Fréttablaðið - 13.12.2018, Side 46
Ég tek inn inn-
blástur víða, yfir-
leitt frá fólki sem ég sé í
mínu daglega lífi eða úr
gömlum bíómyndum.
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
Áhugi Sigmundar Páls Frey-steinssonar á fatahönnun hófst stuttu eftir að hann
byrjaði í framhaldsskóla. Hann er
nú á lokaári í námi í fatahönnun
við Listaháskóla Íslands og segist
hafa kafað eins djúpt og hann gat
inn í þennan heim og vera alltaf
að kynnast nýjum hlutum. „Ég
stefni á að starfa erlendis eftir
útskrift til að öðlast meiri þekk-
ingu og reynslu. Bransinn úti
heillar mig mun meira en að starfa
hérna heima. En ég sé fyrir mér á
endanum að koma aftur til Íslands
með verðmæta reynslu og starfa
þá hér á landi. Það þarf að halda
áfram að byggja upp vettvang fyrir
fatahönnun á Íslandi og þá skiptir
máli að koma með þekkingu inn
frá öðrum löndum. Áhugi minn
liggur að mestu leyti í herratísku
en ég reyni að fylgjast með öllu því
helsta sem er í gangi í heimi fata-
hönnunar. Mér finnst þó sérstak-
lega skemmtilegt að fylgjast með
japönskum hönnuðum.“ Utan
fatahönnunar og tísku eru helstu
áhugamál Sigmundar tónlist og
japanskar bókmenntir.
Í sífelldri þróun
Samhliða náminu tekur hann þátt,
fyrir hönd nemenda, í endur-
skoðun námsbrautar fyrir fata-
hönnun í Listaháskólanum. „Það
þarf sífellt að þróa námið áfram
til að mæta síbreytilegum þörfum
nemenda og samfélagsins. Það
sem er mest áberandi í breytingar-
ferlinu er aukin áhersla á sjálf-
bærni. Listaháskólinn hefur verið
framarlega á því sviði en gott dæmi
um það er verkefnið Misbrigði
sem er unnið árlega í samstarfi við
Rauða krossinn. Í því verkefni er
einungis notast við endurunnin
textíl. Hönnuðir framtíðarinn-
ar þurfa að vera meðvitaðir um
skaðsemi iðnaðarins og leggja sitt
af mörkum til að þróa bransann í
rétta átt.“
Spurt og svarað
Hvernig myndir þú lýsa fatastílnum
þínum?
Stílinn minn er mínímalískur. Ég
klæðist nánast eingöngu japanskri
hönnun og legg mikla áherslu á gæði
í flíkum.
Áttu þér tískufyrirmyndir?
Ég tek inn innblástur víða, yfirleitt
frá fólki sem ég sé í mínu daglega lífi
eða úr gömlum bíómyndum.
Hvernig fylgist þú með tískunni?
Samfélagsmiðlar eru góðir til að
fylgjast með tískunni og þar finnst
mér Instagram besti miðillinn.
Annars finnst mér best að ferðast
til að sjá mismunandi menningu og
upplifa tískuna beint í æð.
Hvar kaupir þú helst fötin þín?
Ég kaupi fötin mín nánast ein-
göngu erlendis, yfirleitt þegar
ég ferðast. Auk þess kaupi ég föt
gegnum netið, þá helst hjá Farfetch,
Ssense og Grailed.
Hvaða litir eru í uppáhaldi?
Svartur, dökkblár og vínrauður
eru í uppáhaldi hjá mér.
Áttu minningar um gömul tísku-
slys?
Tíðarandinn breytist og stíllinn
þróast. Það sem var einu sinni málið
er það ekki endilega lengur. Sumir
hlutir eiga sinn tíma og aðrir eru
tímalausir.
Hvaða flík hefur þú átt lengst og
notar enn?
Það er peysa frá Acne Studios sem
ég hef átt lengi og nota mikið.
Áttu þér uppáhaldsverslanir?
Uppáhaldsverslanirnar mínar eru
l'éclaireur Hérold í París og Yohji
Yamamoto verslunin í Aoyama,
Tókýó.
Áttu þér eina uppáhaldsflík?
Uppáhaldsflíkin mín er Yohji
Yamamoto kápa frá haustlínunni
2016.
Bestu og verstu fatakaupin?
Besti kaupin mín eru skór frá
ítalska skósmiðnum Guidi sem ég
nota nánast á hverjum degi. Ég geri
aldrei slæm kaup því ég hugsa mig
vel um áður en ég festi kaup.
Hvað einkennir klæðnað ungra
karla í dag?
„Streetwear“ hefur aldrei verið
stærra og merkjadýrkun er í
hámarki. Ungir karlar hafa aldrei
haft meiri áhuga á tísku en í dag en á
sama tíma finnst mér oft eins og að
unga karlmenn vanti persónulegan
stíl og séu of uppteknir af því að
eltast við aðra.
Notar þú einhverja fylgihluti?
Fylgihlutir eru lykilatriði að mínu
mati. Ég geng með hringa, eyrna-
lokka, hliðartöskur, klúta og fleira.
Leggur áherslu á gæðaföt og
japanska hönnun
Sigmundur Páll Freysteinsson er á lokaári í námi í fatahönnun við Listaháskóla Íslands. Hann stefnir
á að starfa erlendis eftir útskrift og safna verðmætri reynslu til að nýta síðar hér á landi. Svartar,
dökkbláar og vínrauðar flíkur eru í uppáhaldi og fylgihlutir eru algjört lykilatriði að hans mati.
Myndir af hönnun Sigmundar fyrir
verkefnið „Embodied Architecture“
sem nemendur á þriðja ári í fata-
hönnun gerðu í samstarfi við Epal og
textílframleiðandann Kvadrat.
MYND/KJARTAN HREINSSON
Sigmundur P. Freysteinsson nemi í fatahönnun. MYND/KJARTAN HREINSSON
Hönnun Sigmundar fyrir verkefnið
Misbrigði sem er unnið af nem-
endum í fatahönnun á 2. ári við LHÍ
í samstarfi við Fatasöfnun Rauða
kross Íslands. MYND/ANNA MAGGÝ
JÓLA-FÓLK
Viltu þú auglýsa í mest lesna
blaði landsins?
Hafðu þá samband við auglýsingadeild Fréttablaðsins.
Sími 550 5077 – serblod@frettabladid.is
Alla föstudaga fram að jólum verður Fólk Fréttablaðsins stútfullt af smákökum,
kertaljósum, konfekti, mandarínum, jólamat, jólatísku, jólasögum og jólastemningu
heima og að heiman.
Vertu með í jólaskapi og komdu jólaskilaboðum þínum beint til lesenda.
FERMINGARGJAFIR
Fim tu aginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . D E S E M B E R 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R
1
3
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:5
0
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
B
B
-1
8
2
C
2
1
B
B
-1
6
F
0
2
1
B
B
-1
5
B
4
2
1
B
B
-1
4
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
8
0
s
_
1
2
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K