Fréttablaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 62
POWERSTATE™ mótor.
REDLINK PLUS™ yrálagsvörn
REDLITHIUM-ION™ rafhlaða
Sveigjanlegt rafhlöðu ker sem
virkar með öllum Milwaukee ®
M18™ rafhlöðum.
M18 FCS66
Alvöru hjólsög
frá Milwaukee
vfs.is
Blekhylki.is, S. 517 0150 – 2. hæð Smáralind
Ódýr blekhylki
og tónerar!
Slakaðu á
með Slökun
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
kippir og spenna
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartsláttur
g Kvíði
g Streita
g Pirringur
Einkenni
magnesíum-
skorts
www.mammaveitbest.is
Slakaðu á
með Slökun
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
kippir og spenna
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartsláttur
g Kvíði
g Streita
g Pirringur
Einkenni
magnesíum-
skorts
www.mammaveitbest.is
Slakaðu á
með Slökun
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
kippir og spenna
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartsláttur
g Kvíði
g Streita
g Pirringur
Einkenni
magnesíum-
skorts
www.mammaveitbest.is
lakaðu á
eð lö
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
ki pir og spe na
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartslá tur
g Kvíði
g Streita
g Pi ringur
Einke i
agnesí
skorts
i t.i
Leikhús
Leitin að tilgangi lífsins
16 elskendur
Gamla læknavaktin – smáratorg
Af öllum þeim stöðum þar sem til-
gangur lífsins er líklegur til að finnast
er gamla Læknavaktin á Smáratorgi
ekki ofarlega í huga, en einmitt þar
hefur sviðslistahópurinn 16 elskend-
ur opnað hugræna rannsóknarstöð.
Þar fer ekki fram klassísk læknis-
skoðun heldur er skoðunin inn á við
– sjálfskoðun. Leitin að tilgangi lífs-
ins var frumsýnd í byrjun desember
og sýningar standa yfir fram í miðjan
janúar en sýningafjöldi er takmark-
aður sem og áhorfendafjöldi.
Eins og titillinn gefur til kynna þá
setja 16 elskendur markmiðið hátt
en taka fram að hér fer fram leit og
lofa engum svörum. Þau taka sig
ekki alvarlega heldur setja fremur
ábyrgðina í hendur áhorfenda, eða
huga í þessu tilviki. Þau eru einungis
hér til að hjálpa og leiðbeina en ekki
leysa þrautina fyrir okkur. Hér er
ekki fyllt inn í eyðurnar með útskýr-
ingum, frekar er áhorfendum afhent
verkefni: að finna tilgang lífsins. Alla-
vega að hefja leitina.
Áhorfendur fara í listrænan leið-
angur inni á vaktinni, þar sem hver
krókur og kimi er nýttur á óvæntan
máta. Komið er við í nokkrum
herbergjum og hvert þeirra inni-
heldur mismunandi upplifun, bæði
í einrúmi og hópi. Uppsetningin er
þannig skipulögð að hver sýning
er frábrugðin þeirri næstu og ekki
upplifa allir sömu sýninguna, jafn-
vel ekki þeir sem fara sama kvöld.
Þessi stærðfræðilega skipulagning
felur í sér mótsögn þar sem áhorf-
endur eru hvattir til að finna frelsið
innra með sér, en eina leiðin er að
fylgja nákvæmum leiðbeiningum
og leiðar vísum, skapalóni og per-
sónulegum verkefnabæklingi sem
þátttakendur fá afhentan við komu
á vaktina.
Freistandi er að tala um hverja
upplifun fyrir sig en slíkt myndi
draga úr áhrifunum. En hér er til-
vistin skoðuð frá alls konar sjónar-
hornum: náttúrunni, minningum,
handanheimum, dauðanum og þú-
inu. Sextán elskendur snúa upp á
allar þær væntingar og hugmyndir
sem við höfum um sjálfskoðun og
gera góðlátlegt grín að þessari stöð-
ugu leit að lífsfyllingu. Þrátt fyrir það
vakna áleitnar spurningar um til-
ganginn með þessu lífi og okkar stað
í veröld sem er full af gervi, glingri og
gráum svæðum.
Ekki er hægt að tala um frammi-
stöðu einstakra meðlima 16 elsk-
enda í sýningu á borð við Leitin að
tilgangi lífsins. Frekar er hægt að
tala um sköpun og afstöðu innan
verksins. Nálgun þeirra að sköp-
unarferlinu og framkvæmd er bæði
pólitísk og einlæg. Hópurinn, sem
samanstendur af listafólki úr marg-
víslegum áttum, vinnur þverfaglega
en hvorki leikstjóri né leikskáld eru
skrifuð fyrir sýningunni. Meðlimir
eru ekki einu sinni nefndir sérstak-
lega í kynningarefni. Afstaða innan
verksins er vinaleg en einhvern veg-
inn á skjön. Súrrealískar aðgerðir eru
framkvæmdar eins og ekkert sé eðli-
legra og innihaldslausar sjálfshjálp-
arræður settar fram í fullri alvöru og
vinalegheitum.
Í einni skáldsögu sinni skrifaði
höfundurinn Douglas Adams um
ofurtölvuna Djúp, hugsun sem
reiknaði út að tilgangur lífsins
væri talan 42. Útreikningurinn tók
tölvuna 7,5 milljón ár og sú niður-
staða olli áheyrendum töluverðum
vonbrigðum þegar hún var til-
kynnt. Liðin eru þrjú og hálft ár frá
síðustu sýningu 16 elskenda og lík-
urnar á því að finna tilgang lífsins
á Smáratorgi eru alveg jafn góðar
ef ekki betri heldur en að bíða eftir
svari ofurtölvunnar. En öruggt er
að áhorfendur verða ekki fyrir von-
brigðum. Sigríður Jónsdóttir
Niðurstaða: Enn ein rós í hnappagat
16 elskenda.
Lífið, alheimurinn, allt og þú
Nálgun þeirra að sköpunarferlinu og framkvæmd er bæði pólitísk og einlæg, segir gagnrýnandi Fréttablaðsins.
Bækur
keisaramörgæsir
Höfundur: Þórdís Helgadóttir
Útgefandi: Bjartur
156 blaðsíður
Í Keisaramörgæsum, eftir Þórdísi
Helgadóttur, er að finna sextán sjálf-
stæðar smásögur sem allar eiga það
þó sameiginlegt að brugðið er á leik
á sögusviði íslensks samtíma.
Þórdís er enginn nýgræðingur
þó að Keisaramörgæsir sé hennar
fyrsta bók og áður hafa birst eftir
hana örsögur, smásögur, þýðingar
og ljóð. Í smásögunum sextán beitir
Þórdís töfraraunsæi og teflir saman
raunveruleika og ímyndunarafli
með kunnuglegum furðum.
Sögur verksins eru ólíkar og
mislangar, sumar einungis ein til
tvær síður, persónur nafnlausar og
lesandinn þarf að geta í fjölmargar
eyður. Í öðrum sögum er kafað
dýpra undir yfirborðið og lesand-
inn fær innsýn í hugarheim einka-
þjálfara í hjúskaparvandræðum,
sér geðræn vandamál móður með
augum ungrar dóttur hennar eða
kynnist skuggahliðum íslensks
næturlífs.
Sögurnar gerast flestar á okkar
tímum og fjalla um samtímann á
einn eða annan hátt.
Þrátt fyrir að leiksvið
verksins sé hvers-
dagurinn láta ýmsar
kynjaverur á sér
kræla. Tröll, ísbirnir,
jafnvel djöfullinn
sjálfur, renna snyrti-
lega saman við dag-
legt líf sögupersóna
svo þær virðast
fremur kunnuglegar.
Tilgerðarlaus frá-
sagnarháttur Þór-
dísar rennur jafn-
an áreynslulaust
áfram. Heimilis tröll, tímavélar
og hrár kjúklingur vekja athygli les-
anda, þannig að smáatriðin skipta í
raun mestu máli. Þórdís leikur sér á
þann hátt að lesandanum, til dæmis
með því að særa blygðunarkennd
hans með litlum hlutum sem stinga
í stúf við litlausan hversdaginn.
Smáatriðin notar hún á sama tíma
til að fjalla um hin ýmsu tabú sam-
tímans. Geðræn vandamál, kvíði,
samviskubit vegna loftslagsbreyt-
inga og heimilisofbeldi fléttast inn
í textann í krafti fantasíunnar. Stutt
er á milli raunveruleika og ímynd-
unar í amstri hversdagsins þar sem
allt getur gerst. Ört er skipt á milli
sögusviðs og persóna og sögurnar
eru jafn ólíkar og þær eru margar.
M a r g b r e y t i l e i k i
smásagnanna kann
þó að vera tvíeggjað
sverð, því þær skipta
á köflum svo hratt um
takt að lesandinn hefur
varla undan við að
fylgja höfundi eftir. Til
þess er vitaskuld leikur
smásögunnar gerður, en
um leið eru nokkrar sög-
urnar töluvert sterkari en
aðrar, söguþráður þeirra
þéttari og dýptin meiri.
Þannig getur lesandinn
misst taktinn í lestrinum
þegar texti sumra sagn-
anna verður flatur, eða flýgur of
hátt. Mögulega hefði verið hægt
að flysja frekar úr verkinu og gefa
veigameiri sögum aukið vægi.
Í heildina er Keisaramörgæsir þó
áhugaverður óður til samtímans,
eftirminnilegt marglaga verk með
fjölbreyttum og lifandi sögum sem
enduróma áhyggjur samtímans. Þó
að sumar sögurnar séu innihalds-
ríkari en aðrar er áhugi lesanda að
jafnaði vakinn að nýju þannig að
heildarmynd verksins helst sterk
allt til loka. Bryndís Silja Pálmadóttir
Niðurstaða: Áhugavert smásagna-
sagn um samtímann, en sögurnar eru
misgóðar.
Kafað ofan í hversdagsfantasíur
Komið í
allar helstu
verslanir
Íslenskt
tískutímarit
1 3 . d e s e m B e r 2 0 1 8 F i m m t u d a G u r38 m e N N i N G ∙ F r É t t a B L a ð i ð
menning
1
3
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:5
0
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
B
A
-E
6
C
C
2
1
B
A
-E
5
9
0
2
1
B
A
-E
4
5
4
2
1
B
A
-E
3
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
8
0
s
_
1
2
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K