Fréttablaðið - 13.12.2018, Side 42
Þegar þú gerir þér
grein fyrir hvenær
þú reykir mest og með
hverjum áttarðu þig á
hvenær þú þarft að vera
sérstaklega á verði.
Reykbindindi er dæmt til að mistakast ef það er ekki hafið af réttum ástæðum. Mikilvægt er að hafa löngun til að hætta að reykja ef það á að takast.
Hvenær reykir þú? Með hverjum reykir þú? Hvenær langar þig mest til að reykja?
Skrifaðu niður allar þær spurn-
ingar sem þér detta í hug um reyk-
ingavenjur þínar. Vertu heiðarleg/
heiðarlegur og svaraðu þeim öllum
ítarlega.
Þegar þú hefur lokið því muntu
sjá greinilegt mynstur. Þú reykir ef
til vill mest á morgnana, í vinnu eða
þegar þú hefur það notalegt með
vinum þínum.
Þekking á reykingavenjum er
ekki eingöngu ætluð til þess að þú
gerir þér grein fyrir hversu mikið
þú reykir en getur einnig hjálpað
þér til að verða reyklaus fyrir fullt
og allt.
Hvernig þá? Jú, þegar þú hefur
gert þér grein fyrir því hvenær þú
reykir mest og með hverjum getur
þú áttað þig á hvenær þú þarft að
vera sérstaklega á verði gagnvart
sjálfri/sjálfum þér í reykleysisferl-
inu. Ef þú reykir til dæmis mest á
morgnana þarftu auðvitað að gæta
þess sérstaklega vel á morgnana að
falla ekki.
Forðastu erfiðu augnablikin
Ef þú reykir venjulega í félagslegu
samhengi skaltu undirbúa þig með
tilliti til þess og reyna að stinga upp
á einhverjum nýjungum sem þið
getið gert saman og segðu fólkinu
sem þú umgengst að þú óskir þess
heitt að hætta að reykja svo að það
hjálpi þér áleiðis.
Það er ljóst að þú getur ekki
forðast allar erfiðar aðstæður.
Þess vegna skaltu fyrirfram íhuga
hvernig best er að bregðast við
þegar þú lendir í slíkum aðstæðum.
Ætlar þú í staðinn að drekka glas af
vatni, slá grasið, tala í símann eða
fara í gönguferð þangað til reyk-
ingaþörfin er liðin hjá?
Löngun til að hætta er grund-
völlur að reykleysi
Þú þarft að taka fyrsta skrefið í átt
að árangursríku reykleysi. Þú þarft
að hafa löngun til þess að hætta ef
það á að takast.
Reykbindindi er dæmt til að
mistakast ef það er ekki hafið af
réttum ástæðum. Þú skalt hætta
vegna þess að þú hefur ástæðu til
þess sem hvetur þig áfram og þegar
þú ert búin/búinn að átta þig á því
hver hún er ertu komin/kominn vel
áleiðis.
Skrifaðu niður ástæðurnar og
rifjaðu þær upp daglega til þess að
halda þér við efnið.
Gerðu þér grein fyrir hvað þú ert
að takast á við.
Þekking er grundvöllur að
góðum árangri í reykbindindi og
reykleysi verður auðveldara ef þú
veist hvenær þú reykir mest og ert í
mestri hættu á að falla.
Þú skalt íhuga hvernig þú
hagar deginum og meta hvaða
sígarettum þú átt erfiðast með að
sleppa. Ef það er þegar þú drekkur
morgunkaffið skaltu breyta
morgunvenjum þínum og fara í
gönguferð eða vanda sérstaklega
til morgunverðarins. Það mun
dreifa huganum.
Auðveldaðu þér lífið
Líkamleg þörf fyrir sígarettu getur
verið það sem verður til þess að þú
rýfur reykbindindið.
Margir falla vegna mikilla frá-
hvarfseinkenna. Hér geta vörur sem
eru ætlaðar til að slá á þau frá-
hvarfseinkenni hjálpað þér og veitt
þér þann auka meðbyr sem þú þarft
til þess að halda reykbindindið.
Undirbúningur er grundvöllur
fyrir velgengni í reykbindindi
Því miður er bakslag vel þekkt í tengslum við reykbindindi en þú getur minnkað líkur á því með
því að skoða vandlega reykingavenjur þínar og hafa góða áætlun á reiðum höndum.
REYKLAUS
VERTU
Í EITT SKIPTI FYRIR ÖLL MEÐ
Nicotinell
Nicotinell Mint/Fruit/Lakrids/IceMint/Spearmint lyfjatyggigúmmí, Nicotinell Mint munnsogstöflur, Nicotinell forðaplástur. Inniheldur nikótín.
Til meðferðar á tóbaksfíkn. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé
þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Ný vefsíða
www.Nicotinell.is
Nicotin ll 5x10 copy.pdf 1 11.12.2018 13:51
VISSIR ÞÚ?
Vissir þú að 20 mínútum eftir síðustu sígarettu byrjar líkaminn að jafna
sig og breyting til batnaðar verður á líkamsástandinu?
20 mínútur Blóðþrýstingur og hjartsláttur verður eðlilegur.
Hætta á blóðtappa minnkar.
1 sólarhringur Blóðstreymi til húðarinnar verður betra
og meiri hiti í tám og fingrum.
Lungun byrja að hreinsa sig (hósti getur fylgt).
2 sólarhringar Bragð- og lyktarskyn batnar og líkaminn
hefur losað sig við koltvísýring. Þolið er því betra.
3 sólarhringar Slaknar á berkjum og öndun verður auðveldari.
2-12 vikur Blóðrásin fer smám saman batnandi.
3-9 mánuðir Hægir á hrukkumyndun. Öndun verður betri
og minni hósti. Aukin frjósemi – auðveldara að geta barn.
1-2 ár Hætta á blóðtappa hefur minnkað um helming.
5-10 ár Hætta á blóðtappa er jafn mikil og hjá þeim
sem hafa aldrei reykt.
10 ár Hætta á lungnakrabbameini er helmingi
minni en hjá þeim sem reykja.
6 KYNNINGARBLAÐ 1 3 . d e S e M B e R 2 0 1 8 F I M MT U DAG U RÚtIVISt oG SpoRt
1
3
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:5
0
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
B
A
-F
0
A
C
2
1
B
A
-E
F
7
0
2
1
B
A
-E
E
3
4
2
1
B
A
-E
C
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
8
0
s
_
1
2
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K