Fréttablaðið - 06.12.2018, Page 58
Stundum er gott
að gera sér dagamun
Mjúk og bragðgóð jógúrt með stökkum
kornkúlum sem leika við bragðlaukana.
Tilvalinn kostur sem sparimorgunverður,
gómsætur millibiti eða ljúengur eftirréttur.
… hvert er þitt eftirlæti?
1
5
-2
5
7
3
-H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
gæði – þekking – þjónusta
Stimplar af öllum gerðum
og stærðum.
Pantaðu stimpil á bodi.is
... og svo miklu meira
LASERSKURÐUR
STIMPLAR
Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is
Netflix
the Christmas Chronicles
Leikstjórn: Clay Kaytis
Aðalhlutverk: Kurt Russell, Darby
Camp, Judah Lewis
Offramboðið á lélegum, ef ekki bein-
línis hallærislegum, jólamyndum er
svimandi á Netflix í upphafi aðventu.
Í þeim morkna og ameríkaníseraða
möndlugraut leynist þó ein bráð-
skemmtileg, þvottekta jólamynd,
sem full ástæða er til að mæla með
fyrir alla fjölskylduna.
Titillinn, The Christmas Chronic-
les, kallar nú ekki beinlínis á mann
og fljótt á litið er ekkert sem bendir
til annars en að þarna sé á ferðinni
enn ein kartaflan í Netflix-skónum.
Fordómafullur kvikmyndarýnir-
inn deilir þó ekki við tíu ára dóttur
sína þannig að ekki varð hjá þessari
komist. Framan af benti ekkert til
annars en að The Christmas Chro-
nicles myndi standa rækilega undir
engum væntingum mínum og eitt-
hvað fannst manni nú kunnuglega
innantómur jólaangistarandinn sem
sveif yfir heimili aðalpersónanna,
systkinanna Katie og Teddy.
Ákveðna og hjartahreina stelpu-
skottið hún Katie reynir að vekja
jólastemningu á heimilinu en Teddy,
bróðir hennar, er þunglyndur upp-
reisnarunglingur sem tekst á við
óvæntan og harmþrunginn föður-
missi með því að fikra sig hægt en
markvisst út á glæpabrautina með
sérstaka áherslu á bílaþjófnaði.
Hjúkrunarfræðingurinn móðir
þeirra, sorgmædd og útkeyrð, reynir
sitt besta til þess að halda börnum
sínum gleðileg jól. Hún þarf hins
vegar að taka aukavakt á aðfanga-
dagskvöld og allt er þetta ósköp
dapurlegt. Þeir vita sem reynt hafa
að jólin eru þeim sem sakna, syrgja,
þjást og líða skort oftar en ekki
óbærilega erfið.
Jólasveinninn kemur í kvöld
Þegar systkinin eru orðin ein í kotinu
tekst Katie einhvern veginn að draga
viðskotaillan og leiðinlegan bróður
sinn með sér út í mikinn ævintýra-
leiðangur. Með myndbandstökuvél
ætlar hún sér hvorki meira né minna
en að festa á filmu sjálfan Jólasvein-
inn í háflugi á hreindýrasleðanum
sínum.
Katie trúir nefnilega staðföst á
Jólasveininn á meðan krónísk leið-
indi fullorðinsáranna eru byrjuð að
leggjast yfir gelgjuna sem hefur snúið
baki við Sveinka og trúnni á að lífið
er ævintýri.
Birtist þá ekki Jólasveinninn og
viti menn. Hann ER til! Og það sem
gerir þetta enn betra er að hann
er Kurt Russell! Myndin lyftist því
skyndilega upp á allt annað plan og
47 ára gamli fýlupúkinn, sem hafði
framan af fylgst með af hálfum hug,
varð á augabragði tíu ára og sat jafn
heillaður og barnið yfir myndinni
þar til yfir lauk.
Allar efasemdir um að Kurt Rus-
sell sé ekki skemmtilegasti núlifandi
leikarinn í Hollywood hverfa á auga-
bragði um leið og maður öðlast trúna
á Jólasveininn á ný um leið og maður
áttar sig á hvaða ljúflingur leynist
bak við allt skeggið.
Svalasti jólatöffarinn
Kúrtarinn er bara þannig leikari að
maður veit að hann er góð mann-
eskja í alvörunni. Prakkaraglampinn
í augunum og ómótstæðilegt brosið
sem hann hefur flotið á í gegnum
hryllingsmyndir, spennumyndir og
gamanmyndir í áratugi hafa sjaldan
verið jafn heillandi.
Jólasveinn Kúrtarans okkar allra
er fyndinn og mátulega kærulaus
töffari sem lætur ekkert slá sig út
af laginu og heldur kúlinu meira að
segja þegar krakkaormarnir stofna
með klaufaskap sínum jólaandanum
og þar með sjálfum jólunum í stór-
hættu.
Þegar allt stefnir í óefni rennur
Teddy loksins blóðið til skyldunnar
og saman snýr þetta ólíklega þríeyki
bökum saman og leggur allt undir til
þess að bjarga gleðinni.
Fingraför Kólumbusar
Þroskasaga Teddys er vitaskuld alveg
ofboðslega stöðluð en klisjur eru
ekki klisjur að ástæðulausu og stund-
um er kjarni lífsins og lífsgleðinnar
einmitt bara voða eitthvað dæmi-
gerður og sammannlegur. Jólin sjálf
eru útbólgin klisja þannig að þetta er
bara rosalega sætt og enginn verður
verri af því að leita jólagleðinnar
með aumingja Teddy.
Engin tilraun er gerð til þess að
finna upp hjólið í The Christmas
Chronicles enda ástæðulaust. Við
vitum öll að hjól og jólahjól snúast
og ef þau gera það hratt og skemmti-
lega þá er tilganginum náð.
Hér hljóma mörg kunnugleg stef
og þótt hið ættleidda eilífðarbarn
Stevens Spielberg, Chris Columbus,
sé hér aðeins í hlutverki framleið-
anda myndarinnar þá eru fingraför
hans út um allt. Sem er ekki ónýtt
þegar haft er í huga að hann skrifaði
Gremlins og The Goonies og leik-
stýrði Adventures in Babysitting,
Home Alone og fyrstu tveimur Harry
Potter-myndunum.
The Christmas Chronicles er
eins og jólatré skreytt alls konar
litlum gullmolum úr fyrri verkum
Columbus þannig að nóg er af gríni,
spennu og göldrum eilífrar bernsku
sem kalla fram gæsahúð, kannski
pínu tár og láta manni líða pínu vel í
hjartanu. Eiginlega bara eins og jólin.
Þórarinn Þórarinsson
Niðurstaða: Dásamlega klisju-
kennd og yndislega bernsk mynd
sem vekur jólabarnið í jafnvel
kaldhæðnustu fullorðinshjörtum
enda skartar hún skemmtilegasta
Jólasveini sem sést hefur í kvik-
mynd. Eiginlega of stór skammtur
af kærkomnu krúttnessi í skamm-
deginu.
Þegar Kurt Russell
bjargaði jólunum
Geðþekkasti Hollywood-leikari vorra tíma, hefur aldrei verið jafn sjarmerandi og þegar hann túlkar Jólasveininn.
Heiðurshjónin Goldie Hawn og Kurt
Russell eru örugglega besta fólkið í
Hollywood. Hafið augun opin. Kannski
bregður stórkostlegri eiginkonu Jóla-
sveinsins aðeins fyrir í myndinni.
6 . d e s e m b e r 2 0 1 8 f i m m t u d a G u r44 m e N N i N G ∙ f r É t t a b l a ð i ð
Bíó
0
6
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:3
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
A
6
-D
C
B
C
2
1
A
6
-D
B
8
0
2
1
A
6
-D
A
4
4
2
1
A
6
-D
9
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
7
2
s
_
5
_
1
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K