Fréttablaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 24
Frá degi til dags Halldór Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is ritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is fréttablaðið.iS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttablaðið kalkofnsvegur 2, 101 reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is helgarblað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Verður tímabundið leyfi megin- reglan – í von um að rykið setjist og menn geti svo sest aftur í stólinn eins og ekkert hafi í skorist? Fyrir jafn hátt lán þarf að greiða marg- falt hærri vaxtagreiðsl- ur í íslensk- um banka en hjá erlendum bönkum. Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n h ú s g a g n av e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið KEBE Hvíldarstólar Tegundir: Rest og Fox Opið virka dag a 11-18 laugardaga 11-15 Háir vextir, dýrt og okur eru þau orð sem komu oftast fyrir í niðurstöðum skoðanakönnunar Gallup þar sem spurt var um hvaða þrjú orð koma fyrst upp í hugann til að lýsa bankakerfinu á Íslandi. Þetta eru stór orð en fyrir þeim er innistæða. Samtök iðnaðarins hafa ítrekað talað fyrir hag- kvæmara og skilvirkara fjármálakerfi. Háir vextir hér á landi í samanburði við önnur lönd koma niður á sam- keppnishæfni fyrirtækja sem þurfa að fjármagna sig á innlendum fjármálamarkaði. Á þetta er bent í skýrslu um samkeppnishæfni og í skýrslu um atvinnustefnu fyrir Ísland sem SI hefur gefið út. Í nýútkominni hvítbók um íslenska fjármálakerfið kemur fram að útlánavextir íslensku bankanna eru mun hærri en útlánavextir banka í nágrannalönd- unum. Fyrir jafn hátt lán þarf að greiða margfalt hærri vaxtagreiðslur í íslenskum banka en hjá erlendum bönkum. Munurinn kemur niður á samkeppnisstöðu og verðmætasköpun íslenskra fyrirtækja. Fram kemur í hvítbókinni að meðalvextir útlána íslensku bankanna voru í fyrra 5,8% en meðalvextir skulda bankanna 3,2%. Á því ári var því 2,6 prósentu- stiga munur á meðaltalsvöxtum vaxtaberandi eigna og skulda íslenskra banka. M.ö.o var álagning íslensku bankanna 45% í fyrra. Háir vextir útlána bankanna skýrast því að mjög stórum hluta af þessari háu álagningu þeirra. Í hvítbókinni er rætt um hvað skýri þessa álagningu íslensku bankanna. Samkvæmt niðurstöðunum skýrir rekstrarkostnaður, sem að helmingi er launakostn- aður, álagninguna að mestu. Auk þess skýra sértækir skattar og töluvert miklar eiginfjárkröfur álagninguna. Greiningin er áhugaverð því hún sýnir hvaða leiðir megi fara til að lækka vexti hér á landi og bæta sam- keppnishæfni íslensks efnahagslífs. Íslensku bank- arnir eru að mestu í eigu ríkisins auk þess sem ríkið mótar laga- og reglugerðarumgjörð þeirra. Það er ríkisins, sem eiganda bankanna, að beita sér fyrir því að hagræða og auka skilvirkni í bankaþjónustu og skapa þannig skilyrði fyrir lægri innlendum vöxtum til hagsbóta fyrir íslensk fyrirtæki og heimili. Ríkið getur lækkað vexti Sigurður Hannesson framkvæmda- stjóri Samtaka iðnaðarins Nú er það gult Á sólarhring gengu um 14.000 manns í Facebook-hópinn Takk Bára, skjaldborg um Báru Halldórsdóttur sem hefur verið boðuð til yfirheyrslu í Héraðs- dómi Reykjavíkur á mánudaginn. Fjöldi fólks ætlar sér að vera á staðnum og sýna Báru þannig stuðning í verki. Um 200 hafa þegar boðað sig og 1.800 til viðbótar lýst sig áhugasama. Hug- myndir eru uppi um að mæta til leiks í gulum öryggisvestum að hætti franskra mótmælenda og í samtali við Fréttablaðið.is sagði stofnandi hópsins, Rannveig Ernudóttir, að það kæmi henni ekki á óvart ef gulur yrði litur mánudagsins. Þá er bara eins gott að lagerstaðan sé góð hjá þeim sem selja slík vesti ef Parísar- tískan er að koma til landsins í kjölfar Klausturfokksins. Krúnudjásn aktívistans Jón Gnarr er einn þeirra sem stigið hafa fram og boðið Báru stuðning í verki. Hann lýsti sig á Twitter tilbúinn til þess að hrinda af stað peningasöfnun fyrir hana og stjórna jafnvel „uppboði og hvað eina“ ef svo ólíklega fari að hún verði dæmd til að borga eitthvað. Illu heilli er Jón nýbúinn að farga umdeildu og umtöluðu verki andófslistamanneskjunnar Banksy sem hefði annars verið til- valið krúnudjásn á fjársöfnunar- uppboði gegn kerfinu. Þar fóru sjálfsagt ófáar krónur í tætarann. thorarinn@frettabladid.is Samtal drukkinna þingmanna á Klaustri opnaði illa þrútið graftarkýli. Æ fleiri sögur um óviðeigandi hegðun og ummæli þingmanna birtast nú í fréttum. Boðaðar hafa verið fleiri fréttir af sam-bærilegu. Síðustu ár hefur umræða um kynbundið ofbeldi, áreitni og kvenfyrirlitningu verið áberandi undir hatti herferða á borð við #metoo og í tengslum við Druslugönguna, svo dæmi séu nefnd. Þar hefur ýmsu misfögru verið ýtt upp á yfirborðið. Góðu fréttirnar eru að mörk í samskiptum manna í milli hafa verið að skýrast. Óþol gagnvart áreitni og ofbeldi fer vaxandi. Ábyrgðinni er vísað til föðurhúsanna, til þeirra sem beita ofbeldi og misrétti. Slæmu fréttirnar eru að leikreglurnar eru ekki skýrar, þegar ekki er um að ræða klárt brot á hegningarlögum sem á augljóslega heima á borði lögreglu. Óljósara er hvernig við tökumst á við gráu svæðin, hver viðurlög skuli verða á þinginu, ef einhver, við annars konar áreitni, önnur en sam- félagsleg útskúfun og mannorðshnekkir. Enginn rekur þingmann nema kjósendur á fjögurra ára fresti. Afar sjaldgæft er að þingmenn dragi sig í hlé vegna hneykslismála, líkt og gerist allt í kringum okkur. Eftir að upptökur af samræðum þingmannanna á Klaustri láku í fjölmiðla var siðanefnd Alþingis kölluð til í fyrsta sinn. Kannski er það ágætt skref, þótt ekki sé enn ljóst hvort hún geti beitt nokkr- um viðurlögum, hver sem niðurstaða hennar kann að verða. Samfylkingin hefur gert tilraun til að búa til umgjörð um hvað skal gert þegar flokksmenn verða uppvísir að ósæmilegri hegðun. Hún setti á laggirnar svokallaða trúnaðarnefnd, þar sem hægt er að koma á framfæri kvörtunum um áreitni eða einelti. Nefndin hefur sætt gagnrýni, líkt og aðrar sambærilegar nefndir, til að mynda hjá Þjóðkirkj- unni, sem hafa tekist á við sambærileg mál innan- húss. Þá sé erfitt að hafa slíka nefnd starfandi innan stjórnmálaflokks til að takast á við málefni innan flokksins, þar sem pólitíkin ráði gjarnan för. Allir vita að hjaðningavíg samherja innan flokka geta verið illvíg – jafnvel illvígari en bardagar milli svokallaðra andstæðinga í pólitík. Hvað er til ráða? Sennilega hefur enginn svarið á reiðum höndum. Verður tímabundið leyfi megin- reglan – í von um að rykið setjist og menn geti svo sest aftur í stólinn eins og ekkert hafi í skorist? Er raunhæft að gera sér vonir um að menn fari að vanda sig – tileinka sér mannasiði og meiri kurteisi? Það er ærið verkefni að búa til staðlað form fyrir mannasiðina, sem við flest lærum í uppeldinu. Er það yfirleitt hægt? Alla vega – okkur er hollt að ræða málin, líkt og nú er gert. Stinga á kýlinu og fá gröftinn út. Mannasiðir 1 3 . d e s e m b e r 2 0 1 8 F I m m T U d A G U r24 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð I ð SKOÐUN 1 3 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :5 0 F B 0 8 0 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 B B -0 4 6 C 2 1 B B -0 3 3 0 2 1 B B -0 1 F 4 2 1 B B -0 0 B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 8 0 s _ 1 2 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.