Fréttablaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 38
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Houdini er sænskt útivistarfyrir-tæki sem var stofnað árið 1993 og framleiðir gæðafatnað fyrir útivist, hreyfingu og lífsstíl. Vörur Houdini eru hannaðar til að auðvelda fólki að upplifa meira, afkasta meiru og skemmta sér betur án þess að raska náttúrunni. Framsækni og nýsköpun eru lykilatriði í hönnun útvistar- fatnaðar Houdini. Hjá fyrirtækinu er unnið sleitulaust að því að hámarka eiginleika fatnaðarins og bjóða upp á hátæknilegar flíkur í hæsta gæðaflokki. Houdini vörurnar eru tæknilegar, þægilegar, teygjanlegar og flottar. Houdini Made to Move (MTM) er ný aðferð við að sníða föt eftir hreyfingum líkamans. Venjulega eru flíkur sniðnar á tví- víðum sléttum fleti en þessi aðferð byggir á þrívíðri tækni þar sem sniðin eru hönnuð beint á líkama sem hreyfist. Hönnunar- ferlið fer fram á hreyfingu. Sjálfbærni og fjölnotagildi eru lykil atriði í framleiðslunni. Fyrirtækið sker sig úr flóru útvistarmerkja því það framfylgir afar strangri umhverfisstefnu. Af þeim efnum sem notuð eru í fatnað Houdini er 91% ýmist endurunnið, endurvinnanlegt og/eða niðurbrjótanlegt í náttúrunni. Markmið Houdini er að gera enn betur og minnka vistspor hverrar flíkur. Rýnt er í hvert einasta smáatriði í framleiðslu og flutningi varanna til að valda minnsta mögulega raski. Yfirlýst markmið Houdini er að verða 100% sjálfbært fyrirtæki. Fara í spíkat í snjóbuxunum „Primal Iceland er hreyfigym, sem þýðir að við kennum fólki að hreyfa sig, fara í splitt og spíkat, standa á höndum og gera alls konar skrítna hluti,“ segir Einar Carl Axelsson, einn af eigendum Primal Iceland. „Mikið af því sem við gerum er að fara út í náttúruna og Houdini er með svokallaða Made to Move stefnu, sem þýðir að fötin þeirra hindra ekki hreyfingar. Þegar við erum úti í náttúrunni að fíflast, þá viljum við geta hreyft okkur óhindrað og það hentar okkur alveg gríðarlega vel að geta farið í splitt og spíkat í snjóbuxunum þeirra. Skelin þeirra er líka algjörlega vatns- held, aðsniðin og úr teygjanlegu efni, sem ég hef aldrei séð áður. Þessi nýsköpun hjá Houdini er mjög skemmtileg. Mér finnst gaman hvernig þetta merki tekur hana lengra en allir aðrir, vinnur af metnaði og gefur hvergi eftir í gæðum. Það sem vakti áhuga okkar á Houdini til að byrja með er svipuð hugsjón hjá báðum fyrirtækjum hvað varðar umhverfis- mál og sú staðreynd að þetta er framleitt og saumað saman í Evrópu, þannig að maður veit hvaðan þetta kemur,“ segir Einar. „Þetta er sænskt gæðamerki og umhverfisstefna fyrirtækisins er mjög lík stefnunni okkar. Öll fötin frá þeim eru umhverfis- væn. Þau eru meira að segja svo náttúruvæn að fyrirtæk- ið setti gömul föt í moltu og ræktaði svo grænmeti úr moltunni sem starfsfólkið borðaði.“ Hönnuð til að endast „Við notum æfingafötin frá Houdini þegar við erum að þjálfa í gymminu okkar, en síðan förum við í útvistar- fötin þegar við förum út, en við förum mjög oft í svokallaðar Wim Hof ferðir, þar sem við leiðum hópa sem ganga á Esjuna hálfnaktir og fara í fossaböð og alls konar fínerí,“ segir Einar. „Þá er gott að geta klætt sig í hlý föt þegar maður er búinn. Okkur finnst peysurnar alveg sérstaklega vand- aðar, þær eru hnausþykkar og góðar, en samt fisléttar og teygjanlegar. Þær eru líka mjög endingargóðar, það sér varla á þessu efni, því það er svo vandað. Það er gæðastimpill á þessu og fötin eru eiguleg og hönnuð til að endast,“ segir Einar. „Þú getur keypt þér færri og betri flíkur, í staðinn fyrir fleiri og lélegri, eins og er algengt í dag. Við urðum svo hrifnir þegar við sáum gæði fatanna að nú verður ekkert annað keypt. Þar að auki er sniðið gott, fötin eru hlý og þau eru í mjög flottum jarðlitum, þannig að þau líta rosalega vel út. Ég held að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi hjá þessu merki.“ Houdini vörurnar fást í H Verslun og á www.hverslun.is. Útivistarfötin frá Houdini eru bæði vönduð, endingar- góð og flott. MYND/ICEPHARMA Fötin frá Houdini hindra ekki hreyfingar á neinn hátt og henta því sérstaklega vel í æfingarnar hjá Primal Iceland, sem snúast um að hreyfa líkamann á nýjan hátt. MYND/ANTON BRINK Framhald af forsíðu ➛ 2 KYNNINGARBLAÐ 1 3 . D E S E M B E R 2 0 1 8 F I M MT U DAG U RÚTIVIST OG SPORT 1 3 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :5 0 F B 0 8 0 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 B A -F F 7 C 2 1 B A -F E 4 0 2 1 B A -F D 0 4 2 1 B A -F B C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 8 0 s _ 1 2 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.