Fréttablaðið - 19.12.2018, Side 6

Fréttablaðið - 19.12.2018, Side 6
1 9 . d e s e m b e r 2 0 1 8 m I Ð V I K U d A G U r6 f r é t t I r ∙ f r é t t A b L A Ð I Ð dÓmsmÁL Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæð- isflokks, var dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir pen- ingaþvætti í Héraðsdómi Reykjavík- ur í gær. Fjallað var um mál Júlíusar í Panama-skjölunum svokölluðu. Brot Júlíusar fólst í því að hafa árin 2010 til 2014 geymt á bankareikningi sínum hjá UBS-banka á Ermarsund- seyjunni Jersey andvirði 131 til 146 milljóna króna en um var að ræða tekjur sem komu til vegna viðskipta bílaumboðsins Ingvars Helgasonar á árunum 1982 til 1993 sem voru ekki taldar fram til skatts. Árið 2014 ráðstafaði Júlíus þessum fjármunum af fyrrnefndum banka- reikningi  og  inn á reikning hjá bankanum Julius Bär í Sviss, sem tilheyrði vörslusjóðnum Silwood Foundation.  Rétthafar hans voru skráðir ákærði, eiginkona hans og börn. Fjárhæð hins ólögmæta ávinn- ings, sem ákærði þvætti með þessum hætti, var á bilinu 49 til 57 milljónir króna. Ágóði Júlíusar af brotinu er hins vegar ekki gerður upptækur eins og tíðkast í peningaþvættismálum, en hvorki var gerð krafa um kyrrsetn- ingu fjármunanna meðan rannsókn stóð yfir, né upptöku þeirra með dómi. Fyrir tæpum mánuði féll einnig dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna peningaþvættis en fjárhæðin sem þar var um að ræða var um það bil fimmfalt lægri en í tilviki Júlíusar eða rúmar átta milljónir. Fékk dóm- felldi í því máli, Hafþór Logi Hlyns- son, 12 mánaða óskilorðsbundinn dóm fyrir brotið auk þess sem ágóði brotsins var gerður upptækur; rúm- lega tvær og hálf milljón í peningum ásamt vöxtum og verðbótum og Tesla-bifreið af 2014 árgerð. Sami saksóknari sótti þessi mál og sami dómari við héraðsdóm dæmdi. Á það ber þó að líta að Haf- þór á langan sakaferil að baki og rauf skilorð með broti sínu. Að frátalinni upptöku ágóðans skýrir sakaferill  og skilorðsrof Hafþórs muninn á þyngd refsingarinnar í þessum málum en dómurinn yfir Hafþóri er bæði tveimur mánuðum lengri og óskil- orðsbundinn.  – aá Ágóði af peningaþvætti yfirleitt gerður upptækur Júlíus Vífill Ingvarsson ✿ Læknisheimsóknir Hefur þú einhvern tíma á síðustu 12 mánuðum frestað eða hætt við að … fara til tannlæknis? 39,3% 0% 100%50% fara til læknis? 23% 0% 100%50% kaupa lyf? 14,5% 0% 100%50% 18-24 ára 32% 25-34 ára 35% 35-44 ára 27% 45-54 ára 17% 55 ára eða eldri 4% 18-24 ára 38% 25-34 ára 52% 35-44 ára 50% 45-54 ára 33% 55 ára eða eldri 22% 18-24 ára 20% 25-34 ára 21% 35-44 ára 19% 45-54 ára 10% 55 ára eða eldri 3% sAmféLAG Fjörutíu prósent félags- manna í verkalýðsfélaginu Einingu- Iðju hafa á síðustu tólf mánuðum frestað því eða hætt við að fara til tannlæknis af fjárhagsástæðum. Fjórðungur félagsmanna hefur hætt við að fara til læknis af sömu ástæðum. „Þetta eru nokkuð sláandi niður- stöður,“ segir Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju. Eining Iðja er stærsta stéttar- félagið á Norðurlandi. Félagssvæði þess er í Eyjafirði og liggur frá Fjalla- byggð í vestri til Grýtubakkahrepps í austri. Í yfirstandandi kjaraviðræðum leggja verkalýðsfélög áherslu á að tryggja öfluga heilbrigðisþjónustu fyrir félaga sína. Á síðasta þingi ASÍ var jafnframt samþykkt sú stefna að efla grunnstoðir heilbrigðiskerfisins Veigra sér við að fara til læknis vegna fjárskorts Margir virðast fresta læknisheimsóknum vegna þess að þeir hafi einfaldlega ekki efni á því. FréttablaðIð/auðunn og tryggja að allir hafi aðgang að öflugri heilsugæslu í heimabyggð og aðgang að lyfjum. Af niðurstöðum könnunar meðal félagsmanna sést marktækur munur á svörum eftir aldri. Yngra fólk er líklegra til að hafa ekki efni á lækn- isheimsóknum, að taka út lyf í apó- tekum eða að fara til tannlæknis. Ungt fólk á barneignaraldri frestar þessu marktækt oftar en aðrir. „Þetta er auðvitað innlegg í þær kjaraviðræður sem við erum í núna. Það er sláandi að sjá að fjórðungur félagsmanna okkar frestar því að fara til læknis og því er þetta eitt af þeim atriðum sem við verðum að tryggja félagsmönnum okkar í komandi kjaraviðræðum, það er aðgangur að heilbrigðisþjónustu,“ segir Björn. „Það kom okkur líka töluvert á óvart að sjá að unga fólkið á í hvað mestum erfiðleikum með þetta og virðist forgangsraða hlutunum á þennan hátt sem er auðvitað baga- legt.“ Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar- innar kemur fram að stjórnvöld muni á valdatíma sínum draga úr greiðsluþátttöku sjúklinga í heil- brigðiskerfinu. sveinn@frettabladid.is Fjórðungur félagsmanna Einingar-Iðju hefur frestað læknisheimsókn vegna fjárhagserfiðleika síðustu tólf mánuði. Um fjórir af hverjum tíu hafa frestað að fara til tannlæknis. Ungt fólk líklegra til þessa. Alvar- legt að mati formanns Einingar-Iðju. björn Snæbjörns- son, formaður Einingar Iðju 1 9 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :2 6 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 D 9 -8 5 1 4 2 1 D 9 -8 3 D 8 2 1 D 9 -8 2 9 C 2 1 D 9 -8 1 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 1 8 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.