Fréttablaðið - 06.12.2018, Page 52
Bílar
Rau
ðagerði 25 · 10
8 Reykjavík · Sími 440 1800 · kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
Vatnskælar á frábæru verði
25-35%
Afsláttur
• Keyptann og eigðann
• Ekkert mánaðargjald
• Lítið viðhald
• Sjá nánar á
heimasíðu Kælitækni
www.kaelitaekni.is
Það gengur ekki allt of vel hjá Ford þessa dagana og salan minnkaði í nóvember um
6,9% og er 2,9% minni í heildina en
á sama tíma fyrir ári. Það eru helst
vandræði Ford í Evrópu sem hrella
bandaríska bílafyrirtækið, enda fer
salan þar síminnkandi. Nú er svo
komið að Ford íhugar miklar upp-
sagnir og það allt að 25.000. Það er
há tala í ljósi þess að heildarfjöldi
starfsmanna Ford er 70.000, svo
það gæti stefnt í að næstum 36%
alls starfsfólks Ford missti vinnuna.
Fækkunin yrði mest í Evrópu, en
einnig í Bandaríkjunum.
Líka miklar uppsagnir hjá GM
Þessar fréttir frá Ford koma í kjöl-
far yfirlýsingar General Motors
um miklar uppsagnir sem nema
um 15% af starfsmönnum þess.
Niðurskurðurinn í stjórnenda-
teymi GM er reyndar enn meiri,
eða 25%. Ford hefur nefnt að
tollar þeir sem settir voru á stál
af Trump, forseta Bandaríkjanna,
hafi reynst fyrirtækinu dýrir og
hafi minnkað hagnað Ford um 1
milljarð dollara og ekki hefur það
bætt stöðuna hjá Ford og hvatt til
nýráðninga.
Það eru því nokkuð svartir tímar
hjá þessum tveimur bandarísku
bílarisum og þar á bæ eru menn
að búa sig undir erfiða tíma.
Ford íhugar 25.000 uppsagnir
August Achleitner
sem stýrir þróun
911-bílsins segir að
rafhlöður nútímans
uppfylli ekki kröfur.
Forsvarsmenn Porsche segja að þær rafhlöður sem nú bjóðast í heiminum séu ekki nógu góðar til að réttlæta það að setja þær
í Porsche 911-bílinn, a.m.k. sem
stendur. Það muni þó vafalaust
gerast, en nú heyrast þær raddir
úr herbúðum Porsche að ólíklegt
sé að það eigi við núverandi nýja
kynslóð 911-bílsins. Hin nýja gerð
Porsche 911 ber stafina 992 og ólík-
legt má telja að nokkur útgáfa hans
verði með rafmagnsaðstoð. Fyrri
yfirlýsingar Porsche voru þess efnis
að vænta mætti 911-bílsins með
rafmagnsaðstoð árið 2022, en það
gæti samkvæmt þessu orðið nokkru
síðar, eða þegar rafhlöðurnar eru
orðnar skilvirkari og betri.
Uppfylla ekki kröfur
Það má geta þess að bæði Cayenne-
jeppi Porsche og Panamera-fólks-
bíllinn eru til í tengiltvinnútgáfum
og njóta því aðstoðar rafmagnsmót-
ora. August Achleitner sem stýrir
þróun og framleiðslu 911-bílsins
segir að rafhlöður nútímans upp-
fylli ekki kröfur Porsche og því sé
ekki réttlætanlegt að bæta þeim
við drifrás 911 bílsins að sinni, hvað
sem síðar verður. Porsche er nú að
vinna að hreinræktuðum sportbíl
sem fær nafnið Taycan og svo gæti
farið að áður en Porsche 911 fæst
sem tengiltvinnbíll muni hann fást
sem hreinræktaður rafmagnsbíll.
Athygliverð er þó sú staðreynd að
við hönnun 992-gerðar 911-bílsins
var gert ráð fyrir að hægt væri að
bæta við rafmagnsmótorum bruna-
vélinni til aðstoðar.
Rafhlöður ekki nægilega
góðar fyrir Porsche 911
Svo hratt ætlar Volkswagen Group að dýfa sér í rafmagns-bílavæðinguna að þar á bæ er
fullyrt að næstu gerðir véla sem
brenna jarðefnaeldsneyti verði þær
síðustu sem bílarisinn mun þróa.
Eftir það taki rafmagnsdrifrásir við.
Þessar næstu gerðir bensín- og dísil-
véla munu koma í bíla Volkswagen
Group árið 2026 og munu endast
fyrirtækinu í einhver ár. Þegar þar
að kemur ættu þær brunavélar
sem VW Group framleiðir að vera
orðnar miklu færri en nú er þar
sem hátt hlutfall bíla fyrirtækisins
verður knúið rafmagni eða öðrum
umhverfisvænum orkugjöfum. Engu
að síður á Volkswagen von á því að
fyrirtækið muni enn þá framleiða
einhverjar brunavélar árið 2050
fyrir þá markaði þar sem ekki nýtur
hagkvæms eða nokkurs rafmagns.
Af rafmagnsbílum Volkswagen er
þó það helst að frétta að árið 2020 er
von á bíl sem ber núna vinnuheitið
ID compact hatchback og á hann að
kosta um það bil það sama og venju-
legur VW Golf með dísilvél. Á sama
tíma ætti Porsche er vera tilbúið
með Taycan-rafmagnssportbíl sinn.
Líklega má segja að af merkjum
þeim sem heyra undir Volkswagen
Group sé Audi með forystuna í raf-
magnsvæðingunni með sinn Audi
E-Tron GT-jeppa, sem búið er að
kynna á bílasýningum og fyrir
blaðamönnum, en fer í almenna
sölu snemma á næsta ári.
Næstu brunavélar verða þær
síðustu hjá Volkswagen
Þá ættu þær brunavélar sem VW Group framleiðir að vera orðnar miklu færri
en nú er, þar sem hátt hlutfall bíla fyrirtækisins verður knúið rafmagni.
Þessar fréttir koma í kjölfar yfirlýsingar General Motors um miklar uppsagnir sem nema um 15% af starfsmönnum þess.
Við hönnun 992-gerðar 911-bílsins var gert ráð fyrir að hægt væri að bæta við rafmagnsmótor brunavélinni til aðstoðar.
6 . d e s e m b e r 2 0 1 8 F I m m T U d A G U r38 b í l A r ∙ F r É T T A b l A ð I ð
0
6
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:3
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
A
6
-C
D
E
C
2
1
A
6
-C
C
B
0
2
1
A
6
-C
B
7
4
2
1
A
6
-C
A
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
7
2
s
_
5
_
1
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K