Fréttablaðið - 13.12.2018, Page 76
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðardóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Valdimar Birgisson valdimar@frettabladid.is
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar
Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir
heida@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Rapparinn Emmsjé Gauti hefur lengi haft mikinn áhuga á strigaskóm og eftir töluvert bras og baks er hann nú búinn að hanna sína fyrstu
strigaskó og má segja að hann feti
þar með í fótspor kollega síns Kanye
West. Skórnir heita þó ekki Geezys.
Um er að ræða Air Jordan I mid sem
hann endurhannaði í þema nýjustu
plötu sinnar, Fimm. Einungis eru 20
pör í boði og verður hægt að skrá
sig í happdrætti á vefsíðu tísku
verslunarinnar Húrra Reykjavík þar
sem nokkrir heppnir verða dregnir
út og fá kauprétt að skónum.
„Í raun og veru hófst þetta fyrir
alveg einu og hálfu ári. Þá datt mér í
hug að gera skó – upprunalega ætlaði
ég að athuga hvort ég gæti fengið eitt
par sem ég gæti „moddað“ og
búið til Vagg og veltu
skóna.“
Úr varð að Gauti
fékk 20 pör af
alveg hvítum Air
Jordan skóm sem
hann leit á sem eins
konar striga sem
hægt væri að mála
upp á nýtt í þema
Vaggs og veltu,
plötu Gauta sem
var þá nýlega komin
út.
„ M i g l a n g
aði aldrei að
gera eitthvað
sem einhver
annar gæti
alveg eins
gert – ég vildi ekki tússa bara á ein
hverja skó. Þannig að það tók við
frekar langt ferli þar sem ég labbaði
á milli saumastofa og athugaði hvort
það væri hægt að sauma eitthvað í
skóna. Ég var alltaf að rekast á veggi
vegna þess að svona skór eru tilbúin
vara og mjög erfitt að gera eitthvað
með þá.“
Þannig að pælingin um skóna
fór á ís á meðan platan Fimm var í
vinnslu. Svo þegar hún var kláruð
fór Gauti hringinn hjá skósmiðum
bæjarins án árangurs þangað
til einn þeirra, Þráinn skóari,
benti honum á ungan
mann á Suður
nesjum sem
væri að breyta
s t r i g a s kó m .
Sá heitir Helgi
Líndal.
„Ég fæ sam
band við Helga
og við setjumst
niður. Ég fæ
með mér Björn
Geir, vin minn
sem vinnur í skó
búð í San Fran
cisco og Bobby
B r e i ð h o l t ,
hönnuð plöt
unnar [Fimm]. Þetta ferli tók alveg
miklu lengri tíma en ég hélt að það
yrði og var miklu metnaðarfyllra.“
Gauti segir að skórnir séu alveg
gjörbreyttir og fyrir utan að þeir séu
málaðir upp á nýtt með sérstakri
skómálningu eru reimarnar breyttar,
kassinn utan um skóna er sérgerður
hér á Íslandi og þeir koma líka í sér
saumuðum taupoka innan í kass
anum. Auk þess fylgir vínylútgáfa
af Fimm með skónum og er því um
veglegan pakka að ræða.
„Ég hringdi í Húrra og var að
segja þeim aðeins frá þessu og þeir
voru bara „jááá …“ dálítið efins. Svo
mætti ég með vöruna til þeirra og þá
breyttist í þeim hljóðið og þeir sögðu
„þetta er betra en við héldum – við
vorum vissir um að þú myndir bara
tússa á skóna“.“
Þannig að Húrra mun hýsa söluna
á skónum og verður happdrætti um
kaupréttinn, svona eins og Húrra
hefur verið að gera með Yeezyskóna
hans Kanye West. Tekið verður við
skráningum á vefsíðu Húrra fram
að miðnætti á föstudaginn, dregið
verður á laugardaginn og fólk getur
náð í skóna á sunnudaginn.
Aðspurður segir Gauti að það hafi
aldrei komið til greina að vera bara
með gömlu góðu röðina.
„Ég skil að ungir menn geti hangið
í röð með sperrtan líkama sem þolir
enn kulda. En við erum auðvitað að
sigla inn í harðan vetur – það var
lokað í Laugardalslauginni um dag
inn vegna þess að það voru eldingar
í henni. Ég er bara hræddur um fólk.
Ég vil ekki myrða neinn.“
stefanthor@frettabladid.is
Emmsjé Gauti
hannar strigaskó
Emmsjé Gauti hannaði Air Jordan skó sem hafa verið sérgerðir í
anda nýjustu plötunnar hans, Fimm. Kaupréttur á skónum fer í
happdrætti á vegum Húrra Reykjavík en aðeins 20 pör eru í boði.
Hér má líta gripinn frá öllum sjónarhornum. Í hælinn er búið að sauma fimmu og svo er sérstakur miði á tungunni.
MiG lanGaði aldrEi
að GEra Eitthvað
sEM EinhvEr annar Gæti
alvEG Eins GErt – éG vildi
Ekki tússa bara á EinhvErja
skó.
Emmsjé Gauti
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
05.12.18 - 11.12.18
1 2
5 6
7 8
109
43
Lifandilífslækur
Bergsveinn Birgisson
Stúlkan hjá brúnni
Arnaldur Indriðason
Brúðan
Yrsa Sigurðardóttir
Þorpið
Ragnar Jónasson
Hornauga
Ásdís Halla Bragadóttir
Sextíu kíló af sólskini
Hallgrímur Helgason
Ungfrú Ísland
Auður Ava Ólafsdóttir
Kaupthinking
Þórður Snær Júlíusson
Þitt eigið tímaferðalag
Ævar þór Benediktsson
Siggi sítróna
Gunnar Helgason
1 3 . d e s e m b e r 2 0 1 8 F I m m T U d A G U r52 l í F I ð ∙ F r É T T A b l A ð I ð
1
3
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:5
0
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
B
B
-0
9
5
C
2
1
B
B
-0
8
2
0
2
1
B
B
-0
6
E
4
2
1
B
B
-0
5
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
8
0
s
_
1
2
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K