; einföldun stoðkerfis fyrir börn með
fjölþættan vanda; fjölgun fagfólks með ríkum tækifærum
til starfsþróunar og frekari umbótum á aðstöðu til skóla-
og frístundastarfs. 200 milljónum verður árlega varið í
þróunarstarf í fyrsta áfanga innleiðingar með áherslu
á skólaþróun og Nýsköpunarmiðja menntamála mun
aðstoða skóla við innleiðinguna í samræmi við áherslur
þeirra, mannauð og forgangsröðun.
Ný menntastefna Reykjavíkur er stefna beint úr gras-
rótinni sem lýsir miklum metnaði skólasamfélagsins
í borginni fyrir hönd kynslóðanna sem eru að vaxa úr
grasi.
Ný menntastefna í Reykjavík
Skúli Helgason
formaður
skóla- og frí-
stundaráðs
Almenningur á sinn fulltrúa á lofts-lagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Póllandi. Sá er David Attenborough, maður sem almenningur þekkir að góðu einu. Er hann að því leyti frá-
brugðinn mörgum stjórnmálamönnum sem eru of
gefnir fyrir hentistefnu og svo uppteknir við að ota
eigin tota að þeir hafa lítinn tíma aflögu til að gæta
að hag lands síns og þjóðar.
Attenborough hefur gert margt fyrir þennan
heim. Í áratugi hefur hann ferðast til ótal landa
og kynnt sér dýralíf. Hann kemur auga á dýrðina
í smáum skorkvikindum jafnt sem voldugum
ljónum og krókódílum. Upplifun sinni hefur hann
miðlað á smitandi hátt til umheimsins í stórkost-
legum dýra- og náttúrulífsþáttum. Það kann vissu-
lega að hafa hvarflað að einhverjum sjónvarps-
áhorfendum að náttúrufræðingurinn knái hafi
jafnvel meira álit á dýraríkinu en mannkyninu, en
jafnvel þótt svo væri er vart hægt að álasa honum.
Mannkynið hefur ótalmargt á samviskunni, ekki
síst það að ganga rösklega fram við að eyða lífi á
jörðinni.
Forsvarsmenn loftslagsráðstefnunnar í Póllandi
fengu Attenborough það hlutverk að safna sögum
fólks og koma skilaboðum þess á framfæri á lofts-
lagsráðstefnunni. Það gerði hann af þvílíkum krafti
að ræða hans rataði í fjölmiðla víða um heim. Í
ræðunni sagði hann algjört hrun siðmenningar
blasa við og að hætta væri á gereyðingu stórs hluta
náttúrunnar. Hann kom á framfæri þeim skila-
boðum sem fólk víðsvegar að bað hann að koma til
ráðamanna heims, sem eru þau að bregðast strax
við.
Samkvæmt Attenborough, og við skulum trúa
honum, er almenningur um allan heim reiðubúinn
að færa fórnir í baráttunni við loftslagsbreytingar.
Fólk er að missa heimili sín, náttúra eyðist, dýra-
tegundir hverfa og fólk deyr – allt vegna loftslags-
breytinga.
Almenningur hefur áttað sig, en það nægir ekki
ef ráðamenn heims aðhafast ekkert. Hálfkák er
ekki í boði. Það þarf að bregðast við strax. Og þetta
„strax“ er ekki teygjanlegt og órætt hugtak, heldur
merkir það „samstundis“.
Harmleikur heimsbyggðarinnar í þessari baráttu
er að ráðamenn heims eru of margir ábyrgðarlausir
og duttlungafullir og sjá enga ástæðu til að taka
mark á færustu vísindamönnum. Forseti Banda-
ríkjanna fer þar fremstur í flokki og á sér liðsmenn
í öðrum miður geðslegum ráðamönnum, eins og
nýkjörnum forseta Brasilíu. Heiminum stafar hætta
af afneitun þessara manna.
Það er ekki nóg að almenningur taki mark á
aðvörunum vísindamanna, það gerist sárafátt ef
ráðamenn, sem hafa raunveruleg áhrif, eru ekki
með í för. Þeir hafa skyldum að gegna og verða að
sjá sóma sinn í að sinna þeim. Þegar við blasir hrun
siðmenningar geta ráðamenn heims ekki látið eins
og ekkert sé.
Fulltrúi fólksins
Svikarar gómaðir
Inga Sæland, formaður Flokks
fólksins, gerði upp við Karl
Gauta Hjaltason og Ólaf Ísleifs-
son í hispurslausu viðtali við
Arnþrúði Karlsdóttur á Útvarpi
Sögu. Þar sagði hún að andrúms-
loftið hefði verið orðið „ein-
kennilegt“ áður og fáum dulist
að góður vinskapur væri milli
hennar manna og Miðflokksins.
Samdrykkja þeirra á Klaustri
væri „ekki nýlunda“ og hleraði
fundurinn ekki þeirra fyrsti. Þeir
hefðu þannig gert sig seka um
svik við málstaðinn, Flokk fólks-
ins og formanninn „með því að
sitja að sumbli með pólitískum
andstæðingum“ og taka þegjandi
við „öllum þeim viðbjóði“ sem
um hana var sagður. „Og jafnvel
bæta um betur.“
Tilfinningarót
Inga sagði þá félaga ekki hafa
verið rekna úr flokknum í neinni
fljótfærni og að hún væri fegin að
vera laus þá. Grasrótin í flokkn-
um stæði þétt að baki henni og
samkenndin væri mikil, ekki síst
frá yndislegu samstarfsfólki á
þingi. Hún sagðist jafnframt hafa
farið í gegnum allan „tilfinninga-
skalann“ eftir að málið kom upp
og fundið fyrir vonbrigðum,
reiði, undrun og sorg. Þá fylgdi
sögunni að þeir Ólafur og Karl
Gauti hefðu enn ekki beðið hana
afsökunar persónulega þótt Ólaf-
ur hafi komið fram opinberlega
og sagst finnast þetta allt saman
miður. thorarinn@frettabladid.is
6 . d e s e m b e r 2 0 1 8 F I m m T U d A G U r22 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð I ð
SKOÐUN
0
6
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:3
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
A
6
-E
6
9
C
2
1
A
6
-E
5
6
0
2
1
A
6
-E
4
2
4
2
1
A
6
-E
2
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
7
2
s
_
5
_
1
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K