Fréttablaðið - 13.12.2018, Side 60
Bílar
Spilajól
afsláttur af öllum
spilum og púslum
20%
Skemmtilegt kubbaspil.
Make ‘n’ Break 4.239
Verð áður 5.299
Spennandi mörgæsaspil
Mörgæsahaugur 4.159
Verð áður 5.199
Slímugt fjölskylduspil.
Skrímslaskellur 3.999
Verð áður 4.999
tilboð
tilboð
tilboð
1 3 . d e s e m b e r 2 0 1 8 F I m m T U d A G U r36 b í l A r ∙ F r É T T A b l A ð I ð
Þær fréttir berast nú frá Kína að þar á bæ standi til að lækka tolla á bíla framleidda í
Bandaríkjunum úr 40% í 15%. Þess-
ar fréttir hafa hækkað hlutabréfa-
verð í öllum bandarísku bílafram-
leiðendunum. Hlutabréf í General
Motors og Ford hækkuðu strax um
2%, en að auki hækkuðu hlutabréf í
þýsku bílaframleiðendunum BMW,
Volkswagen og Daimler um 2,3 til
4% þar sem þessi fyrirtæki fram-
leiða líka jeppa í Bandaríkjunum
sem fluttir eru til Kína. Kínverjar
hækkuðu tolla á bíla og íhluti í bíla
frá Bandaríkjunum í 40% þegar
Trump setti háa tolla á kínverskar
vörur sem fluttar voru til Banda-
ríkjanna.
Ekki hefur enn verið formlega til-
kynnt um þessa fyrirhuguðu tollalækk-
un í Kína, en haft er eftir bandarískum
ráðamönnum að það standi örugglega
til, en tímasetning lækkunarinnar
er ekki ljós ennþá þó svo slíkt sé víst
aðeins dagaspursmál. Þessi tollalækk-
un mun einnig hafa mjög jákvæð áhrif
á rafmagnsbílaframleiðandann Tesla,
þó svo Tesla sé nú að byggja nýja verk-
smiðju í Shanghai til að bregðast við
tollaálögum í Kína. Þessi fyrirhugaða
tollalækkun kemur í kjölfar samninga-
umleitana milli Trump-stjórnarinnar
og kínverskra yfirvalda.
Kína lækkar tolla á bandaríska bíla
Ford Mustang á kínverskri grundu.
BMW X4 er fjórhjóladrif-inn kúpulaga sportjeppi sem var sá fyrsti sinnar tegundar á markaðnum þegar hann var kynntur
árið 2014. Nú hefur BL fengið í sal-
inn aðra kynslóð þessa vinsæla og
„sjálfsörugga“ bíls sem sker sig sem
fyrr úr fjöldanum vegna sportlegs og
ögrandi útlits. Nýr X4 er bæði stærri
og straumlínulagaðri en forverinn
og loftmótstaðan er enn minni,
raunar sú lægsta í þessum flokki.
Bíllinn er 81 mm lengri og 37 mm
breiðari en forverinn auk þess sem
hjólhafið er 54 mm meira. Þrátt fyrir
stærri bíl er nýr X4 fimmtíu kílóum
léttari en forverinn og ásamt 50/50
þyngdarhlutföllum, lægri þyngdar-
punkti og stórum felgum fram-
kallar nýja hönnunin einstaklega
skemmtilegan og röskan akstursbíl
í samræmi við grunngildi BMW.
Afgerandi breytingar að aftan
Hvað varðar helstu útslitsbreytingar
að öðru leyti er vert að nefna nýja og
hljóðeinangrandi framrúðu til að
draga betur úr umhverfishljóðum, ný
lárétt díóðuþokuljós (LED) að fram-
an, ný díóðudagljós á utanverðum
framluktum og val um að hafa sömu
tækni í sjálfum aðalljósunum sem
eru stærri en áður. Þá er helsta aðals-
merkið, nýrnagrillið, einnig heldur
stærra en á forveranum og er það í
samræmi við núverandi þróun sem
m.a. blasir við á nýjasta bíl BMW,
hinum stóra X7 sem kominn er á
markað. Útlitsbreytingarnar eru þó
ef til vill enn greinilegri að aftan,
einkum á nýjum, mjög ílöngum og
grípandi díóðuljósunum sem ná vel
inn á hliðar bílsins. Snertilaus opnun
skottloksins og sjálfvirk lokun eru
einnig staðalbúnaður í nýjum X4.
Þá má einnig nefna að númera-
platan hefur verið færð af afturhlera
og niður á stuðarann auk þess sem
tvöfalt púst er nú staðalbúnaður.
Meiri munaður
Farþegarýmið einkennist sem fyrr
af glæsileika og mikilli vandvirkni
í hönnun og frágangi. Nýr X4 hefur
þó fengið örlítið hástæðari og
endur hönnuð sæti með sportlegu
yfirbragði og afar vönduðu leðri.
Miðlægur snertiskjárinn á ofanverð-
um miðjustokknum er einnig stærri
en áður og auk þess sjálfstandandi
en ekki felldur inn í innréttinguna.
Einnig hefur BMW speglað ýmsar
hagnýtar upplýsingar upp á fram-
rúðuna fyrir framan ökumann til
að viðhalda einbeitingu í akstri
auk þess sem bíllinn getur boðið
upp á þá þjónustu að leggja sér
sjálfur í stæði. Öllum helstu stjórn-
hnöppum er þó sem fyrr haganlega
fyrir komið á sínum stað í innrétt-
ingunni og innan seilingar. Ræsi-
hnappurinn Stop/Go hefur fengið
nýjan og hærri stað, geymslurými
eru næg og nokkrar USB-innstungur
við höndina til þæginda fyrir öku-
mann og farþega. Öll þrjú aftur-
sætin eru í fullri stærð og fótarýmið
meira en áður.
8 sekúndur í 100
BL býður X4 með tveggja lítra
190 hestafla dísilvél við átta gíra
Steptronic sjálfskiptingu og hið
rómaða xDrive Intelligent fjór-
hjóladrif BMW. Vélin togar 400 Nm
og er krafturinn nægur enda er X4
einungis 8 sekúndur úr kyrrstöðu í
100 km/klst. Hægt er að sérpanta X4
með öðrum vélum og aukabúnaði
sem framleiðandinn býður með
bílnum og hægt er að kynna sér
nánar á vef BL.
Nýr, stærri, breiðari
og fjórhjóladrifinn X4
Bíllinn er 81 mm lengri, 37 mm breiðari en forverinn auk þess sem hjól-
hafið er 54 mm meira. Þrátt fyrir stærri bíl er nýr X4 fimmtíu kílóum létt-
ari en forverinn ásamt 50/50 þyngdarhlutföllum og lægri þyngdarpunkti.
BMW X4 er bíll sem sker sig sem fyrr úr fjöldanum vegna sportlegs og ögrandi útlits.
BL Býður X4 með
tveggja Lítra 190
hestafLa dísiLvéL við átta
gíra steptroNic sjáLfsKipt-
iNgu og hið rómaða Xdrive
iNteLLigeNt fjórhjóLadrif
BmW.
1
3
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:5
0
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
B
A
-E
B
B
C
2
1
B
A
-E
A
8
0
2
1
B
A
-E
9
4
4
2
1
B
A
-E
8
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
8
0
s
_
1
2
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K