Fréttablaðið - 19.12.2018, Side 1

Fréttablaðið - 19.12.2018, Side 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 9 9 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r M i ð V i K u d a g u r 1 9 . d e s e M b e r 2 0 1 8 Fréttablaðið í dag sKoðun Formaður Læknafélags Íslands fjallar um tvöfalt heil- brigðiskerfi. 11 lÍfið Hulda Vigdísardóttir þýdd Hnotubrjótinn sjálf þegar hún uppgötvaði að ævintýrið var ekki til á íslensku. 26 GJAFAKORT KRINGLUNNAR ER FRÁBÆR JÓLAGJÖF GEFÐU GJÖF AF ÖLLU HJARTA O P I Ð T I L 2 2 Í K V Ö L DLaugavegi 15 og Kringlunni - michelsen.is Kúlan sem gleður alla efnaHagsMál „Þetta eru mjög slá- andi niðurstöður. Væntingar stjórn- enda um stöðuna í dag og sex mánuði fram í tímann eru þær verstu frá því að efnahagsuppsveiflan hófst eftir hrun,“ segir Halldór Benjamín Þor- bergsson, framkvæmdastjóri Sam- taka atvinnulífsins, um niðurstöður nýrrar könnunar meðal stjórnenda 400 stærstu fyrirtækja landsins. Umrædd könnun á mati á aðstæð- um í atvinnulífinu er samstarfsverk- efni Samtaka atvinnulífsins og Seðla- bankans og er framkvæmd af Gallup. „Mér finnst þetta einn besti mæli- kvarðinn á stöðu hagkerfisins hverju sinni í ljósi þess að við höfum fram- kvæmt þessa könnun fjórum sinnum á ári í 16 ár,“ segir Halldór. Búast stjórnendur 30 prósenta fyrirtækja við fækkun starfsmanna á næstu sex mánuðum en stjórnendur 10 prósenta fyrirtækja búast við fjölgun starfsmanna. „Alveg frá því í dýpstu kreppunni 2009 hafa fyrirtækin verið að bæta við sig fólki. Í fyrsta skipti núna frá því eftir hrun sjáum við skýr skil og stjórnendur fyrirtækja gera ráð fyrir að fækka verulega fólki á næstunni,“ segir Halldór. Miðað við stærðardreifingu fyrir- tækjanna sem tóku þátt í könnuninni má gera ráð fyrir að störfum fækki um 1,2 prósent á næstu sex mánuðum. Sé það yfirfært á allan vinnumarkaðinn myndi það þýða að störfum fækkaði um 1.400. „Efnahagslegur raunveruleiki knýr alltaf dyra að lokum. Eftir mikinn uppgang undanfarinna ára sjáum við að fyrirtækin eru farin að halda að sér höndum. Þetta er bara staðan í hag- kerfinu, því miður.“ – sar / sjá síðu 4 Spá fækkun starfa í fyrsta sinn frá 2009 Stjórnendur 400 stærstu fyrirtækja landsins eru svartsýnir á stöðuna í atvinnulífinu samkvæmt nýrri könnun Gallup sem unnin er fyrir Samtök atvinnulífsins og Seðlabankann. Í fyrsta sinn frá 2009 gera stjórnendur ráð fyrir að störfum muni fækka næstu sex mánuði. Yfirfært á allan vinnu- markaðinn þýðir þetta að störfum fækki um 1.400. ViðsKipti Hlutafé Kortaþjónustunn- ar var í gær aukið um 1.050 milljónir og Jakob Ásmundsson, fyrrverandi forstjóri Straums og áður stjórnar- maður í Arion banka, ráðinn for- stjóri færsluhirðingarfyrirtækisins. Í samtali við Markaðinn staðfestir Jakob að hann hafi sjálfur lagt félag- inu til um 80 milljónir í hlutafé. Aðrir þátttakendur í hlutafjár- aukningunni, sem kom til vegna tapreksturs á rekstrarárinu, voru núverandi hluthafar ásamt nýjum fjárfestum. Kvika er stærsti hluthafi félagsins með um 40 prósenta hlut. Kvika og hópur fjárfesta keypti Kortaþjónustuna í fyrra og lögðu því til 1.500 milljónir í hlutafé. Félagið stóð frammi fyrir miklum lausafjár- vanda eftir greiðslustöðvun Mon- arch Airlines. – hae / sjá Markaðinn Leggja Korta til milljarð í hlutafé Jólin nálgast óðfluga og hátíðarstemningin leyndi sér ekki í heimsókn leikskólabarna í Hörpuna í gær. Börnin fóru í jóga og svo leiddi jólasveinn hópinn í kring um jólatréð með söng. Í nótt kom Skyrgámur til byggða. Næstir á eftir honum eru Bjúgnakrækir, Gluggagægir og Gáttaþefur. Ketrókur kemur á Þorláksmessu og loks Kertasníkir á aðfangadag. Fréttblaðið/Sigtryggur ari 1 9 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :2 6 F B 0 5 6 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 D 9 -5 8 A 4 2 1 D 9 -5 7 6 8 2 1 D 9 -5 6 2 C 2 1 D 9 -5 4 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 5 6 s _ 1 8 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.